Læknablaðið - 15.01.2007, Page 90
MINNISBLAÐIÐ
Frágangur
fræðilegra greina
Ráðstefnur og fundir
Höfundar sendi tvær gcröir
handrita til ritstjórnar Lækna-
blaðsins, Hlíðasmára 8,201
Kópavogi. Annað án nafna
höfunda, stofnana og án þakka
sé um þær að ræða. Greininni
fylgi yfirlýsing þess efnis að
allir höfundar séu samþykkir
lokaformi greinar og þeir
afsali sér birtingarrétti til
blaðsins.
Handriti skal skilað með tvö-
földu línubili á A-4 blöðum.
Hver hluti skal byrja á nýrri
blaðsíðu í eftirtalinni röð:
• Titilsíða: höfundar, stofnanir,
lykilorð á ensku og íslensku
• Ágrip og heiti greinar á ensku
• Ágrip á íslensku
• Meginmál
• Pakkir
• Heimildir
Töflur og niyndir skulu vera
á ensku eða íslensku, að vali
höfunda.
Tölvuunnar inyndir og gröf
komi á rafrænu formi ásamt
útprenti.Tölvugögn (data) að
baki gröfum fylgi með, ekki
er hægt að nýta myndir úr
PowerPoint eða af netinu.
Eftir lokafrágang berist allar
greinar á tölvutæku formi með
útprenli.
Sjá upplýsingar um frágang
fræðilegra greina:
www.laeknabladid.is/bladid
Umræðuhluti
Skilafrestur efnis í næsta blað
er 20. undanfarandi mánaðar
nema annað sé tekið fram.
90 Læknabl.aðið 2007/93
19.-20. janúar
Helsinki, Finnlandi.
XXIII þing NUGA (Nordic Urogynecological
Association).
Nánari upplýsingar og skráning:
www.nuga-info.org
2.-3. apríl
London.
Institute of Psychiatry , King’s College í Lond-
on heldur þing: Depression:
Brain causes - Body consequences. Skrán-
ing til 14. febrúar. Sjá nánar:
www.iop.kcl.ac.uk/depression
30. maí - 1. júní 2007
Grand Hótel, Reykjavík.
5. norræna ráðstefnan um rannsóknir
á einhverfu. Upplýsingar og skráning:
www.yourhost.is/nocra2007
13.-16. júní
Reykjavík.
15. þing norrænna heimilislækna, undirheit-
inu: „The human face of medicine in a hi-tech
world“. Sjá nánar:
www.meetingiceland.com/gp2007
27.-30. júní 2007
Reykjavík.
46. ársfundur International Spinal Cord
Society (ISCoS) og samhliða því er 10. þing
Nordic Spinal Cord Society (NoSCoS).
Allar upplýsingar: www.sci-reykjavik2007.org
21.-23. september 2007
Vín, Austurríki.
5. heimsþingið um heilsu karlmanna: world
congress on men’s health & gender.
Sjá nánar www.wcmh.info
Samnorrænt sérfræðinám lækna í líknarmeðferð
Tveggja ára fræðilegt nám sem skiptist I sex 5 daga námskeið:
1. Introduction to palliative medicine. Symptom control. - Þrándheimi, 17.-21 sept. 2007.
2. The imminently dying. Audit. Helsinki, 21 .-25. janúar 2008.
3. Communication. Ethics. Malmö, 21.-25. apríl 2008.
4. Evidence based palliative medicine. Bergen, 22.-26. sept. 2008.
5. Communication II. Pai. Kaupmannahöfn, 19.-23. janúar 2009.
6. Management and organisation. Evaluation. Stokkhólmi, 25.-29. maí 2009.
Heimaverkefni, rannsóknarverkefni, skriflegt próf, kennt á ensku. Tveir íslendingar eiga þátttökurétt. -
Áhugasamir hafi samband við Valgerði Sigurðardóttur, yfirlækni á líknardeild Landspítala í Kópavogi, 543
6337, valgersi@landspitali.is
Líknarlækningar eru viðurkennd sérgrein í Bretlandi, Ástralíu, nokkrum Austur-Evrópulöndum og Asíu, og
verða væntanlega viðurkenndar í Noregi og Svíþjóð á allra næstuu árum. Námið er einungis ætlað þeim sem
hafa lokið sérnámi í læknisfræði.
Náms- og rannsóknarsjóður
Hjartasjúkdómafélag íslenskra lækna
Náms- og rannsóknarsjóður Hjartasjúkdómafélags íslenskra lækna auglýsir til umsóknar rannsóknarstyrki,
samtals að upphæð kr. 2.000.000.-. Hámarksstyrkur er kr. 600.000,-.
Umsóknum skal skilað til formanns sjóðsins, Ragnars Danielsen, hjartadeild, Landspítala Hringbraut,
fyrir 1. apríl 2007. [ umsókn skal koma fram heiti verkefnis, nafn ábyrgðarmanns, rannsóknaráætlun og
kostnaðaráætlun.
Skilyrði fyrir styrkveitingu er að ábyrgðarmaður verkefnisins sé félagi í Hjartasjúkdómafélagi íslenskra
lækna. Umsóknir verða metnar af stjórn sjóðsins og tilkvöddum matsmönnum ef þess gerist þörf.
Umsóknir sem hæsta einkunn hljóta verða styrktar. Sjóðsstjórn áskilur sér rétt til að hafna umsóknum ef
þær teljast ekki fullnægjandi.
Allar umsóknir skulu vera samþykktar af Vísindasiðanefnd og vinnsla persónuupplýsinga tilkynnt til
Persónuverndar. Að jafnaði ganga þær rannsóknir fyrir um styrk sem liggja til grundvallar rannsóknartengdu
námi við læknadeild HÍ, (master/doktor), gæðaverkefni eða rannsóknarverkefni unglækna og læknanema.
Reykjavík, 20. desember 2006,
Stjórn Náms- og rannsóknarsjóðs
Hjartasjúkdómafélags íslenskra lækna,
Ragnar Danielsen, formaður
Hróðmar Helgason
Karl Andersen