Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2007, Blaðsíða 6

Læknablaðið - 15.01.2007, Blaðsíða 6
00 >, MALARONE atóvakón og prógúanílhýdróklórið - fyrirbyggjandi meðferð gegn malaríu • Eina malaríulyfið sem virkar bæði á lifrarstig og blóðstig falciparum-malaríu • Þolist vel og hefur fáar aukaverkanir25 • Styttri meðferð fyrir og eftir ferðalagið miðað við öll önnur malaríulyf69 MALARONE. Hver Malarone tafla inniheldur 250 mg af atóva- kóni og 100 mg af prógúaníl hýdróklóríði. Lyfjaform: Filmuhúðuð tafla. Ábendingar: Malarone hefur sníkladrepan- di verkun í blóði og hefur einnig verkun á Plasmodium falci- parum sníkla í lifur. Það er ætlað til: (1) Fyrirbyggjandi með- ferðar gegn Plasmodium falciparum malaríu, (2) Meðferðar við bráðri Plasmodium falciparum malaríu, án fylgikvilla. Þar sem Malarone hefur verkun gegn lyfjanæmum og lyfjaónæ- mum Plasmodium falciparum sníklum er sérstaklega mælt með Malarone til að fyrirbyggja Plasmodium falciparum malaríu og til meðferðar við Plasmodium falciparum malaríu í þeim tilvikum þar sem sýkingarvaldurinn gæti verið ónæmur fyrir öðrum malaríulyfjum. Skammtar og lyfjagjöf: A. Fvrir- bvgojandi meðferð skal (a) hefja 24 til 48 klukkustundum áður en farið er inn á malaríusvæði, (b) halda áfram meðan á dvöl stendur, sem ekki skal vera lengur en 28 dagar, (c) halda áfram í 7 daga að dvöl lokinni. Skammtar handa fullorðnum: Ein Malarone tafla á dag. Malarone töflur eru ekki ráðlagðar til fyrirbyggjandi meðferðar hjá einstaklingum sem eru undir 40 kg að þyngd. B. Meðferð: Skammtar handa fullorðnum: Fjórar Malarone töflur í einum skammti daglega, í þrjá daga samfleytt. Skammtar handa börnum. (1) 11-20 kg að þyngd. Ein tafla daglega, í þrjá daga samfleytt. (2) 21-30 kg að þyngd. Tvær töflur í einum skammti daglega, í þrjá daga sam- fleytt. (3) 31-40 kg að þyngd. Þrjár töflur í einum skammti daglega, í þrjá daga samfleytt. (4) > 40 kg að þyngd. Skammtar eins og fyrir fullorðna. Frábendingar: Sjúklingar með þekkt ofnæmi fyrir atóvakóni eða prógúaníl hýdróklóríði eða einhverju hjálparefnanna mega ekki taka Malarone. Ekki má nota Malarone til fyrirbyggjandi meðferðar við P. falcipa- rum malaríu hjá sjúklingum með verulega skerta nýrnastarf- semi (kreatínín úthreinsun < 30 mj/mín.). Sérstök varnaðaro- rð og varúðarreglur við notkun: Öryggi og verkun Malarone til fyrirbyggjandi meðferðar gegn malaríu hjá sjúklingum sem eru undir 40 kg að þyngd, hefur ekki verið staðfest. Oryggi og verkun Malarone til meðferðar malaríu hjá börnum sem eru undir 11 kg að þyngd hefur ekki verið staðfest. Malarone hefur ekki verið metið með tilliti til meðferðar við malaríu í heila eða öðrum flóknum tilvikum malaríu, þ.á m. mikils fjöl- da sníkla í blóði, (hyperparasitaemia), lungnabjúgs og nýrna- bilunar. Enduruppkoma sníkla varalgeng þegar P. v/Vaxmala- ría var eingöngu meðhöndluð með Malarone við. Ferðamenn sem eru verulega útsettir fyrir P. vivax eða P. ovale, og þeir sem fá malaríu af völdum annars hvors þessara sníkla, þurfa að auki meðferð sem er virk gegn sníklum í dvala (hypno- zoites). Þegar sýking af völdum P. falciparum tekur sig upp aftur eftir meðferð með Malarone, eða fyrirbyggjandi meðferð hefur brugðist, skal veita sjúklingum meðferð með öðru lyfi sem einnig hefur sníkladrepandi verkun í blóði. Fylgjast