Læknablaðið - 15.01.2006, Side 65
ÞING
Ársþing Skurðlæknafélags
íslands og Svæfinga- og
gjörgæslulæknafélags
íslands
verður haldið í háskólanum á Akureyri
31. mars-1. apríl 2006
Frjáls erindi frá kl. 13:15-18:00 á föstudag og á laugardag frá kl 09:00-12:00 og
frákl. 15:00-18:00.
Á þinginu verða flutt frjáls erindi og kynnt veggspjöld. Ágrip erinda skulu
berast fyrir 20. janúar til Björns Gunnarssonar læknis á svæfingadeild FSA,
bjorngun@fsa.is
Vísindanefnd áskilur sér rétt til að hafna innsendum ágripum og einnig rétt
til að hafna ágripum til flutnings en samþykkja í formi veggspjalds. Höfundar
geti þess hvort þeir óska eftir að flytja erindi eða sýna veggspjald. Ágrip skulu
skrifuð á íslensku. Hámarkslengd ágripa er 1800 letureiningar. Nafn flytjanda skal
feitletrað.
Við ritun ágripa skulu eftirtalin atriði koma fram í þeirri röð sem hér segir.
• Titill ágrips, nöfn og vinnustaður höfunda, inngangur, efniviður og aðferðir,
niðurstöður og ályktanir.
Málþing á laugardagsmorgni um verki og slitgigt og forgangsröðun sjúklinga í
gerviliðaaðgerðir. Á þingið koma tveir erlendir gestir:
prófessor Paul Dieppe frá Bristol í Englandi og prófessor Stefan Lohmander frá
Lundi í Svíþjóð.
Hátíðarkvöldverður Skurðlæknafélags íslands og Svæfinga- og gjörgæslulækna-
félags íslands verður á laugardagskvöldi á Hótel KEA og byrjar kl. 19.00. Hægt
er að fá pakkaferðir með flugi, hóteli, gistingu og skíðapassa hjá Ferðaskrifstofu
Akureyrar (sími 460 0600).
Nauðsynlegt að fundarmenn skrái sig sem fyrst með tölvupósti hjá Helgu K.
Magnúsdóttur helgam@fsa.is sími 860 0568 eða Girish Hirlekar girish@fsa.is sími
860 0567.
Aðalfundur Svæfinga- og
gjörgæslulæknafélags
íslands (SGLÍ)
Aðalfundur SGLÍ haldinn í háskólanum á Akureyri föstu-
daginn 31. mars 2006, kl. 17:45.
Dagskrá
1. Hefðbundin aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Stjórnin
Aðalfundur
Skurðlæknafélags íslands
Aðalfundur haldinn í háskólanum á Akureyri föstudaginn
31. mars 2006, kl. 17:45.
Dagskrá
1. Hefðbundin aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Stjórnin
Læknablaðið 2006/92 65