Læknablaðið - 15.09.2005, Qupperneq 40
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LÝÐHEILSUSTÖÐ
Forvarnir byggjast á samstarfi margra
Lýðheilsustöð heimsótt og rætt við starfsmenn og stjórnendur
Anna Elísabet Ólafsdóttir Eftir að Jóni Kristjánssyni heilbrigðisráðherra
forstjóri Lýðheilsustöðvar. tókst í annarri tilraun að skipa forstjóra fyrir
Lýðheilsustöð tók stofnunin til starfa haustið 2003.
Síðan hefur átt sér stað mikið uppbyggingarstarf
og þegar blaðamaður Læknablaðsins kom í heim-
sókn í stöðina nú í ágúst varð hann þess áskynja
að í hinum fornu heimkynnum heilbrigðisráðu-
neytisins við Hlemm er unnið af kappi og áhuga
að hvers kyns forvörnum og reynt að ýta við lands-
mönnum með öllum tiltækum ráðum svo þeir taki
upp heilsusamlegri lífshætti.
Anna Elísabet Ólafsdóttir forstjóri dregur ekki
dul á að það tók nokkuð á að sameina starfsemi
fimm ráða og nokkurra sjálfstæðra verkefna undir
einum hatti en hún ber sig samt vel. „Þetta hefur
gengið vel þótt ekki hafi það verið með öllu átaka-
laust,“ segir hún og bætir því við að yfirvinnutímar
hennar hafi verið ansi margir fyrsta árið. Stærstur
hluti fyrrum starfsmanna kaus að halda áfram að
starfa í hinni nýju stofnun en þar starfa nú um 20
manns.
„Við höfum eytt mikilli vinnu í stefnumótun
og að koma á nýju skipuriti sem gengur þvert á
verkefni fyrrum ráða og verkefna. I stað þeirra
skiptum við stofnuninni í þrjú svið: Verkefnasvið,
Rannsókna- og þróunarsvið og Samskiptasvið.
Við stefnumótunarvinnuna þurftum við að byrja
á því að átta okkur á hvaða hlutverk okkur er
ætlað lögum samkvæmt en samstaða náðist um
að orða hlutverkið þannig að Lýðheilsustöð skapi
landsmönnum tækifæri til heilbrigðs lífs og við
settum niður á blað þrjár meginleiðir við þá vinnu
sem eru aukin þekking, fræðsla og ráðgjöf. Mesta
púðrið fór þó eflaust í að móta stofnuninni fram-
tíðarsýn sem er í átta liðum og nær fram til ársins
2008. Nú vinnum við að aðgerðaráætlun til að
koma stefnu okkar í framkvæmd en þar er unnið
innan málaflokkanna í samvinnu við sérfræðiráð
Lýðheilsustöðvar.
Þegar við fórum að ræða hlutverk stofnun-
arinnar komumst við að því að við þyrftum að
skilgreina fyrir okkur og öðrum hvað felst í hug-
takinu lýðheilsa. Við rákumst á að fólk vissi ekki
alveg hvað það þýddi. Ég hef til dæmis verið spurð
að því hvernig lýðheilsan mín sé! En við komum
okkur niður á skilgreiningu sem er á þessa leið:
Lýðheilsa snýr að því að viðhalda og bæta heilsu,
líðan og aðstæður þjóða og þjóðfélagshópa með
almennri heilsuvernd, heilbrigðisþjónustu og
samfélagslegri ábyrgð. Lýðheilsustarf byggist
á víðtækri samvinnu og þverfaglegri nálgun og
snertir meðal annars félagsmál, umhverfismál
og efnahagsmál."
Heilsuvísar og svið
í forvarnarstarfi vaknar alltaf sú spurning hvern-
ig hægt sé að mæla árangurinn. Er þjóðin á réttri
Þröstur
Haraldsson
Hlutverk Lýðheilsustöðvar
er að skapa landsmönnum tækifæri til heilbrigðs lífs með því að
• efla þekkingu með þátttöku í rannsóknum og kennslu,
• fræða, í samstarfi eftir því sem við á, og þannig hafa áhrif á viðhorf og hegðun,
• vera stjórnvöldum til ráðgjafar og hafa þannig áhrif til að bæta aðstæður.
676 Læknablaðið 2005/91