Læknablaðið - 15.02.2009, Side 19
FRÆÐIGREINA
RANNSÓKNI
Fengið var leyfi hjá siðanefnd Landspítala og
Persónuvernd fyrir rannsókninni.
Niðurstöður
Mótefnamælingar
Af 280 sýnum voru þrjú sýni útilokuð vegna gilda
nálægt 0,2, af þeim voru tvö í aldurshópnum 0-1
árs og eitt í aldurshópnum 3-4 ára. Eitt sýni var
útilokað vegna þess að það tilheyrði ekki réttum
aldurshópi.
Hjá börnum á fyrsta aldursári voru um 65%
með mótefni gegn hlaupabólu en einungis um
10% barna á aldrinum 1-2 ára voru með mæl-
anleg mótefni. Fyrir 10 ára aldur voru nær öll
börnin með mótefni gegn hlaupabólu (mynd 1).
Samanlagt voru 97,5% (78/80) bama yfir 10 ára
aldri með mótefni.
Þegar börn yngri en tveggja ára voru skoðuð
sérstaklega sést að við fæðingu eru öll barnanna
með mótefni, þetta hlutfall lækkar á fyrstu mán-
uðum ævinnar en rís að nýju eins og sjá má á
mynd 2.
Fylgikvillar
Eitt hundrað og fjórtán manns voru lagðir inn
með greininguna hlaupabóla eða fylgikvillar
hennar á rannsóknartímabilinu. Fimmtíu og sex
voru útilokaðir úr rannsókninni vegna rangrar
greiningar í sjúkraskrá eða hlaupabólan var ekki
innlagnarástæðan og vandamálin ótengd henni.
Þannig voru 58 einstaklingar lagðir inn vegna
hlaupabólu eða fylgikvilla á rannsóknartímanum
(mynd 3) eða 2,9 börn að meðaltali á ári. Fjöldi
barna <18 ára var að meðaltali 81.588, innlagnir
era því 3,6/100.000 börn 18 ára og yngri á ári (tafla
I). Af þessum 58 börnum vom 51 barn <10 ára,
meðalfjöldi barna <10 ára var 47.488 á rannsókn-
artímabilinu. Innlagnir í þessum aldurshópi voru
því 2,6 á ári eða 5,4/100.000 börn 10 ára og yngri
á ári. Algengast var að börnin sem lögðust inn á
sjúkrahús vegna hlaupabólu hefðu einn fylgikvilla
eða 35 alls, en fimm höfðu tvo fylgikvilla. Fjórtán
lögðust inn á sjúkrahús vegna hlaupabólu án ann-
arra fylgikvilla og voru ástæðurnar oftast mikil
ónæmisbæling, gjaman í kjölfar ónæmisbælandi
meðferðar eða hár hiti. Iimlagnir virtust fleiri á
seinni hluta tímabilsins en munurinn var ekki töl-
fræðilega marktækur (mynd 3). Árstíðabundinn
munur sást einnig sem þó var ekki tölfræðilega
marktækur en flestar innlagnirnar voru á tíma-
bilinu frá nóvember til júní.
Aldursdreifing barnanna sýndi að flest þeirra
sem lögðust inn voru á aldrinum 1-6 ára (mynd
4) og var meðalaldurinn 5,3 ár (miðgildi: 3,5 ár,
Tafla I. Fjöldi, meðalljöldi á ári og nýgengi barna <18 ára með alvarlega hlaupabólu eða
fylgikvilla hennar á 20 ára tímabili.
Fylgikvilli Fjöldi Meðal- fjöldi á ári Nýgengi Fjöldi á ári miöað við 100.000 börn <18 ára
Húösýkingar 21 1,1 1,29
Hnykilslingur (cerebellar ataxia) 7 0,4 0,43
Vannæring eða þurrkur 7 0,4 0,43
Blóðsýking 3 0,4 0,18
Lungnabólga 3 0,2 0,18
Heilahimnubólga 2 0,1 0,12
Hitakrampar 2 0,1 0,12
Berkjubólga 2 0,1 0,12
Drepmyndandi fellsbólga 1 0,05 0,06
Bein- og beinmergsbólga 1 0,05 0,06
Lost 1 0,05 0,06
Heilabólga (encephalitis) 1 0,05 0,06
Taugaverkur 1 0,05 0,06
Liðbólga 1 0,05 0,06
Iðra- og þarmabólga 1 0,05 0,06
Hiti án annarra fylgikvilla 4 0,2 0,25
Alls 58 2,9 3,55
| Sýking
| Taugakerfiseinkenni
_j Aðrir fýlgikvillar
1__| Enginn fylgikvilli
Mynd 5. Ástæður innlagm hjá 58 börnum sem lögðust inn vegna alvarlegrar hlaupabólu eða
fylgikvilla hennar.
Tafla II. Niðurstöður ræktana frá 16 börnum sem lögðust inn með sýkingar í kjölfar
hlaupabólu.
Meinvaldar bakteríusýkinga Fjöldi Hlutfall
Staphylococcus aureus 8 50%
Staphylococcus aureus og pneumókokkar 2 13%
Staphylococcus aureus og enterókokkar 1 6%
Streptococcus pyogenes 3 19%
Streptococcus pyogenes og coag. neg staph. 1 6%
Streptococcus pyogenes og staphylococcus aureus 1 6%
alls 16 100%
LÆKNAblaðið 2009/95 1 15