Læknablaðið - 15.01.2006, Síða 9
RITSTJÚRNARGREINAR
Á tímamótum
Þroski einstaklings ræðst öðru fremur af þeirri
reynslu sem hann öðlast á lífsleiðinni og því, hvern-
ig honum tekst að draga lærdóm af þeirri reynslu.
Á tímamótum staldra menn við og líta um öxl.
Rifja upp það sem á dagana hefur drifið og reyna
að draga af því lærdóm, ef það má verða til þess
að auka þroska þeirra og auka færni í að takast á
við ný viðfangsefni. Á tímamótum gefst tækifæri
til þessarar sjálfsskoðunar sem krefst bæði heiðar-
leika og sjálfsgagnrýni. Þegar vel tekst lil verður
slíkt uppgjör til þess að leggja grunn að framtíðar-
áformum, uppbyggingu og auknum framförum.
Án þessa uppgjörs verður stöðnun.
Læknar standa á tímamótum í mörgum skiln-
ingi um þessi áramót.
Faglega tökumst við læknar sífellt á við sér-
hæfðari verkefni sem varða líf og heilsu skjólstæð-
inga okkar. Á tímum upplýsingamiðlunar verða
læknar að gæta þess að tapa ekki stöðu sinni sem
sérfræðingar á sviði heilbrigðisþjónustu bæði í
samskiptum við sjúklinga og heilbrigðisyfirvöld.
Fagmennska í læknisfræði tryggir öðru fremur
færni stéttarinnar og trúverðugleika. I samræmi
við Codex Ethicus verða hagsmunir skjólstæðinga
okkar ávallt að vega þyngra en aðrir hagsmunir.
Sparnaður, aðhald eða bágar efnahagslegar for-
sendur mega ekki rýra læknisfræðilega þjónustu
sem sjúklingum stendur til boða. Skottulækningar
eru vaxandi þjóðfélagsvandi sem birtast meðal
annars í skrumi þar sem læknisfræðileg hugtök eru
notuð af fullkomnu ábyrgðarleysi til þess að hafa
fé af þeim sem veikir eru fyrir. Læknar bera samfé-
lagslega ábyrgð á því að vara við slíkri starfsemi og
koma í veg fyrir hana.
Læknar verða að nýta sérþekkingu sína til
þess að verða leiðandi í stefnumótun heilbrigði-
skerfisins. Ákvarðanir um markmið og leiðir eru
alltof oft teknar út frá forsendum stjórnmálanna
án þess að fagleg rök fái þar áheyrn. Engum ætti
þó að dyljast að læknisfræðileg sjónarmið ættu að
vera þar í fyrirrúmi. Dæmi um þetta er það hversu
litlum fjármunum er varið til forvarna og fyrir-
byggjandi læknisfræði. Stjórnvöld hafa rekið hafta-
stefnu og skömmtunarkerfi í heilbrigðisþjónustu,
en það er hugmyndafræði sem á ættir að rekja til
úrelts hagkerfis austantjaldslanda. Sérfræðingum
í heilsugæslu er bannað að reka eigin læknastof-
ur, án þess að fyrir því séu nokkur sérstök rök.
Sjálfstætt starfandi sérfræðingum er gert að taka
á sig skuldbindingar Tryggingastofnunar ríkisins
síðustu vikur ársins þegar verkeiningar klárast.
Þó hafa skýrslur Ríkisendurskoðunar sýnt að starf-
semi einkarekinna læknastofa er bæði ódýrari,
hagkvæmari og skilvirkari en aðrir valkostir í heil-
brigðisþjónustu.
Læknablaðið stendur á mikilvægum tímamót-
um. í tíð fráfarandi ritstjórnar hefur blaðið vaxið
og dafnað bæði að ytra umbúnaði og innihaldi.
Vefútgáfa blaðsins frá árinu 2000 telst til merkra
framfaraspora sem hefur aukið aðgengi að efni
blaðsins og auðveldað leit í eldri árgöngum. Á
90. aldursári Læknablaðsins náðist sá mikilvægi
áfangi að fá blaðið skráð í Index Medicus. Með
því fylgir viðurkenning á þeim háa gæðastaðli sem
blaðið heldur uppi. Um leið eru útdrættir vísinda-
greina sýnilegir á alþjóðlegum leitarvélum netsins
og útbreiðsla fræðigreina margfaldast. Þar með
opnast gluggi að alþjóðlegu vísindasamfélagi þar
sem íslenskir vísindamenn eru virkir þáttlakendur.
Niðurstöður sem birtar sem hafa verið hafa vakið
mikla athygli fyrir fræðilegt innihald og gæði. Ný
ritstjórn Læknablaðsins byggir starf sitt á þeim
grunni sem lagður hefur verið. Áfram verður
unnið að því að auka veg og vanda blaðsins, bæta
faglega umræðu og fræðilegt innihald. Á þessum
tímamótum er mikilvægt að gera upp við fortíðina
og horfa björtum augum til framtíðar.
Karl Andersen
Höfundur er hjartalæknir
og í ritstjórn Læknablaðsins.
Læknablaðið 2006/92 9