Fréttatíminn - 21.11.2014, Blaðsíða 16
Ö Önnur lota verkfalls lækna í Læknafélagi Ís-lands hófst í vikubyrjun og á þriðjudaginn hófust verkfallsaðgerðir lækna í Skurðlækna-félagi Íslands. Verkfallsáætlun hefur verið gerð til 11. desember, semjist ekki fyrir þann
tíma. Þá ákvarða læknar framhaldið. Verk-
fallsaðgerðirnar hafa bein og óbein áhrif, bein
vegna þess að aðeins er sinnt bráðatilfellum
– og óbein vegna óróa almennings sem setur
traust sitt á þjónustu heilbrigð-
iskerfisins en nýtur ekki –
nema lífsnauðsynlegrar bráða-
þjónustu. Það verður ólíðandi
röskun á högum fólks þegar
það kemst ekki til læknis.
Meginefni Líftímans, sem
fylgdi Fréttatímanum síðast-
liðinn föstudag, var staða heil-
brigðiskerfisins. Þar var ástand-
inu í meginatriðum lýst á þann
veg að Íslendingar væru ekki
lengur í fremstu röð í heilbrigð-
ismálum þar sem meðal annars kæmu fram
afleiðingar af langtímaniðurskurði til Land-
spítalans. Páll Matthíasson, forstjóri spítalans,
lýsti því svo að sá niðurskurður hefði áhrif á
þrjá þætti sem erfitt væri að aðskilja. Í fyrsta
lagi starfsfólkið þar sem afleiðingar sæjust
meðal annars í yfirstandandi verkföllum. Í
öðru lagi hefði niðurskurðurinn komið niður
á rekstri sjúkrahússins þar sem rekstrarfé
dygði ekki fyrir lögbundnum verkefnum. Í
þriðja lagi kæmi niðurskurðurinn fram á inn-
viðum á borð við húsnæði og rafræn kerfi sem
væru úrelt.
Í Líftímanum var enn fremur vitnað í ræðu
Sigurveigar Margrétar Stefánsdóttur læknis,
á Austurvelli 10. nóvember síðastliðinn. Þar
sagði hún að fjármálahrunið eitt og sér skýrði
ekki þann skaða sem orðið hefði á heilbrigðis-
þjónustunni. Skilning stjórnvalda hefði skort
í áratugi. Grunvallarhugmynd heimilislækn-
inga væri fokin út í veður og vind þegar fólk
ætti ekki fastan heimilislækni, hvorki í smærri
bæjarfélögum né Reykjavík. „Við verðum að
stöðva þróunina, stöðva niðurskurð, fjölga
stöðum, bæta við tækjum, bæta húsnæði,
huga að lýðheilsu og því að fyrirbyggja sjúk-
dóma til að spara gífurlegar fjárhæðir seinna
meir,“ sagði Sigurveig Margrét um leið og hún
sagði lækna hafa orðið að grípa til ráðs sem
færi gegn grundvallarhugsun þeirra – að fara
í verkfall.
Landflótti lækna er alvarlegt mál og sama
gildir um háan aldur þeirra lækna sem hér
starfa. Eðlileg endurnýjun stéttarinnar hefur
riðlast. Sérfræðilækna vantar í margar greinar
og vinnuálag er mikið á þá sem hér starfa.
Hundruð íslenskra lækna starfa í nágranna-
löndunum við betri kjör, betri aðstæður og
minna vinnuálag.
Þessari öfugþróun verður að snúa við. Það
kostar mikla fjármuni, hvort heldur eru beinar
kjarabætur, átak í tækjakaupum eða húsnæð-
isbót. Ástandið sýnir að við erum komin í öng-
stræti þar sem erfitt er að snúa við. Viðræður
læknafélaganna og samninganefndar ríkisins
eru í pattstöðu. Um það er vart deilt að kjör
lækna eigi að vera góð – en kröfur þeirra eru
engu að síður, eftir þeim upplýsingum sem
fengist hafa, mun hærri en samningsaðilinn
er, að óbreyttu, tilbúinn að samþykkja. Þá er
litið til þeirra áhrifa sem umtalsverð hækkun
til eins hóps hefur á kröfur annarra stétta,
sem erfitt reynist að standa gegn og í kjölfarið
fylgir hættan á að verðbólga fari úr böndun-
um, gengið falli og krónutöluhækkanir hverfi
eins og dögg fyrir sólu – sem sagt, gamalkunn
íslensk raunasaga.
Það þarf óhjákvæmilega að taka u-beygju
í öngstrætinu, þótt þröngt sé. Það gerist hins
vegar ekki nema að aðrar stéttir sætti sig við
að læknar verði teknir út fyrir sviga – að viður-
kennt verði að svo mikið sé í húfi að feta verði
ótroðna slóð, að aðrir sætti sig við að fá hlut-
fallslega minna í sinn skerf. Þar reynir á for-
ráðamenn launþega, stórra og smárra félaga,
hvort heldur er hjá hinu opinbera eða á al-
mennum markaði – en um leið skilning lækna
á kjaraumhverfi hérlendis og hvað gerlegt sé.
Ákvörðun um að leggja aukna fjármuni
í uppbyggingu heilbrigðiskerfisins á öllum
þeim þremur sviðum sem forstjóri Land-
spítalans nefndi þýðir óhjákvæmilega breytta
forgangsröðun á ýmsum öðrum liðum ríkis-
útgjalda.
U-beygja í öngstræti
Út fyrir sviga
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
LóABORATORíUM LóA hjáLMTýsdóTTiR
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Fréttastjóri: Höskuldur
Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri og stjórnarformaður: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson teitur@
frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
bbb
„… skemmtileg fjölskyldusaga
… bráðfyndin
… afskaplega vel gert.“
Árni Matthíasson / Morgunblaðið
„stórskemmtileg! …
mjög vel utan um allt haldið …
æðisgenginn lestur …
frábær afþreying.“
auður haraldsdóttir / Virkir Morgnar
„… óhætt að mæla hástöfum með.“
guðríður haraldsdóttir / Vikan
„sprenghlægileg …“
Erla hlynsdóttir / FréttatíMinn
www.forlagid.is
– alvöru bókabúð á netinu
16 viðhorf Helgin 21.-23. nóvember 2014