Læknablaðið - 15.01.2007, Page 50
„Höfum gát á kólestróli og Kötlu ” segi
------------ ---------------------"
Heilsuátakið hjá okkur í Landgræðslunni hófst með
einfaldri spurningu: “Hvernig má það vera að við sem
erum alla daga í forvarnarstarfi fyrir gróður jarðar
gerum ekki það sama fyrir okkur sjálf?” Við sáum
að landræktin var greinilega komin langt fram úr
mannræktinni og ákváðum að reka af okkur slyðruorðið.
Ég færði þetta í tal við héraðslækninn okkar og svo
leiddi eitt af öðru.
Mælingar, fræðsla og fæði
Hingað í Gunnarsholt kom starfsfólk frá Heilsugæslunni
á Hellu og mældi kólesterólmagn í blóði, blóðþrýsting,
hæð og þyngd og í ljós kom að nokkrir starfsmenn
þurftu að ræða nánar við lækni. Sumir fóru í frekari
rannsóknir og einhverjir þurftu að fá blóðþrýstingslyf
og blóðfitulækkandi. Heilsuátakið er að öðru leyti
fólgið í fræðslu með áherslu á að starfsmenn þekki
sín hættumerki, hafi aðgang að sem heilnæmustu fæði
og hreyfi sig. Lyfjafræðingur frá AstraZeneca kom og
fræddi starfsmenn um kólesteról, hjartasjúkdóma og
fleira. Hann kom einnig færandi hendi, því AstraZeneca
og HjartaHeill gáfu blóðmælingatækin sem nú eru
notuð á heilsugæslustöðvunum á Hellu og Hvolsvelli.
Jafnframt kom leiðbeinandi og lagði á ráðin um
heilnæma matargerð með starfsfólki í eldhúsinu.
Áhuginn á átakinu er mikill og langflestir taka þátt.
Heilsutengd markmið
Stór hópur starfsfólksins var áður í stífri líkamlegri
vinnu við alls konar ræktunarstörf en eðli starfanna
hefur gjörbreyst. Verkafólkið situr nú aðallega á stórum
vinnuvélum og fylgist með tölvuskjám. Ég var á sínum
tíma eini háskólamenntaði starfsmaðurinn en í dag
starfa hér um 30 háskólamenntaðir einstaklingar og þeir
eru dæmigert kyrrsetufólk, þannig að þörfin á hreyfingu
og léttara fæði var orðin brýn. Það er gaman að upplifa
hvernig átakið sameinar fólk. Doktorarnir eru á kafi í
þessu við hliðina á verkafólkinu enda eru allir jafnir
fyrir konunni með sprautuna og manninum með ljáinn.
Átakið er umræðuefni víða, meðal annars í
starfsmannaviðtölum þar sem komin eru inn heilsutengd
markmið um það hvernig menn ætla að bæta sitt
líkamlega ástand. Nokkrir makar hafa líka minnst á