Fréttatíminn - 12.12.2014, Side 93
94 matur & vín Helgin 12.-14. desember 2014
Muga reserva
Gerð: Rauðvín
Uppruni: Spánn 2010
Styrkleiki: 14%
Þrúga: Tempranillo og garnacha
Verð í Vínbúðunum: Kr. 3.999
Þetta vín er einn af rollsunum frá Rioja.
Sumir árgangar af þessu víni eru á við
það besta sem gerist. 2010 árgangurinn
bankar á þær dyr en kemst ekki alveg inn.
Engu að síður frábært vín og kjarakaup
fyrir þá sem vilja gera vel við sig um jólin.
Gott jafnvægi, mikill karakter og mýkt.
Gott með jólavillibráðinni.
Alamos Merlot
Gerð: Rauðvín
Uppruni: Argentína, 2013
Styrkleiki: 13,5%
Þrúga: Merlot
Verð í Vínbúðunum: Kr. 2.248
Ágætis merlot frá Mendoza í Argentínu.
Ágætis jafnvægi, örlítið sultað berjabragð
og plóma. Þétt vín og í grófari kantinum en
kemur vel inn í lokin með eikartónum. Eitt
af þessum merlot-vínum sem henta best
með grófari mat.
Cono Sur Pinot Noir Reserva Especial
Gerð: Rauðvín
Uppruni: Chile, 2012
Styrkleiki: 14%
Þrúga: Pinot Noir
Verð í Vínbúðunum: Kr. 2.495
Chilemenn eru hreint ekki svo slæmir í pi-
not noir-gerð. Þetta þvengmjóa land virðist
geta gefið af sér með sóma ýmsar þrúgur. Í
þessu víni hafa þeir hitt á milt, vinalegt og
bragðmikið pinot. Gott að bera það fram
örlítið kælt og með léttari mat, áramóta-
kalkúninum eða ofnbakaða laxinum.
Rauðvín eiga að sjálfsögðu við allan ársins
hring en það er eitthvað sérstaklega rauðvíns-
legt við jólin. Þá leyfum við okkur aðeins
meiri lúxus í mat og drykk. Áfengis-
neysla á að sjálfsögðu að vera
hófleg yfir hátíðarnar en gott
vín með jólamatnum getur lyft
máltíðinni á allt annað plan.
Pörun matar og víns getur
verið heilmikill frumskógur og
hægt að beita ýmsum aðferðum og
ein sú algengasta er að para þrúguna
við matinn og þá er gott að vita eitthvað um
þrúgurnar og við hvaða mat þær henta.
Rauð Jól
Cabernet Sauvignon
Vín úr þessari þrúgu hafa yfirleitt frekar
mikla fyllingu og töluverð tannín. Gott að
para með þyngri kjötréttum og flóknari
réttum með fituríkara kjöti.
Grenache
Með vínum úr þessari þrúgu passar vel
að hafa matinn grófan og bragðmikinn
eins og villibráð eða bragðmikla pottrétti.
Pinot Noir
Vandmeðfarin þrúga sem passar vel með
léttari kjötréttum eins og kjúlla og kal-
kúni en líka með laxi.
Malbec
Nánast samnefnari með argentínskum
vínum. Argentínumenn eru líka frægir
fyrir nautakjöt og vita hvað þeir syngja
því malbec og grilluð nautasteik eru full-
komið par.
Merlot
Fjölhæf þrúga sem í sínum léttari út-
gáfum passar vel með grilluðum kjúlla og
í tannínríkari útgáfu með meiri fyllingu
hentar vel með vetrarlegum pottréttum
og jafnvel léttari villibráð.
Syrah/Shiraz
Þessi þrúga skilar af sér miklum og oft
krydduðum vínum. Grillmatur og krydd-
aðir réttir, jafnvel sterkir henta vel hér.
Tempranillo
Uppáhaldsþrúga margra Íslendinga í
gegnum Rioja-vínin. Góð með bragð-
milklum grænmetisréttum og sunnudags-
lambinu.
