Fréttatíminn - 12.12.2014, Page 91
92 matur & vín Helgin 12.-14. desember 2014
Þ að voru Bretar sem fundu upp portvínið og kom ekki til af góðu því þeir neydd-
ust til að versla portúgölsk vín í
stað franskra þegar þeir áttu í
einu af sínum mörgu stríðum við
þá frönsku. Til þess að tryggja
gæði vínsins fyrir sjóferðina til
Bretlands tóku þeir upp á því að
blanda brandí út í vínið og viti
menn, vísir að portvíni varð til.
Hægt er að njóta drykkjarins allt
árið um kring, auðvitað, en það er
eitthvað sérstaklega jólalegt við
sætt portvín og fátt sem slær út
portara og piparkökur á jólalegu
síðkveldi.
Þrúgur portvíns eru ræktaðar
í hæðum Duoro-dalsins austan
við hafnarborgina Portó norðar-
lega í Portúgal en það er einmitt
frá þessari ágætu borg sem vínið
dregur nafn sitt. Portvín er í raun
rauðvín þar sem vínanda er bætt
út í vínsafann. Þá hættir sykurinn
að gerjast og þrúgurnar halda eftir
náttúrulegum sætleika sínum sem
gerir vínið bæði alkóhólríkt eða
styrkt og náttúrulega sætt. Ekki
er óalgengt að portvín séu í kring-
um 20% að styrkleika.
Flokka má portvín í nokkrar
tegundir. Hægt er að fá hvítt port-
vín, jafnvel rósaportvín en fyrst og
fremst skiptast þau í tvennt: Ruby
og Tawny. Í grunninn eru það
sömu vínin en munurinn liggur í
því að Ruby fær að eldast í flösk-
unni á meðan Tawny fær að dúlla
sér í langan, oft heillangan, tíma í
trétunnu.
Vegna þess hve Ruby fer fljótt
á flösku er yfirleitt um að ræða
ávaxtarík vín sem virka dálítið
eins og sæt rauðvín. Til að flækja
málin enn frekar er Ruby flokkað
í þrjá undirflokka, þar sem sjálft
„Ruby“ er algengast og jafnframt
ódýrast og er blanda af mörgum
árgöngum en svo er það „Late
bottle vintage“ (LBV) sem er af
ákveðnum árgangi en ekki endi-
lega mjög góðum en geta verið
góð kaup, og að lokum „Vintage“
sem er fínasta tegundin og er að-
eins framleitt þegar aðstæður hafa
verið eins og best gerist.
Ruby-stíllinn er ágætis eftirrétt-
arvín, sérstaklega með ávaxtakök-
um og öðrum ávaxtaríkum eftir-
Órjúfanlegur hluti
af jólunum
Portvín er ekki
bara portvín
Portvínið er að komast í tísku. Á veitingastaðnum Kol er það nú
borið fram kælt í venjulegu vínglasi og parað með alls konar
mat. Allt frá hvítum portara með lifrarmús og tvíreyktu hangi-
kjöti yfir í rauðan vintage portara með hrefnusteik eða rauðu
kjöti. Þetta er vel þess virði að prófa.
Portvín
Sandeman Founders
Reserve
Styrkleiki: 20%
Verð í vínbúðunum:
5.999 kr.
Bragðmikið og þrosk-
að. Dökkur ávöxtur
með smá kanel,
mjúkri fyllingu og
þroskuðum tann-
ínum. Piparkeimur í
löngu og þægilegu
eftir-
bragði.
Cockburn’s Fine Ruby
Styrkleiki: 20%
Verð í vínbúðunum:
4.099 kr.
Kirsuberjarautt. Mjúk
meðalfylling, sætt, fersk
sýra. Rauð og dökk ber,
laufkrydd.
Cockburn’s Special
Reserve
Styrkleiki: 20%
Verð í vínbúðunum:
4.499 kr.
Dökkkirsuberjarautt.
Meðalfylling, sætt, mild
sýra, mjúk tannín. Dökk
ber, sólber, lyng, minta,
lakkrís.
Cockburn’s 10 ára Tawny
Styrkleiki: 20%
Verð í vínbúðunum: 3.990
Rafrautt. Mjúk fylling, sætt,
mild tannín. Rauð ber,
fíkjur, síróp, hnetur. Langt
heitt eftirbragð.
réttum en þessi stíll passar líka
sætunnar vegna ágætlega með
fituríkum föstum ostum.
Í Tawny-stílnum fær vínið, eins
og áður sagði, að eldast og taka sig
á tunnum – með tímanum verða
þau brúnleit. Tawny hefur líka
sína undirflokka sem byggjast á
aldri vínsins; 10 ára, 20 ára, 30 ára
og jafnvel 40 ára. Þó er ekki átt
við að vínin séu nákvæmlega svo
gömul heldur er verið að vísa til
þess að meðalaldur vínsins sem
blandað er saman er nálægt því.
10-20 ára Tawny-vín eru oft góð
kaup. Að lokum er svo hægt að fá
alvöru árgangsvín sem heitir þá
„Colheita“ og þá er ekki talað um
aldur vínsins á flöskunni heldur
árganginn.
Tawny eru fínleg og góð, bæði
sem fordrykkur og eftirréttarvín.
Þau eru góð með kröftugum ostum
eins og gráðosti og stilton-blámyglu-
osti. Líka henta þau með súkkulaði
og þess konar eftirréttum og eru
algerlega ómissandi með rjúkandi
heitum piparkökum beint úr ofn-
inum. Ekta jólastemning.
Síðan má ekki gleyma að prófa
sig áfram með að para portvín með
aðal máltíðinni t.d. rauðu kjöti.
Berðu það þá fram í stóru vínglasi
svo lyktin nái að njóta sín og hafðu
það kælt, jafnvel niður í 6-8 gráður.
Opið portvín má vel geyma. Gott
er að setja þau í kælinn og setja
tappann í og þá duga Ruby-vín í
minnst 2 vikur og Tawny-vín vel
í 4 vikur.