Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.02.2009, Side 47

Læknablaðið - 15.02.2009, Side 47
U M R Æ Ð U R 0 G FRÉTTIR LANDSPÍTALI Eiríkur Jónsson hlýtur kennsluverðlaun á Landspítala Tómas Guðbjartsson Þann 19. desember síðastliðinn voru í fyrsta skipti afhent kennsluverðlaun á skurðlækningasviði Landspítala. Verðlaunin voru veitt þeim sérfræð- ingi sem þykir hafa skarað fram úr við kennslu deildarlækna á síðasta ári. Á haustmánuðum var gerð ítarleg könnun meðal deildarlækna á skurð- lækningasviði um ýmis atriði sem snúa að kennslu og fræðslu. Meðal annars var spurt hver væri besti kennarinn og hvaða deild hefði verið lærdómsrík- ust. Hlutskarpastur varð Eiríkur Jónsson yfirlækn- ir á þvagfæraskurðdeild Landspítala og deildin var kosin sú besta. Á myndinni sést Eiríkur með verðlaunin en hann hefur um árabil verið óþreyt- andi við kennslu unglækna og læknanema. Stefnt er að því að þessi verðlaun verði árlegur viðburð- ur. Ljósmynd: Inger Helene Bóasson. Félag fagfólks um hjarta- og lungnaendurhæfingu Styrkir úr vísinda- og fræðslusjóði FHLE Sjóðsstjórnin auglýsir styrki úr vísinda- og fræðslusjóði til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 28. febrúar 2009. Úthlutað verður 1. apríl 2009. Sjóðurinn var stofnaður að loknu sjötta norræna hjarta- endurhæfingarþinginu sem haldið var í Reykjavík í júní árið 2002 á vegum Félags fagfólks um hjarta- og lungnaendurhæfingu. Rann allur ágóði ráðstefnunnar í sjóðinn. Markmið sjóðsins er að styrkja rannsóknar- og þróunarverkefni og ritsmíðar um hjarta- og lungnaendurhæfingu. Sérstök skipulagsskrá gildir um sjóðinn. Sjóðurinn styrkir: A. Útiagðan kostnað vegna samþykkts verkefnis, s.s. póstburðargjöld og aðkeypta tölfræðiúrvinnslu. B. Ferðakostnað tengdan rannsóknar- og þróunarverkefnum. C. Kaup á nauðsynlegum tækjum til samþykkts verkefnis. Styrkurinn er veittur til eins eða fleiri þátta sem tilgreindir eru að ofan, allt eftir eðli og umfangi verkefnisins. Ekki er gert ráð fyrir launagreiðslum til rannsakenda. Umsóknir verða metnar af stjórn sjóðsins. Úthlutunarfé er ákveðið samkvæmt mati stjórnar sjóðsins. Stjórn sjóðsins áskilur sér rétt til að hafna umsóknum eða fara fram á endurskoðun verkefnis eða kostnaðaráætlunar. Skriflegar umsóknir um styrki úr sjóðnum skulu vera vel rökstuddar með kostnaðar- og tímaáætlun. Jafnframt skal koma fram í umsókninni hvort aðili nýtur styrkja frá öðrum sjóðum. Vanda ber frágang umsóknarinnar. Umsóknum, ásamt fylgigögnum, skal skilað á sérstöku umsóknareyðublaði í fjórriti til formanns sjóðsstjórnar. Einnig skal senda umsóknina á rafrænu formi til magnus.b.einarson@ simnet.is [ sjóðsstjórn eru Marta Guðjónsdóttir, Reykjalundi, Axel F. Sigurðsson, Landspítala og Magnús B. Einarson, formaður, Hlyngerði 9, 108 Reykjavík. LÆKNAblaðið 2009/95 143

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.