skal náið með sníklum í blóði sjúklinga sem fá samhliða meðferð með metóklópramíði eða tetracýklíni (sjá kafla 4.5). Samhliða gjöf Malarone og rífampicíns eða rífabútíns er ekki ráðlögð. Hjá sjúklingum með verulega skerta nýrnastarfsemi (kreatínín úthreinsun < 30 ml/mín.) skal ráðleggja önnur lyf en Malarone til meðferðar við bráðri P. falciparum malaríu þegar það er mögulegt. Milliverkanir við önnur lyf og aðrar milli- verkanir: Samhliða meðferð með metóklópramíði og tetra- cýklíni hefur verið sett í samband við marktæka lækkun á plasmaþéttni atóvakóns. Samhliða meðferð atóvakóns og indínavírs leiðir til lækkunar á indínavírs. Gæta skal varú- ðar þegar atóvakóni er ávísað samhliða indínavíri vegna læk- kunar á lægstu blóðþéttni indínavírs. Samhliða meðferð með rífampicíni lækkar blóðþéttni atóvakóns um u.þ.b 50% og samhliða meðferð með rífabútíni lækkar blóðþéttni um u.þ.b. 34%. Meðganga og brjóstagjöf: Öryggi samhliða notkunar atóvakóns og prógúaníl hýdróklóríðs á meðgöngu hefur ekki verið staðfest. Notkun Malarone á meðgöngu skal aðeins íhuga ef væntanlegur ávinningur fyrir móður vegur þyngra en hugsanleg áhætta fyrir fóstrið. Brjóstagjöf: Konur með börn á brjósti skulu ekki taka inn Malarone. Aukaverkanir: Af þeim skömmtum sem gefnir eru bæði til fyrirbyggjandi meðferðar og meðferðar við malaríu, eru aukaverkanir yfirleitt vægar og tímabundnar. Ekkert bendir til þess að eiturverkanir aukist við samhliða gjöf atóvakóns og prógúaníls. í klínískum rannsók- num á fyrirbyggjandi meðferð gegn malaríu, voru algengustu skráðu aukaverkanirnar, óháð því hvort um bein orsakatengsl við lyfjameðferðina væri að ræða, höfuðverkur, kviðverkir og niðurgangur. Algengi þessara aukaverkana var svipað hjá þeim sem fengu Malarone og þeim sem fengu lyfleysu. í klinískum rannsóknum á meðferð við malaríu, voru algeng- ustu skráðu aukaverkanirnar, óháð því hvort um bein orsaka- tengsl við lyfjameðíerðina væri að ræða, kviðverkir, höfuð- verkur, lystarleysi, ógleði, uppköst, niðurgangur og hósti. Algengi þessara aukaverkana var svipað hjá þeim sem fengu Malarone og þeim sem fengu annað malaríulyf til saman- burðar. Ofskömmtun: Ekki hefur verið greint frá ofskömmtun Malarone. ATC flokkur: P01B B51. Geymsluþol: 5 ár. Gerð fláts og innihald: PVC / álþynnupakkningar með 12 töflum. HANDHAFI MARKAÐSLEYFIS: GlaxoSmithKline ehf., Þverholti 14, 105 Reykjavík, ísland DAGSETNING FYRSTU ÚTGÁFU MARKAÐSLEYFIS: 30. desember 2005. DAGSET- NING ENDURSKODUNAR TEXTANS: 6. janúar 2006. PAKK- NINGAR OG VERÐ: MALARONE 250 mg/100 mg fiimuhú- ðaðar töflur, 12 töflur I pakkningu. Afgreiðslutilhögun R. Greiðsluþátttaka 0. Hámarksverð kr. 5.725 (Lytjaverðskrá 1. sept 2006). Hánari upplýsingar er að linna i Sérlyljaskrá. Heimildir: 1. Shanks GD et al. Clin Intect Dis 1998; 27 (3): 494-499. 2. Sukwa TY et al. Am J Trop Med Hyg 1999; 60 (4): 521-525. 3. Lell B et al. Lancet 1998; 351:709-713.4. Faucher JF et al. Clin Infect Dis 2002; 35: 709-713. 5. Berman JD et al. Trans R Soc Trop Med Hyg 2001; 95 (4); 429-432. 6. Malarone SmPC. GSK, March 2005. 7. Malarone Paediatric SmPC, GSK, March 2005.8. Vibramycin SmPC, Pfizer, July 2004.9. Lariam SmPC, Roche, February 2004.10. Samantekt á eigin- leikum tyfsins. Sérlyfjaskrá Lyljastofnunar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.