Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2006, Blaðsíða 9

Læknablaðið - 15.01.2006, Blaðsíða 9
RITSTJÚRNARGREINAR Á tímamótum Þroski einstaklings ræðst öðru fremur af þeirri reynslu sem hann öðlast á lífsleiðinni og því, hvern- ig honum tekst að draga lærdóm af þeirri reynslu. Á tímamótum staldra menn við og líta um öxl. Rifja upp það sem á dagana hefur drifið og reyna að draga af því lærdóm, ef það má verða til þess að auka þroska þeirra og auka færni í að takast á við ný viðfangsefni. Á tímamótum gefst tækifæri til þessarar sjálfsskoðunar sem krefst bæði heiðar- leika og sjálfsgagnrýni. Þegar vel tekst lil verður slíkt uppgjör til þess að leggja grunn að framtíðar- áformum, uppbyggingu og auknum framförum. Án þessa uppgjörs verður stöðnun. Læknar standa á tímamótum í mörgum skiln- ingi um þessi áramót. Faglega tökumst við læknar sífellt á við sér- hæfðari verkefni sem varða líf og heilsu skjólstæð- inga okkar. Á tímum upplýsingamiðlunar verða læknar að gæta þess að tapa ekki stöðu sinni sem sérfræðingar á sviði heilbrigðisþjónustu bæði í samskiptum við sjúklinga og heilbrigðisyfirvöld. Fagmennska í læknisfræði tryggir öðru fremur færni stéttarinnar og trúverðugleika. I samræmi við Codex Ethicus verða hagsmunir skjólstæðinga okkar ávallt að vega þyngra en aðrir hagsmunir. Sparnaður, aðhald eða bágar efnahagslegar for- sendur mega ekki rýra læknisfræðilega þjónustu sem sjúklingum stendur til boða. Skottulækningar eru vaxandi þjóðfélagsvandi sem birtast meðal annars í skrumi þar sem læknisfræðileg hugtök eru notuð af fullkomnu ábyrgðarleysi til þess að hafa fé af þeim sem veikir eru fyrir. Læknar bera samfé- lagslega ábyrgð á því að vara við slíkri starfsemi og koma í veg fyrir hana. Læknar verða að nýta sérþekkingu sína til þess að verða leiðandi í stefnumótun heilbrigði- skerfisins. Ákvarðanir um markmið og leiðir eru alltof oft teknar út frá forsendum stjórnmálanna án þess að fagleg rök fái þar áheyrn. Engum ætti þó að dyljast að læknisfræðileg sjónarmið ættu að vera þar í fyrirrúmi. Dæmi um þetta er það hversu litlum fjármunum er varið til forvarna og fyrir- byggjandi læknisfræði. Stjórnvöld hafa rekið hafta- stefnu og skömmtunarkerfi í heilbrigðisþjónustu, en það er hugmyndafræði sem á ættir að rekja til úrelts hagkerfis austantjaldslanda. Sérfræðingum í heilsugæslu er bannað að reka eigin læknastof- ur, án þess að fyrir því séu nokkur sérstök rök. Sjálfstætt starfandi sérfræðingum er gert að taka á sig skuldbindingar Tryggingastofnunar ríkisins síðustu vikur ársins þegar verkeiningar klárast. Þó hafa skýrslur Ríkisendurskoðunar sýnt að starf- semi einkarekinna læknastofa er bæði ódýrari, hagkvæmari og skilvirkari en aðrir valkostir í heil- brigðisþjónustu. Læknablaðið stendur á mikilvægum tímamót- um. í tíð fráfarandi ritstjórnar hefur blaðið vaxið og dafnað bæði að ytra umbúnaði og innihaldi. Vefútgáfa blaðsins frá árinu 2000 telst til merkra framfaraspora sem hefur aukið aðgengi að efni blaðsins og auðveldað leit í eldri árgöngum. Á 90. aldursári Læknablaðsins náðist sá mikilvægi áfangi að fá blaðið skráð í Index Medicus. Með því fylgir viðurkenning á þeim háa gæðastaðli sem blaðið heldur uppi. Um leið eru útdrættir vísinda- greina sýnilegir á alþjóðlegum leitarvélum netsins og útbreiðsla fræðigreina margfaldast. Þar með opnast gluggi að alþjóðlegu vísindasamfélagi þar sem íslenskir vísindamenn eru virkir þáttlakendur. Niðurstöður sem birtar sem hafa verið hafa vakið mikla athygli fyrir fræðilegt innihald og gæði. Ný ritstjórn Læknablaðsins byggir starf sitt á þeim grunni sem lagður hefur verið. Áfram verður unnið að því að auka veg og vanda blaðsins, bæta faglega umræðu og fræðilegt innihald. Á þessum tímamótum er mikilvægt að gera upp við fortíðina og horfa björtum augum til framtíðar. Karl Andersen Höfundur er hjartalæknir og í ritstjórn Læknablaðsins. Læknablaðið 2006/92 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.