Læknablaðið - 15.09.2005, Page 49
UMRÆÐA & FRÉTTIR / BERKLAVEIKI
Berklafaraldur á Hólum 1959
Þegar ég var héraðslæknir á Hofsósi á sjötta
áratugnum kom upp á Bændaskólanum á Hólum
sögulegur berklafaraldur á meðal nemenda skól-
ans og fleiri á staðnum sem seinna var rakinn til
nautgripa á skólabúinu.
Það var upphaf þess máls að hinn 1. febrúar
1959 kom til mín á stofuna starfsstúlka frá Hólum
og kvartaði um útbrot á fótleggjum. Stúlka þessi
var fædd og upp alin á bæ í Oslandshlíð. Við skoð-
un sá ég rauðleita þrymla framan á fótleggjum.
Þessu svipaði að nokkru til urticaria (ofsakláða) en
var aumt viðkomu og enginn kláði í því. Stúlkan
var ekki lasin að öðru leyti.
Mér datt strax í hug rósahnútar (erythema nod-
osum). Ég hafði aldrei séð það fyrirbrigði fyrr, en
heyrt því lýst og séð myndir af því. Rósahnútar
voru þá fyrst og fremst settir í samband við berkla-
smit þó að vitað væri að þeir gætu fylgt öðrum
kvillum.
Ég setti á hana berklapróf, en þá var almennt
notað Pirquet-próf. Hún svaraði jákvætt við prófið
og var því augljóslega um berklasmit að ræða. Við
almenna skoðun fann ég ekkert frekar. Ekkert sást
við gegnumlýsingu á lungum en gegnumlýsinga-
tæki voru til í læknisbústaðnum og eins aðstaða
til röntgenmyndatöku. Ég sendi stúlkuna því næst
á Kristneshæli til nánari greiningar og staðfesti
yfirlæknirinn þar greiningu mína og kvaðst sjá ein-
kenni um hilus adenitis eða eitlabólgu við lungu.
Þegar greiningin hafði verið staðfest lá næst
fyrir að kanna hvaðan smitið væri komið. Engin
saga var um berkla í heimahögum stúlkunnar
nema að móðir hennar hafði umgengist berkla-
sjúkling í æsku. Böndin bárust því að Hólum.
Hinn 16. febrúar fór ég svo upp að Hólum og
setti Pirquet-próf á allt það fólk sem ekki hafði
áður verið jákvætt við berklapróf og sömuleiðis
á foreldra og systur stúlkunnar. Á heimili hennar
reyndist enginn jákvæður nema móðir hennar, en
hún hafði eins og áður segir verið samvistum við
berklasjúkling í æsku. Á Hólum kom hins vegar í
ljós að 11 manns höfðu orðið jákvæðir síðan skóla-
skoðun hafði verið framkvæmd um haustið. Þar af
voru átta nemendur, ein starfsstúlka og tvö börn.
Hinn 20. febrúar gegnumlýsti ég alla sem já-
kvæðir höfðu verið og fjölskyldu stúlkunnar en
enginn reyndist með einkenni um lungnaberkla.
Um þetta leyti bárust mér fregnir af að einn skóla-
piltanna, sem átti heima norður í Þingeyjarsýslum,
hefði farið heim til sín um jólin en ekki komið til
baka. Hefði hann veikst af mislingum og síðan
fengið botnlangabólgu og verið skorinn upp á
Húsavík. Ég hafði samband við Daníel Daníelsson
á Húsavík og tjáði hann mér að þessi piltur hefði
verið skorinn vegna gruns um botnlangabólgu en
verið með miklar eitlabólgur á ileo-coecal stað
og verið grunsamlegur um berkla. Vefjarannsókn
staðfesti svo þennan grun. Þar sáust „berklabreyt-
ingar með ystingum og Langerhans frumum og í
lituðum sneiðum sáust sýrufastir stafir“ svo vitnað
sé í greinargerð landlæknis í heilbrigðisskýrslum
1959.
Þegar hér er komið sögu var ljóst orðið að
útbreitt berklasmit hafði átt sér stað í skólanum
en ekki vitað hvaðan það var komið. Enginn
þeirra 13 einstaklinga sem jákvæðir höfðu reynst
höfðu einkenni um lungnaberkla, þegar frá er talin
stúlkan sem fyrst greindist. Læknar Kristneshælis
töldu hana með hilus adenitis. Ég tók þá greiningu
með fyrirvara þó að ég hefði ekki hátt um það
því að mér fannst læknar í þá daga oft vera fljótir
að greina hilus adenitis, ef sjúklingurinn var með
jákvætt berklapróf, en enginn bólgublettur fannst í
lungum og ekki einkenni frá öðrum líffærum.
Hinn 22. mars gerði ég Sigurði Sigurðssyni
berklayfirlækni viðvart um stöðu mála. Gerði ég
honum svo skriflega grein fyrir gangi málanna
fram að þeim tíma. Um sama leyti endurtók ég
berklaprófin á fólkinu á Hólum og bættust þá fjórir
í hóp hinna jákvæðu.
Eftir þetta stjórnaði landlæknir rannsókninni.
Nú fóru böndin að berast að kúnum á staðnum.
Það var athyglisvert að enginn skyldi vera með
lungnaberkla af öllum þeim fjölda sem smitast
hafði. Þá voru ileo-coecal berklar sjaldgæfir á
íslandi og bentu óneitanlega til smits gegnum
fæðu. Sigurður Sigurðsson hafði nokkrum árum
áður birt ritgerð sína um berkla á íslandi. Hann
færði þar rök að því að kúaberklar (tbc.typus bov-
inus) væru ekki til á íslandi. Hins vegar voru þeir
vel þekktir í Danmörku. Árið áður höfðu danskir
menn unnið á Hólum meðal annars við gegningar í
fjósi. Vaknaði því spurning um hvort kýrnar hefðu
smitast af þessu fólki og síðan smitað frá sér gegn-
um mjólkina.
Um þessar mundir var héraðsdýralæknir á
Sauðárkróki Guðbrandur Hlíðar. Hann hafði
numið fræði sín í Danmörku. Ég hafði nú samband
Guðmundur
Helgi Þórðarson
Höfundur er fyrrum
héraðslæknir.
Læknablaðið 2005/91 685