Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2006, Blaðsíða 7

Læknablaðið - 15.01.2006, Blaðsíða 7
RITSTJÓRNARGREINAR Um þagnarskyldu lækna Læknisefnum er innrætt frá fyrstu tíð að gæta ítrustu þagmælsku þegar málefni sjúklinga ber á góma; ekki megi ræða persónuleg málefni sjúk- lings nema í hans þágu og við þá sem vinna fyrir sjúklinginn og hafa umboð hans til þess. Þetta er góð regla sett fram til að tryggja trúnað sem ríkja þarf milli sjúklings og læknis og að læknirinn hafi alltaf þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að veita viðeigandi hjálp. Þannig er reglan ekki eign læknisins eða skjöldur, heldur sjúklingsins og alfar- ið sett í hans þágu. Þagnarskyldan hefur fylgt læknum svo lengi sem þeir þekkja sögu sína. Hippókratesareiðurinn, sem talinn er vafalítið um 2400 ára, segir: „Á allt það, sem mér kann að bera fyrir augu og að eyrum, þá er ég gegni starfi mínu, mun ég líta sem leynd- armál og þegja yfir, sama máli gegnir um það, er ég kann að frétta um lifnað annarra, þá er ég er utan starfs." (1) Codex ethicus íslenskra lækna segir: „Lækni er skylt að forðast af fremsta megni að hafast nokkuð að, er veikt gæti trúnaðarsam- band hans við sjúklinga sína. Lækni er óheimilt að skýra frá heilsufari, sjúkdómsgreiningu, horfum, meðferð eða öðrum einkamálum sjúklinga eða afhenda gögn með upplýsingum, sem sjúklingar hafa skýrt honum frá eða hann hefur með öðrum hætti fengið vitneskju um í starfi sínu, nerna með samþykki sjúklings, eftir úrskurði dómara eða samkvæmt lagaboði. Lækni ber að áminna sam- starfsfólk og starfslið sitt um að gæta með sama hætti fyllstu þagmælsku um allt er varðar sjúkling hans. Lækni hlýðir ekki fyrir dómi, að leggja fram sjúkraskýrslur máli sínu til sönnunar án úrskurðar dómara. Sjúklingur getur hins vegar krafist þess, að slfk skýrsla um hann sé lögð fram.“ (2) Alþjóðafélag lækna, World Medical Association (WMA), hefur við ýmis tækifæri ályktað um þessa hlið læknisstarfsins og telur hana augljóslega eina af veigamestu grundvallarsetningum siðareglna lækna. I Genfarheiti lækna segir: „Ég mun virða þau leyndarmál, sem mér er trúað fyrir, jafnvel eftir að sjúklingur er látinn." (3) f alþjóðlegum siðareglum lækna segir: „Lækni ber að viðhalda algerri leynd um allt það, sem hann veil um sjúk- ling sinn, jafnvel eftir að sjúklingur er látinn.“ Lissabonyfirlýsingin segir: „Sjúklingur á þann rétt, að vænta þess að læknir hans virði trúnað urn allar upplýsingar er varða læknisfræðileg atriði og einkahagi." Á þessi sjónarmið reyndi fyrir fáum misserum þegar umræður um miðlægan gagnagrunn á heil- brigðissviði stóðu sem hæst. Ein höfuðforsenda fyrir málatilbúnaði Læknafélags íslands fyrir því að WMA tæki lög um gagnagrunn á heilbrigðis- sviði til umræðu var mikilvægi þess að ekki yrði rofinn trúnaður millum læknis og sjúklings, þannig að trúnaðarsambandið skaðaðist og spillti þann- ig hagsmunum sjúklingsins. Hvað sem mönnum fannst um ágæti umræddrar hugmyndar um gagna- grunn og framkvæmd hennar voru menn sammála um að þetta álitaefni væri nægjanlega alvarlegt til að fjalla um það og jafnvel álykta, eins og síðar varð (4). Löggjafinn hefur virt þagnarskyldu lækna á svip- aðan hátt og læknar sjálfir. Lagaumhverfi þagn- arskyldunnar virðist að inntaki endurspegla þann skilning að mikilvægi hennar felist einmitt í þeirri staðreynd að ekki megi fæla sjúklinga frá því að leita sér læknishjálpar vegna hættu á að læknirinn spilli einkahögum þeirra með lausmælgi. Um þetta er fjallað á öðrum stað hér í Læknablaðinu (5). Nú er sótt að þessari þagnarskyldu. Á nýlegu málþingi í Norræna húsinu um samslarf og sam- skipti lögreglu og heilbrigðisþjónustu í tengslum við fíkniefni og Læknafélag fslands átti aðild að komu fram efasemdir um að hin lögboðna skylda lækna ætti að vera svo fortakslaus eins og lög byðu eða gildandi lög skýrð á þann hátt sem nú væri almennt gert. Ljóst er að læknar í fremstu víglínu hafa ekki allir sama skilning á skyldum sínum varðandi einkahagi þeirra sem til bráðamóttöku leita. Annars vegar er sjónarmið þess sem telur að læknir eigi að láta sig engu varða hvað sjúklingur- inn (glæpamaðurinn) aðhefst fyrir og eftir veitta læknishjálp, og hins vegar sjónarmið þess sem telur að þagnarskyldan eigi ekki að hindra lækni í að koma í veg fyrir frekari glæpi og stuðla að björgun mannslífa. Þetta eru auðvitað virðingarverð úrlausnar- efni sem krefjast alvarlegrar íhugunar og umræðu í hópi lækna. Því er frekari nauðsyn hennar að lögreglan virðist fremur hallast að eftirgjöf hvað varðar lagaskylduna, þó samhliða þeirri kröfu sé sýndur skilningur og virðing fyrir þessari alda- gömlu reglu. Ég tel að læknar eigi formlega að hefja umræðu um þagnarskylduna og hefur stjórn Læknafélags íslands beint því til Siðfræðiráðs félagsins að hafa forgöngu í því máli. Sigurbjörn Sveinsson Heimildir 1. Steffensen V. Hippókrates faðir læknisfræðinnar, Reykjavík, Bókaútgáfan Norðri 1945. 2. Læknafélag íslands, www. lis.is, Codex Ethicus - Siðareglur Læknafélags íslands, 13. gr. 3. Bjarnason Örn. Siðfræði og siðamál lækna, Iðunn og LÍ og LR, Reykjavík 1991:189. 4. The World Medical Association Decleration on Ethical Considerations Regarding Health Data- bases, adopted by the WMA General Assembly, Washington DC 2002. 5. Læknablaðið 2006; 92: 39- 41. Höfundur er heimilislæknir og formaður Læknafélags íslands. Læknablaðið 2006/92 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.