Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.2007, Page 37

Læknablaðið - 15.01.2007, Page 37
UMRÆÐA & FRÉTTIR / MINNINGAR HÉRAÐSLÆKNIS Læknisferð að Merkigili Þegar ég var héraðslæknir á Hofsósi á árunum 1954-61 kom það nokkrum sinnum fyrir að ég sinnti Sauðárkrókshéraði í fjarveru héraðslæknis ef hann þurfti að bregða sér frá og var það gagn- kvæmt ef ég þurfti að fara frá. Bæði héruðin voru þá einmenningshéruð, en óheimilt var að fara út úr héraði, nema fá mann til að gegna fyrir sig. Þetta gerðist þó sjaldan og einungis í stuttan tíma í senn. Það var eitt sinn síðla vetrar að Friðrik J. Frið- riksson, sem þá var héraðslæknir á Sauðárkróki, þurfti að víkja sér frá í tvo daga og bað mig að ansa fyrir sig á meðan. Ég játaði þessu að sjálfsögðu. Þegar kom að nefndum degi lauk ég því sem fyrir lá á Hofsósi fyrri hluta dagsins, en fór að því búnu yfir á Sauðárkrók og tók þar á rnóti sjúklingum til kvölds. Um það bil sem móttökunni var að ljúka eða í rökkurbyrjun var hringt frá Merkigili í Austurdal. Var Mónika húsfreyja í símanum og tjáði mér að dóttir sín væri mikið veik, hefði háan hita og höf- uðverk, og bað mig að koma í vitjun sem allra fyrst. Veður var gott, stillt og bjart, en frost og svellalög mikil. Snjór var ekki mikill, en harðfenni það sem það var. Þegar kom fram á kvöldið, var dauft tunglskin, svo að greina mátti útlínur landslags í grófum dráttum, en ekki í smáatriðum. Ég var á Willys-jeppa og því einfær um að kom- ast ferða minna á láglendi þar sem greiðfært var. Það varð að samkomulagi að kunnugur maður kæmi á móti mér út á Kjálkann að Norðurá og æki mér upp Austurdalinn, þar sem til þess þyrfti kunnugan mann og vel búinn bíl. Þegar ég kom að Norðurá var þar kominn Hjörleifur Kristinsson Guðmundur Helgi Þórðarson I-A'RRUM HÉRAÐSLÆKNIR OG HEIMII.ISLÆKNIR Merkigil. Horft er yfir gilið til suðvesturs ofan úr hlíðinni á móti. Til vinstri sér í klettahlíð Merkidalsins, áframhald Merkigilisins. Vegarslóðin krókar sig upp suðvesturkinn gilsins og er aðeins reiðgata en ekki bílvegur. Horft er yfir hálsinn norðan við bœinn Merkigil og sér íAusturdalinn en í baksýn er fjallið milli Austurdals og Vesturdals og er það kollurinn á fjallinu Eltiða sem hœst ber. Mynd: Hjalti Pálsson. Læknablaðið 2007/93 37

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.