Læknablaðið - 15.09.2005, Síða 53
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LANDSPÍTALINN
sé spurt „hvort læknastéttinni sé refsað harðar en
öðrum stéttum fyrir óhefðbundna eða nýja sýn á
LSH eða heilbrigðiskerfið“?
Nýr spítali
Stækkun Landspítalans hefur verið á döfinni allan
seinni helming síðustu aldar. Fyrir 30 árum var
gert samkomulag við Reykjavíkurborg um stækk-
un Landspítalalóðarinnar niður fyrir Hringbraut
og flutning götunnar. Þá var sett fram Weeks
áætlunin svokallaða um nýjar byggingar, rými
fyrir sjúklinga, rannsóknarstofur og vinnuað-
stöðu starfsmanna. Sem betur fer var ekki byggt
samkvæmt þeirri áætlun annað en K-byggingin
svokallaða og geðdeildin sem var pínd inn í þessar
hugmyndir hinna gamaldags ensku arkitekta. Þó
tókst að halda í tveggja manna stofur og nokk-
ur eins manns herbergi sem nú þykja sjálfsögð.
Aætlað byggingamagn skv. Weeks var í samræmi
við einhverja enska staðla sem taldir voru henta
Landspítalanum og átti að rúmast sitt hvoru
megin gömlu Hringbrautarinnar. Að sjálfsögðu
átti þetta að vera hátæknisjúkrahús sem hæfði sem
kennslu- og vísindastofnun, enda öllum ljóst að
Landspítalinn hafði verið stofnaður sem háskóla-
sjúkrahús. En gert var ráð fyrir að hin sjúkrahúsin
sem fyrir voru mundu halda áfram starfsemi með
nauðsynlegri hátækni og sjá um verulegan hluta af
sjúkrahússþjónustu landsins.
Þó að þeim sem aka nýju Hringbrautina sé ljóst
að lóðarskikinn milli brautanna sé ekki stór hefði
hann kannske dugað miðað við þær áætlanir sem
uppi voru. En öllum má ljóst vera að það er ger-
samlega út í hött að ætla að reyna að troða því
byggingamagni sem nú stendur til að reisa þarna
og á að verða eina sjúkrahús Reykvíkinga, jafnvel
þótt fengnir verði til okkar færustu arkitektar og
samstarfsaðilar sem þeir hafa valið sér.
Eins og oft vill verða eykst skilningur manna,
stjórnmálamanna sem annarra, á þörfum fyrir
fyrsta flokks heilbrigðisþjónustu þegar sjúkdómar
hitta þá fyrir, og þeir sjá þá fjármögnunarleiðir til
að þoka málum áfram. Nú þegar símagullið fer að
renna tala margir um hátæknisjúkrahús og apar
hver eftir öðrum án þessa gera sér grein fyrir að
allar nútímalækningar byggja á hátækni og sérstak-
lega þó á háþekkingu sem allir landsmenn verða
að fá að njóta. Forsenda þess að svo megi verða er
nauðsynleg samkeppni þar sem færustu læknar fá
að njóta sín en ekki aðeins einhverjir handtíndir af
misvitrum stjórnendum. Samkeppni milli spítala er
enn nauðsynlegri en samkeppni milli háskóla sem
nú er rómuð af sumum, að ekki sé talað um sam-
keppni milli banka.
Læknar taki að sér rekstur Borgarspítala
Stjórnunarvandi Landspítalans skapast fyrst og
fremst af einokunaraðstöðu hans og því að fram-
kvæmdastjórn spítalans telur að reka eigi hann
eins og einkafyrirtæki sem hún ráði og reki eftir
eigin geðþótta. Starfsmenn þora því ekki að hafa
uppi gagnrýni af ótta við að verða atvinnulausir og
sjúklingar verða að sætta sig við þá þjónustu sem
einokunarspítalinn býður. Þjónustan hefur að vísu
verið góð ef og þegar hún fæst, en gæti verið enn
betri með aðhaldi frá samkeppnisaðila.
Það er líka almannavarnamál að hafa fleiri en
eitt sjúkrahús í Reykjavík, svo að Reykvíkingar
verði ekki sjúkrahússlausir komi eitthvað fyrir á
þeim eina og þrönga stað þar sem nú er ætlunin að
byggja sjúkrahús. Það er of langt að flytja nokkur
hundruð manns til Akureyrar eða Skotlands komi
eitthvað fyrir Landspítalann. Jafnvel bilanir í tölvu-
kerfi eins og komið hafa fyrir að undanförnu geta
valdið svo mikilli truflun að spítalinn verði lítt
starfhæfur og er þá illt að hafa ekki í önnur hús að
venda. Og nú er jafnvel svo komið að heilbrigðis-
ráðherra kemur auga á að þörf sé fyrir fleiri spítala
og talar um verkaskiptingu milli Landspítala og
spítala í nágrannabyggðum.
Meginmál er að fleiri sjúkrahús séu rekin í
Reykjavík til að tryggja góða þjónustu við alla
landsmenn, framfarir og starfsmöguleika lækna.
Læknar þurfa því nú þegar að hefjast handa um
undirbúning sjúkrahússreksturs á eigin vegum eða
í samvinnu við einhverja fjárfesta. Eins og sakir
standa væri nærtækt að fá byggingu Borgarspítalans
í Fossvogi og stofna þar sjálfstæðan spítala og
semja við Tryggingastofnun um að hún kaupi þjón-
ustu af honum eins og Landspítalanum. Kæmi þá
gæluverkefni Landspítalans, DRG-kerfið, loks að
góðum notum til að verðleggja þjónustuna. Með
þessu móti mundi skapast fagleg samkeppni og
þjónusta við sjúklinga batna, starfsöryggi lækna
mundi aukast, stjórnunarvandi Landspítalans
leysast og draga mætti úr því byggingamagni sem
ætlunin er að reisa í þrengslunum við Hringbraut.
Með samkomulagi milli lækna spítalanna er auð-
velt að koma við nauðsynlegri verkaskiptingu og
samvinnu vegna sjaldgæfra sjúkdóma.
Heimildir
1. Þröstur Haraldsson. í hverju er stjórnunarvandinn fólginn?
Læknablaðið 2005; 91: 538-41.
2. Spítali í spennutreyju. Morgunblaðið 2005; 93:12.-16. júní.
3. Arsskýrslur Landspítalans 2000-2004. www4.landspitali.is/
4. www.landlaeknir.is/
5. www.vinnueftirlit.is/
Læknablaðið 2005/91 689