Læknablaðið - 15.01.2007, Síða 7
RITSTJÖRNAR
Af hverju fjölgar öryrkjum
með geðraskanir?
Læknarnir Sigurður Thorlacius og Sigurjón B.
Stefánsson ásamt Stefáni Ólafssyni rita athyglis-
verða grein í þetta hefti Læknablaðsins (1). Þeir
hafa um árabil stundað rannsóknir á ýmsum þáttum
örorku. Nýgengi og algengi örorku hefur aukist á
Islandi likt og í öðrum vestrænum löndum. Öryrkjar
eru þó hlutfallslega færri hér en í nágrannalöndum
og einnig virðist aukningin hafa komið síðar fram.
Samanburður milli landa er þó varasamur vegna
ólíkra velferðarkerfa.
Árið 1962 voru 4,1 % einstaklinga á vinnufærum
aldri (16-67 ára) á íslandi metnir með örorku. Al-
gengi örorku hefur aukist síðan og var 1996 rúm 6%
og svipað 2002 (2). í lok árs 2005 voru 8,0% kvenna
á fullri örorku og 5,2% karla, eða um 6,6% fyrir
bæði kyn (1,3).
Hlutur geðraskana í örorku hefur alltaf verið hár
en hann hefur aukist hlutfallslega meira en aðrir ör-
orkuþættir á síðustu árum og áratugum. Árið 1962
var geðröskun fyrsta sjúkdómsgreining hjá 19,5%
kvenna sem fengu metna örorku í fyrsta sinn. Hjá
körlum var hlutfallið 17,4%. Á árabilinu 1999-2003
voru samsvarandi tölur fyrir konur 22% og 26,5%
fyrir karla (3).
Árið 1996 var geðröskun fyrsta sjúkdómsgrein-
ing hjá 2&k kvenna á örorku. Sambærilegt hlutfall
fyrir karla árið 1996 var 31%. Árið 2005 var hlut-
fallið enn hærra, eða 32,8% hjá konum og hvorki
meira né minna en 42,6% hjá körlum.
Hvað getur skýrt þessa fjölgun öryrkja með
geðraskanir frá 1962? Ástæðurnar eru ekki aug-
ljósar.
Ýmislegt bendir til að fólk sé fúsara en áður að
leita sér aðstoðar vegna geðsjúkdóma. Geðraskanir
eru ekki sama feimnismál og áður. Þá var síður
viðurkennt að geðsjúkdómar gætu valdið örorku og
þar af leiðandi ýmsir aðrir kvillar skráðir sem orsök
örorkunnar. Viðhorfsbreyting hefur smám saman
átt sér stað, ekki síst hjá læknum. Þetta gæti verið
hluti skýringarinnar.
Samspil við vinnumarkað er greinilegt. Hér á
landi hefur atvinnustig lengstum verið mjög hátt.
Þess vegna ætti að vera auðvelt fyrir flesta að fá
vinnu en álag á vinnumarkaði virðist vaxandi og því
erfitt fyrir þá sem standa höllum fæti að fá vinnu við
hæfi. Líkt og í öðrum löndum virðist tíðni örorku
aukast með auknu atvinnuleysi. Þetta var áberandi
hér á landi eftir 1990. En öryrkjum hefur því miður
ekki fækkað þó að ástand á vinnumarkaði hafi
batnað.
í umræðum hér á landi og víðar hefur því verið
haldið fram að meðferðin sjálf, sérlega geðlyf, stuðli
að fjölgun geðsjúkra og hafi örorku í för með sér.
Ekki er þetta líkleg skýring, hins vegar hefur bætt
lyfjameðferð stuðlað að því að fleiri sjúklingar geta
verið utan sjúkrahúsa án þess að verða vinnufærir
og þurfa því á örorkubótum að halda.
