Læknablaðið - 15.02.2009, Blaðsíða 41
UMRÆÐUR 0 G FRÉTTIR
LÆKNADAGAR
Margrét Guðnadóttir.
til sín taka í málefnum þjóðarinnar og láta skoð-
anir sínar óhikað í ljósi. „Síðustu árin hefur mér
fundist allt of lítið heyrast í venjulegum starfandi
læknum, hvort sem þeir starfa innan sjúkrahúss
eða utan. Allt of sjaldan koma þeir á framfæri
sínum skoðunum á heilbrigðismálum og starfs-
umhverfi vinnudýranna í stéttinni, og allt of sjald-
an fáum við að heyra hvað þeim finnst um stefnu
og störf hinnar nýju stéttar, rekstrarstjórnendanna,
sem mér finnst að hafi eiginlega hertekið heil-
brigðisþjónustuna," sagði Margrét meðal annars.
Heilbrigðisráðherrann, Guðlaugur Þór Þórðar-
son, flutti einnig tölu um þær umtalsverðu
breytingar sem standa fyrir dyrum í skipulagi
heilbrigðisþjónustunnar og hvatti lækna til að
taka þátt í þeim breytingum en sagði jafnframt
að þær yrðu framkvæmdar í fullu samráði
við fagstéttir heilbrigðisþjónustunnar, ekki síst
lækna. Guðlaugur Þór svaraði síðan spurningum
úr sal að lokinni tölu sinni og þá stóð Bryndís
Benediktsdóttir heilsugæslulæknir upp og bað
Birna jónsdóttir og Einar Thoroddsen.
viðstadda að rétta upp hönd sem væru að vinna Runólfur Pálsson og Örn
að breytingum á heilbrigðiskerfinu á vegum Rugnarsson.
heilbrigðisráðuneytisins. Einn rétti upp hönd og
voru þó nær 200 læknar í salnum, margir hverjir
í efstu stöðum á helstu sjúkrahúsum landsins.
Með þessar upplýsingar í farteskinu hófust síðan
eiginlegir Læknadagar og lauk þeim á hefðbund-
inn hátt með æsispennandi spumingakeppni á
föstudagssíðdeginu og árshátíð Læknafélaganna á
laugardagskvöld.
Gunnar Guðmundsson, Tómas Guðbjartsson og Védís Skarphéðinsdóttir.
Ari Jóhannesson og Tómas Zo'éga.
LÆKNAblaðið 2009/95 137