Læknablaðið - 15.01.2007, Qupperneq 17
FRÆÐIGREINAR / ASTMI
Ekki er allt astmi sem hvæsir
Sjúkratilfelli
Björn Logi
Þórarinsson1
NÁMSLÆKNIR
Lárus Jónasson2
SÉRFRÆÐINGUR í
LIFFÆRAMEINAFRÆÐI
Birna Jónsdóttir3
SÉRFRÆÐINGUR í
MYNDGREININGU
Gunnar
Guðmundsson1,4
SÉRFRÆÐINGUR í
LYFLÆKNINGUM,
LUNGNA- OG
GJÖRGÆSLULÆKNINGUM
‘Lungnadeild Landspítala,
2rannsóknastofu í meinafræði,
Landspítala
3Röntgen Domus í Mjódd,
4rannsóknastofu í lyfja- og eit-
urefnafræði, læknadeild HÍ.
Fyrirspurnir og bréfaskipti:
Gunnar Guðmundsson,
lungnadeild Landspítala E-7
Fossvogi, 108 Reykjavík.
Sími 543-6876, fax 543-6568.
ggudmimd@landspitali.is
Lyldlorð; sjúkratilfelli, astmi,
loftvegaþrenging,
öndunarmœling.
Útdráttur
Fimmtíu og sex ára gömul kona með sögu um
astma leitaði til lungnalæknis. Hún hafði verið
greind með astma á heilsugæslustöð rúmu ári
áður. Hún var meðhöndluð með innúðalyfjum
án þess að ná góðum bata. Lungnalæknir greindi
þrengingu á barka vegna skjaldkirtilsstækkunar
sem þrýsti barkanum saman. Hún var læknuð með
aðgerð á skjaldkirtli. Ræddar eru mismunagrein-
ingar við astma og orsakir þrenginga í loftvegum
og mikilvægi öndunarmælinga við greiningu
lungnasjúkdóma.
Sjúkratilfelli
Fimmtíu og sex ára gömul kona leitaði til lungna-
læknis með sögu um astma. Hún hafði verið greind
með astma á heilsugæslustöð rúmlega einu ári fyrir
komu. Um var að ræða klíníska greiningu byggða
á sögu og líkamsskoðun. Einkenni konunnar voru
erfiðleikar við öndun en henni leið oft eins og
hún væri að kafna, sérstaklega við áreynslu og út-
afliggjandi. Það kraumaði ofan í henni við öndun.
Það var margra ára saga um kitlandi tilfinningu
í hálsi og þrálátan þurran hósta. Hún gat áður
synt 500 metra í sundi en nú gat hún aðeins synt
100 metra vegna hamlandi andnauðar. Hún var
almennt hraust og ekki með þekkt ofnæmi. Konan
hafði hætt að reykja 15 árum fyrir komu en átti alls
að baki 20-30 pakkaár í reykingum. Hún starfaði í
mötuneyti.
Hún var meðhöndluð með innúðalyfjum með
samsetningu langvirkra berkjuvíkkandi lyfja og
innúðastera. Þrátt fyrir þetta hafði hún áfram
stöðug einkenni sem voru talin orsakast af astma.
Þremur mánuðum fyrir komu fékk hún sýklalyfja-
og sterameðferð um munn vegna kvefs, aukinnar
mæði, hósta og grænleits uppgangs án hita. Á sama
tíma voru teknar röntgenmyndir af lungum og
hálsi sem voru eðlilegar.
Einkenni héldu áfram að vera til staðar og því
var henni vísað til lungnalæknis.
Við komu til lungnalæknis heyrðust soghljóð
(stridor), bæði í inn og útöndun án hlustpípu,
og það sást að hálsinn var áberandi útstæður að
framanverðu. Við þreifingu á hálsi var skjaldkirt-
ill mjög stækkaður jafnt hægra sem vinstra megin,
hann var mjúkur og laus frá undirliggjandi vefjum.
Engar eitlastækkanir voru á hálsi. Við lungna-
hlustun var útöndun lengd og önghljóð heyrðust
dreift í báðum lungum. Með hlustpípu heyrðust
soghljóð yfir barka. Almenn líkamsskoðun var
eðlileg að öðru leyti.
Öndunarmæling sýndi teppu með FVC 2,88 L
(99% af áætluðu), FEVl 1,55 L (66% af áætluðu)
og hlutfall FEVl/FVC 54% og kassalaga (flata)
flæðilykkju eins og sýnt er á mynd 1.
Tölvusneiðmynd var gerð af hálsi og efri hluta
brjóstkassa og sýndi hún mikla og dreifða stækkun
á skjaldkirtli sem náði niður í brjóstkassa hægra
megin (myndir 2). Skjaldkirtillinn þrýsti á bark-
ann og var þvermál barkans aðeins 5,6 mm í stað
25 mm eins og eðlilegt er. Hliðrun var á aðlægum
mjúkpörtum. Einnig var til staðar þindarslit.
Almennar blóðrannsóknir voru innan eðlilegra
marka.
Hún fékk stera í háum skömmtum í æð og síðan
ENGLISH SUMMARY
Þórarinsson BL, Jónasson L, Jónsdóttir B, Guömundsson G
Not all wheezing is astma. Case report
Læknablaðið 2007; 93:17-20
A fifty six year old woman with history of asthma visited
a respiratory specialist. She had been diagnosed with
asthma more than a year previously in a primary care
clinic. She was treated with inhaled medications without
good response. A respiratory specialist diagnosed
tracheal narrowing secondary to thyroid enlargement that
was pushing the trachea together. She was cured with a
thyroid operation. Discussed are differential diagnosis of
asthma and causes of airway narrowing and the
importance of spirometry in diagnosing asthma.
Keywords: case report, asthma, airway narrowing, spirometry.
Correspondence: Gunnar Guðmundsson, ggudmund@
landspitali.is
Læknablaðið 2007/93 17