Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.01.2006, Side 13

Læknablaðið - 15.01.2006, Side 13
FRÆÐIGREINAR / MAGABOLSBÓLGA Magabolsbólga - Helicobacter Pylori — Gastrin Fjölnir Elvarsson1 LÆKNIR Nick Cariglia2 YFIRLÆKNIR Ingi Þór Hauksson3 LÆKNIR Þorgeir Þorgeirsson4 MEINAFRÆÐINGUR 'Lyflækningadeild og 2speglunardeild FSA, 3FSA, 4FSA. Fyrirspurnir og bréfaskipti: Nick Cariglia, speglunardeild FSA, nick@fsa.is Lykilorð: magabolsbólga, Helicobacter pylori, salt- sýruvaki, saltsýrufrumu- mótefnavaki. Ágrip Tilgangur: Magabolsbólga er algeng greining og erlendar rannsóknir hafa sýnt að um 25% sjúk- linga sem fara í magaspeglun fái þá greiningu. Markmið rannsóknar var að greina áhættuþætti fyrir magabolsbólgu hjá sjúklingum sem höfðu fengið slíka greiningu eftir vefjasýnatöku úr maga og tengsl þeirra á slímhúð magabols. Efniviður og aðferðir: Um er að ræða afturvirka rannsókn. Sjúklingar voru valdir inn í rannsókn- ina úr tölvuskrá vefjasýna sem komu á árunum 1994-98 á meinafræðideild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Um var að ræða vefjasýni frá maga- bol. Þurftu sýnin að uppfylla greininguna lang- vinn bólga samkvæmt Lykilbók Snowmed P-1340 T-63500 M (M, morphology) eða númer 40000, 42100, 43000, 58000, 58010, 73320, auk vefjaskil- merkja Sydney. Sýni frá 172 sjúklingum uppfylltu ofangreind skilyrði. Sjúklingar skiluðu einnig sýni í blóðrannsókn til ýmissa mælinga auk öndunar- sýnis (urea breath test) til mælingar á Helicobacter pylori (//. pylori) stöðu. Niðurstöður: Samtals voru 108 sjúklingar í rann- sókninni. Meðalaldur var 71 ár (29-99 ára), karlar voru 57%. Algengasti áhættuþátturinn var H. pylori eða 39%. Nokkur fylgni er á milli bráðrar (active) bólgu og að vera H. pylori jákvæður, einkum ef einungis er til staðar langvinn (chronic) rnaga- bólga án visnunar (atrophy) eða vefjaummyndun (metaplasia intestinalis). Magavisnun er marktækt meiri ef til staðar er saltsýrufrumumótefni (parietal cell antibody). Engin tengsl eru á milli saltsýru- frumumótefna og skjaldkirtilsmótefna (microsomal antibody). Einstaklingar með magavisnun eða vefja- ummyndun hafa hærra meðaltalsgildi saltsýruvaka (gastrin) samanborið við þá sem hafa einungis langvinna bólgu, (p<0,05), og einnig hjá þeim sem hafa langvinna bólgu borið saman við þá sem hafa virka bólgu, (p<0,01). Ekki var marktækur munur á gildum saltsýruvaka milli H. pylori jákvæðra og nei- kvæðra. Það er marktækt hærra gildi saltsýruvaka hjá þeim sem hafa saltsýrufrumumótefni, (p<0,001). Enginn munur var á gildum saltsýruvaka hjá þeim sem voru án eða með skjaldkirtilsmótefni. ENGLISH SUMMARY Elvarsson F, Cariglia N, Hauksson IÞ, Þorgeirsson Þ Corpus gastritis - Helicobacter Pylori - Gastrin Læknablaðið 2006; 92:13-8 Objective: Corpus gastritis is a common diagnosis. Studies have shown that about 25% of patients that undergo gastroscopy receive this diagnosis. This study was undertaken to investigate ethiological associations in patients with corpus gastritis in our northern lcelandic population. Material and methods: Patients who had had a histological diagnosis of chronic corpus gastritis between the years of 1994 to1998 were retrieved from the computer files of the department of pathology. In all 172 patients fulfilled the Sydney pathological criteria. Pathology review was performed by the same pathologist. Blood samples were also taken for variable serology and a urea breath test for Helicobacterpylori (H. pylori) was performed. Results: Mean age 71 year old (24-99 yearj.Males were 57%. H. pylori infection was diagnosed in 39%. There appears to be a relationship between active gastritis and H. pylori positivity, especialy if there was only chronic gastritis without atrophy or metaplasia. Atrophy was significanty greater if anti-parietal antibody was present. No connections were found between anti-parietal antibody and anti-microsomal antibody. There was significantly higher mean gastrin levels in patients with atrophy or metaplasia compared with only chronic gastritis ( p<0.05), present also in patients with chronic gastritis vs active gastritis (p<0.01). There was no difference in mean gastrin levels between H. pylori positive and H. pylori negative patients. Significantly higher mean gastrin levels were seen in patients with anti-parietal antibody (p<0.001). No difference was found in mean gastrin levels between patients with or with out antimicrosomal antibody. Conclusions: There is a high probability that corpus gastritis and related complications are related to H. pylori infection in a large proportion of our population. Serum gastrin may well be a predictor of the histological grading of the chronic gastritis. We did not see a relationship with antimicrosomal activity. Key words: atrophic corpus gastritis, Helicbacter pylori, gastrin, parietat cell antibody. Correspondance: Fjölnir Elvarsson, fjolnir@fsa.is, Nick Cariglia, nick@fsa.is Læknablaðið 2006/92 13

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.