Piccini Memoro Vintage 2010
Gerð: Rauðvín
Uppruni: Ítalía, 2010
Styrkleiki: 14%
Verð í Vínbúðunum: Kr. 3.399
Piccini-vínin virðast fara vel í landann því
þau eru ein af mest seldu vínunum í ÁTVR.
Þessa útgáfu af Memoro víninu þeirra kalla
þeir vintage. Það ber karektereinkenni
litla bróður, berjað og með vanillukeim. Þú
færð samt heilmikið fyrir verðmismuninn.
Það er þyngra og þroskaðra og í frábæru
jafnvægi. Flott vín með léttari villibráð sér-
staklega ef berjasjósa er með í spilinu.
Nottage Hill Cabernet Shiraz
Gerð: Rauðvín
Uppruni: Ástralía, 2012
Styrkleiki: 14%
Þrúga: Cabernet og Shiraz
Verð í Vínbúðunum: Kr. 2.399
Shiraz-vín eru ekki fyrir alla og ágætis
hugmynd hjá Hardy’s-mönnum að blanda
cabernet og shiraz saman. Útkoman er
frekar stórt vín og ágengt með krydduðum
tónum og plómu. Þurrt og tannínríkt en í
furðulega fínu jafnvægi miðað við þrúgu-
blönduna. Hentar með ýmsum mat allt frá
léttari kjötmeti yfir í grillsteik og jafnvel
smá spæsí bbq.
Altos Crianza
Gerð: Rauðvín
Uppruni: Spánn, 2010
Styrkleiki: 13,5%
Þrúga: Tempranillo
Verð í Vínbúðunum: Kr. 2.295
Ef þú ert mikið fyrir Rijo-vín og tempranillo
þrúguna skaltu prófa þetta vín. Það hefur
allt það besta sem einkennir svæðið. Eikin
og vanillan og mýktin er frábær og örlítil
sveit sem gerir það áhugavert en það
er ekki ágengt og krefjandi bara svona
mátulegt. Heilmikið í þessari flösku fyrir
peninginn. Spennandi að prófa með osta-
bakkanum.
Montalto Ammasso
Gerð: Rauðvín
Uppruni: Ítalía, 2012
Styrkleiki: 14%
Verð í Vínbúðunum: Kr. 2.999
Sikileyjarvín framleitt með svipuðum
hætti og Amarone vín eða frekar eins og
Valpolicella Ripasso vín þar sem notast er
að hluta við þurrkaðar þrúgur. Það hleypir
áfengismagninu og sætunni upp. Þetta
vín er líka dálítið sultað en skemmtilega
flókið. Það er nauðsynlegt að drekka það
aðeins kælt.
Albert Bichot Heritage 1831 Pinot Noir
Gerð: Rauðvín
Uppruni: Frakkland, 2012
Styrkleiki: 12,5%
Þrúga: Pinot Noir
Verð í Vínbúðunum: Kr. 2.898
Hér er á ferðinni pinot frá heimkynnum
þeirrar ágætu þrúgu í Búrgúndí. Þetta
er fágað vín með mildum berjatónum og
ferskleika. Þetta er prýðis upphafspunktur
fyrir þá sem vilja kynna sér betur Búrgúndí
rauðvín. Eflaust ágætis ostavín og eins og
flest pinot gengur prýðilega með ljósu keti.
sælar
daðar
Vin
van
www.forlagid.is – alvöru bókabúð á netinu
Metsölulisti
Eymundsson
HANDBÆKUR/FRÆÐIBÆKUR/
ÆVISÖGUR. VIKA 49
1.
f
TILNEFNING
Metsölulisti
Eymundsson
HANDBÆKUR/FRÆÐIBÆKUR/
ÆVISÖGUR. VIKA 49
2.
Fyrsta
Orðbr
agð
s-
þáttaröðin
fylgir
á
DVD
!
Metsölulisti
Eymundsson
HANDBÆKUR/FRÆÐIBÆKUR/
ÆVISÖGUR. VIKA 49
3.