Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2006, Blaðsíða 21

Læknablaðið - 15.01.2006, Blaðsíða 21
FRÆÐIGREINAR / HRINGORMAR Hringormar berast í fólk á íslandi við neyslu á lítið elduðum fiski Ágrip Karl Skírnisson Greint er frá tveimur tilfellum hringormasmits í dýrafræðingur fólki hér á landi. Tegundin Pseudoterranova dec- ipiens fannst í koki tveggja einstaklinga sem neytt höfðu illa hitaðra rétta úr ferskum steinbít firnm og sex dögum áður. Priðja stigs lirfur upprunnar úr fiskholdinu höfðu í báðum tilvikum þroskast upp á 4. stig á þeim tíma sem liðinn var frá smitun. I fyrra tilvikinu vaknaði ungur karlmaður við að ormur var að hreyfa sig í koki og í hinu fann ung kona fyrir ertingu í hálsi. Þegar hún hóstaði barst lirfan upp í kok. Lirfur hringormanna Pseudoterranova decipiens og Anisakis simplex eru algengar í fisk- um við íslandsstrendur. Menn eru ekki náttúru- legir lokahýslar en hringormar sent koma úr fiski geta lifað í fólki og valdið sjúkdómi. Erlendis er Anisakis simplex mun algengari sjúkdómsvaldur og oftast heldur illskeyttari en Pseudoterranova decipiens. Hefðbundnar matreiðsluaðferðir hér á landi sem fela í sér suðu eða eldun á ferskum fiski upp fyrir 70°C hafa að líkindum að mestu komið í veg smitun manna. Hætta er þó á að tilfellum geti fjölgað hér á landi aukist neysla á hráum fiski og hráum hrognum eða fiskréttum sem ekki hafa verið hitaðir eða frystir nægjanlega lengi til að drepa í þeim hringorma. Inngangur Tilraunastöð Háskóla íslands í meinafræði að Keldum, 112 Reykjavík. Fyrirspurnir og bréfaskipti: Karl Skímisson, Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum, 112 Reykjavík. karlsk@hi.is Lykilorð: Pseudoterranova decipiens, fjórða síigs lirfa, maður, kok, ísland. Lirfur nokkurra þráðormategunda sem iðulega sjást í innyflum og í holdi sjávarfiska hér við land eru nefndir hringormar en fullorðnir lifa þeir annaðhvorl í maga sela eða tannhvala sem eru náttúrulegir lokahýslar þessara orma. Einkum tvær tegundanna; Pseudoterranova decipiens og Anisakis simplex, eru þekktar af því að geta lifað í fólki. Sjúkdómurinn sem þær valda er nefndur anisakidosis en ormarnir ná aldrei fullum þroska í mönnurn þótt þeir geti stundum lifað í þeim mán- uðum saman (1-4). Erlendis eru árlega greind fjöl- mörg tilfelli þar sem fólk hefur fengið í sig lifandi hringornta úr sjávarfiskunt. Flest tilfellin koma frá löndum þar sem hefð er fyrir því að borða hráan eða hálfhráan fisk eins og til dæmis í Japan þar sem um 1000 tilfelli eru greind á hverju ári. í langflestum tilvikum eru um að ræða tegundina Anisakis simplex (5). ENGLISH SUMMARY Skírnisson K Pseudoterranova decipiens (Nematoda, Anisakidae) iarvae reported from humans in lceland after consumption of insufficiently cooked fish Læknablaðið 2006; 92:21-5 Recently, two human cases of Pseudoterranova decipiens nematode larvae were confirmed in lceland. In each case a larva was found in the throat five and six days after the consumption of insufficiently cooked filets of the common catfish Anarhicas lupus that were bought fresh in a fish store. In both cases the larva had already developed from 3" to the 4,h stage during the time of infection. In the former case a young male woke up in the morning as he noticed a larva crawling around in his throat. In the latter case a young woman coughed up the larva after intense itching in her throat. Anisakid larva of Pseudoterranova decipiens and Anisakis simplex are common in fish around lceland. Both are known as human pathogens but usually Anisakis simplex causes more severe symptoms and is more commonly found in human cases than Pseudoterranova decipiens. Traditional cooking of fish in lceland by boiling or thorough frying before consumption is believed to prevent human anisakidosis in lceland. However, increased consumption of fresh or poorly heated fish and fish products might result in increased anisakidosis cases in lceland. Key words: Pseudoterranova decipiens, fourth stage larvae, human infection, throat, lceland. Correspondence: Karl Skírnisson, karlsk@hi.is Engar öruggar heimildir eru fyrirliggjandi um að íslendingar hafi smitast af hringormum. Mark- mið greinarinnar er að greina frá tveimur nýlegum hringormatilfellum hér á landi í fólki, gera grein fyrir lífsferlum og líffræði hringorma og vara við hættunni sem stafað getur af því að neyta hrárra eða lítið hitaðra hringormasýktra sjávarafurða. Um sýkingarform, tegundir og lífsferla hring- orma Gerður er greinarmunur á þremum sýkingar- formum af völdum hringorma í mönnum (1-3): Læknablaðið 2006/92 21
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.