Læknablaðið - 15.01.2012, Page 56
NÝR DOKTOR
óvirkjunar með DNA-metýleringu, koma
oft fyrir í þeim tilfellum þar sem stök
brjóstakrabbamein hafa þróast eftir sömu
leiðum eins og BRCAl-stökkbreytt æxli.
Þetta er í rauninni lykilatriði í minni rann-
sókn, það er að gallar í þessum genum
koma fram hjá ákveðnum undirhóp af
stökum tilfellum."
Ólafur segir að þetta gæti haft mikla
klíníska þýðingu núna þar sem nýlega eru
komin fram lyf sem kallast PARP-hindr-
arar og hafa mjög nýstárlega virkni. „Þetta
eru mjög sérhæfð lyf sem hindra ákveð-
ið DNA-viðgerðaferli og valda með því
frumudauða, en einungis í frumum sem
hafa BRCAl- eða BRCA2-tengda afbrigði-
leika og er virknin því að mestu bundin
við krabbameinsfrumurnar sem slíkar,
frekar en eðlilegar frumur líkamans. Þessi
lyf eru komin vel áleiðis í rannsóknum og
vonandi líður ekki á löngu áður en þau
komast í almenna notkun."
Ólafur segir að niðurstöðurnar bendi
til þess að PARP-hindrarar muni ekki
einungis gagnast BRCAl- og BRCA2-
arfberum heldur einnig mun stærri hóp
sjúklinga, það er þeim sem hafa áunnar
breytingar í BRCAl-geni. „Þetta er liður
í þeirri framþróun sem er sífellt að verða
meira áberandi, það er að lyf í meðhöndl-
un sjúkdómsins séu valin í samræmi við
það hvaða breytingar hafa komið fram."
Rannsakar áfram sviperfðabreytingar
Rannsókn Ólafs Andra var fjármögnuð
með styrkjum frá Háskólasjóði Eimskipa-
félagsins og Rannís en einnig lögðu fleiri
aðilar til styrki. „Styrkurinn frá Eim-
skipafélaginu varð til þess að ég skipti úr
meistaraverkefni yfir í doktorsverkefni.
Styrkurinn greiddi launin mín meðan á
rannsókninni stóð en styrkir frá Rannís og
Rannsóknarsjóði Háskóla Islands stóðu að
mestu leyti undir öðrum kostnaði. Styrkir
á lokasprettinum frá Göngum saman og
Minningarsjóði Bergþóru Magnúsdóttur
og Jakobs J. Bjarnasonar hjálpuðu mér
mjög mikið við að ljúka verkefninu sem
fór eitt ár framyfir þann tíma sem doktors-
verkefnum er ætlaður."
Ólafur starfar á rannsóknarstofnun í
Barcelona og rannsakar sviperfðabreyt-
ingar í brjóstakrabbameinum. „Ég náði
sambandi við forstöðumann þessarar
stofnunar, Manel Esteller, en hann hefur
gert rannsóknir sem hafa haft mikil áhrif á
þessu sviði. Ég vissi að þessi stofnun væri
mjög góð og hér væri góð aðstaða til að
rannsaka sviperfðabreytingar. Ég komst í
kynni við hann á ráðstefnu í Noregi í fyrra
og í kjölfarið sendi ég honum tölvuskeyti
og hann bauð mér rannsóknarstöðu. Þetta
gekk ótrúlega hratt og snurðulaust fyrir
sig."
Ólafur flutti síðan út með fjölskyldu
sína, eiginkonu og tvö börn. „Ég er ekki
spænskumælandi ennþá og það er dálítið
snúið í hinu daglega lífi, en í vinnunni tala
allir ensku. Sonur minn 8 ára spjarar sig
ótrúlega vel og talar spænskuna reiprenn-
andi eftir eitt ár. Við höfum ekki hugsað
okkur að vera hér lengur en eitt ár í viðbót
og ég er þegar byrjaður að leggja drög að
því hvað tekur við þá. Það þarf að hafa
tímann fyrir sér í þessu sem öðru," segir
Ólafur Andri Stefánsson.
Hollvinahópur fyrir Urtagarðinn í Nesi
Sumarið 2010 var opnaður lækningajurta-
garður í Nesi í samstarfi Seltjarnarnesbæj-
ar, Lækningaminjasafns, Lyfjafræðisafns,
Læknafélags íslands, Lyfjafræðingafélags
íslands, landlæknisembættisins og Garð-
yrkjufélags íslands. Plöntur í garðinum
voru valdar út frá heimildum um ræktun
hér á landi á tímabilinu 1760-1834.
Stjórn garðsins vill stofna hollvinahóp
Urtagarðsins og gefa bæði félagsmönnum
og öðrum áhugasömum möguleika á
að fylgjast nánar með starfseminni og
styrkja hana samhliða. Fyrirtæki geta gerst
styrktaraðilar Urtagarðsins og áhugasamir
starfsmenn verið meðlimir hollvinahóps-
ins.
Hollvinahópurinn getur tekið þátt í
viðburðum Urtagarðsins, lagt fram vinnu
eða efni til afmarkaðra verkefna, til dæmis
sjálfboðavinnu við umhirðu garðsins og
lagt fram plöntur í plöntusafnið.
Um starf Urtagarðsins má lesa á vefsíðu
Lækningaminjasafnsins og Nesstofu,
Plöntuvísir gerir grcinfyrir plöntuvali ígaröinum nú.
www.nesstofa.is Allir sem vilja gerast holl-
vinir Urtagarðsins eru beðnir að gefa sig
fram við Lækningaminjasafnið, laekninga-
minjasafn@seltjarnarnes.is.
Fréttatilkynning
56 LÆKNAblaðið 2012/98