Hér hefur algengi geðsjúkdóma ekki aukist
undanfarin 20 ár (4). í rannsókn sem gerð var á ein-
kennum geðsjúkdóma árið 1984 og aftur árið 2002
kom í ljós að tíðni geðsjúkdóma breyttist lítið á
tímabilinu, en tíðni áfengis- og fíkniefnavandamála
jókst til muna. Hugsanlega er hér skýringin á algeng-
ari örorku. Rúmlega 10% karla á örorku vegna
geðsjúkdóma hafa áfengis- eða fíkniefnagreiningu.
Nýleg bandarísk rannsókn sýnir fram á verulega
aukningu þunglyndis á síðasta áratug (5). Ef sama
aukning kemur fram í öðrum löndum hefur það
gífurleg áhrif á þjónustuþörfina og hugsanlega ör-
orku. Þetta er önnur niðurstaða en rannsóknir hér
á landi hafa sýnt.
Við sameiningu sjúkrahúsa í Reykjavík fækkaði
úrræðum geðdeildar fyrir bráðveika og langveika
og úrræði utan sjúkrahúsa hafa ekki verið byggð
upp í takt við niðurskurð innan þeirra. Er hugsan-
legt að sparnaður á einum stað hafi haft í för með
sér enn meiri kostnað annars staðar? Allt þetta og
sjálfsagt fleira gæti skýrt aukið hlutfall geðraskana
af heildarörorku.
Hvað er hægt að gera? Mikilvægt er að rann-
sóknir á örorku haldi áfram. Er minna veikt eða
heilbrigðara fólk á örorku nú en áður var? Ef svo
er, af hverju? Leiða aðrar geðraskanir til örorku nú
en áður?
Gera þarf átak í uppbyggingu á þjónustu fyrir
geðsjúka utan og innan stofnana. Margfalda þarf
möguleika til starfsþjálfunar og fjölga vernduðum
vinnustöðum.
Þeir sem reka fyrirtæki verða að axla meiri
ábyrgð og bjóða þeim sem hafa skerta starfsorku
upp á fleiri og varanlegri atvinnuúrræði. Læknar
þurfa að þekkja alla meðferðarmöguleika og vinna
með öðru sérhæfðu starfsfólki þannig að allir leg-
gist á eitt hinum veiku til aðstoðar.
Markmiðið ætti að vera skýrt: Að koma sem
flestum út á almennan vinnumarkað og til betra lífs.
Enginn vill búa í allsnægtaþjóðfélagi þar sem þeim
sem standa höllum er fæti ekki vel sinnt.
Heimlldir
1. Thorlacius S, Stefánsson SB, Ólafsson S. Algengi örorku á
íslandi 1. desember 2005. Læknablaðið 2007; 93:13.
2. Thorlacius S, Stefánsson SB. Algengi örorku á íslandi 1.
desember 2002. Læknablaðið 2004; 90:21-5.
3. Thoriacius S, Stefánsson SB, Ólafsson S. Algengi örorku vegna
geðraskana á íslandi 1992-2003. Læknablaðið 2004; 90; 615-9.
4. Helgason T, Tómasson K, Sigfússon E, Zoéga T. Skimun fyrir
algengi geðraskana 1984 og 2002 og ávísanir geðlyfja 1984 og
2001. Læknablaðið 2004; 90:553-9.
5. Compton WM, Conway KP, Stinson FS, Grant BF. Changes in
the prevalence of major depression and comorbid substance
use disorders in the United States between 1991-1992 and
2001-2002. Am J Psychiatry 2006; 163:2141-7.
G R EI N A R
Tómas Zoéga
tomasz@landspitaU.is
The number of psychiatric
patients recciving disability
compensation is rising. Why?
General Adult Psychiatry and
Epidemiology
Chief Psychiatrist and
Honorary Senior Lecturer
Division of Psychiatry
Landspítali University
Hospital
Hringbraut, 101 Reykjavík
Iceland
Höfundur er geðlæknir
á Landspítala
Læknablaðið 2007/93 7