Fréttatíminn - 21.11.2014, Qupperneq 22
N ú fer í hönd sársaukafyllsti tími ársins. Þá
á ég ekki við tímann
sem ég ligg örvingluð í
mæjónesmóðu, flökurt
af jólaölsþambi. Nei, sá
ljúfsári árstími er enn
órafjarlægur draumur.
Tölum aðeins um
tímabilið þar á undan.
Prófatíð. Að vera þátt-
takandi á blóðugum
Hungurleikum hljómar
meira heillandi. Að
vera Tom Hanks í Cast
Away. Eða fórnarlamb
Michael Myers í Hallo-
ween-myndunum.
Vömbin á manni gutl-
ar af kaffidrykkju. Tíð
taugaáföll á baðher-
bergisgólfinu. Efasemd-
ir um eigið gáfnafar.
Ómögulegt að greina
hvar baugarnir enda
og geirvörturnar byrja.
Fimmtíu fermetra íbúð-
in lyktar eins og klósett
í Kolaportinu. Rauðvíns-
bann. Tilraunir til þess
að kæfa sig með koddan-
um sínum. Grátur og gnístran tanna.
Ég er reynslubolti. Bolti sem er
að hefja tíundu prófatíð sína við Há-
skóla Íslands. Nei, ég er ekki Georg
Bjarnfreðarson eða hvað hann nú hét.
Skarta ekki einu sinni tveimur há-
skólagráðum. Engu að síður ætla ég
að taka mér það bessaleyfi að gauka
fáeinum ráðum að bæði þjáningar-
systrum mínum og -bræðrum.
Gerðu áætlun. Settu upp dagskrá
fyrir hvern dag fyrir sig. Áætlaðu
hversu mikið efni þú ætlar að tækla
og innan hvaða tímamarka. Áætlaðu
lærdómshlé. Sem þú eyðir ekki í að
þvo þvott eða fara út með ruslið. Þú
átt pottþétt vikuumgang af fötum.
Það er líka samfélagslega samþykkt
að líta út eins og ljótt bútasaums-
teppi í prófatíð. Ruslið byrjar ekki að
lykta fyrr en á fjórða degi. Það þarf
ekki út strax. Gerðu eitthvað annað.
Andaðu. Horfðu út í loft-
ið. Öskraðu. Hringdu í
mömmu. Fáðu þér göngu-
túr – hann má samt ekki
undir neinum kringum-
stæðum enda á barnum í
hverfinu. Ég tala af biturri
reynslu. Tíunda prófatíðin
og allt það.
Ef þú lærir á Bókhlöð-
unni er gott að hafa lær-
dómsfélaga. Það er óþol-
andi að þurfa að böggla
saman tölvunni sinni í
hvert sinn sem náttúran
kallar. Einhver verður að
vera á vaktinni. Þvaglátin
eru jú tíð – kaffið rennur
í gegn á ljóshraða. Ekki
velja málglöðustu vinkon-
una í þetta hlutverk. Þú
átt að vera að læra. Ekki
að hlusta á væl yfir því að
afmælisútgáfan af Omag-
gio vasanum hafi selst upp
med det samme.
Borðaðu morgunmat.
Alla daga. Doritos og Red
Bull eru ekki morgun-
matur. Staðgóður morgun-
verður er bráðnauðsynlegt
bensín. Tvær bingókúlur í
eftirrétt – til þess að minna sig á að
það er eitthvað til þess að lifa fyrir.
Sofðu. Hentu þér í sófa á Bókhlöð-
unni. Hrjóttu í röðinni í Hagkaup. Það
má allsstaðar grípa sér fimm mínútna
orkulúr. Gerir gæfumuninn. Þess ber
þó að gæta að lúrinn endi ekki í fimm
tímum. Það er djöfullegt.
Þegar bugun er að ná sögulegu há-
marki og hvorki bingókúlur né jóla-
lögin á Létt-Bylgjunni ná upp lífsvilj-
anum er T5 eina ráðið. T5 eða „taka
fimm“ eru fimm mínútna óáætluð
lærdómshlé. Sem
einungis má nota í
neyð. Þegar ég tek
T5 þá lygni ég aftur
augunum. Sé jólafrí
og foreldrahús í
hillingum. Mömm-
umat. Áskrift að
Stöð 2. Frítt þvotta-
efni. Frítt WiFi.
Greiðslukortið mitt
lúrandi í vasanum
langt fram yf ir
áramót. Jólahald.
Hangikjöt. Heima-
lagað rauðkál. Ah,
örvænting mín vík-
ur. Ég sé ljós við
enda ganganna.
Eða við skulum hafa
það ljóstýru. Alveg
agnarsmáa. En hún
er þarna. T5 gerir
kraftaverk. Nema
þegar það endar
í miklu meira en
f imm mínútum.
Og maður rankar
við sér í nýskúruðu
húsi, búin að flokka
allar ljósmyndir í
tölvunni og baka
sex sortir.
Ef þú hefur lifað
af prófatíð áður
– þá eru líkurnar
þér í hag. Þú lifir þessa sennilega af
líka. Ef þetta er þín fyrsta prófatíð hef
ég ekkert handa þér nema tilvitun í
Hungurleikana: May the odds be ever
in your favor.
Guðrún Veiga Guð-
mundsdóttir er
mannfræðinemi frá
Eskifirði sem vakið
hefur athygli fyrir
bloggskrif sín. Hún
stjórnaði sjónvarps-
þættinum Nenni ekki
að elda og gefur út
samnefnda bók fyrir
jólin. Guðrún Veiga
er komin í prófagír
sem þýðir að hún
má ekki borða
Doritos og Red Bull í
morgunmat.
Þegar baugarnir ná niður að geirvörtum
Guðrún
Veiga
Guðmundsdóttir
ritstjorn@
frettatiminn.is
Þegar ég tek
T5 þá lygni
ég aftur
augunum.
Sé jólafrí og
foreldrahús
í hillingum.
Mömmumat.
Áskrift að
Stöð 2. Frítt
þvottaefni.
Frítt WiFi.
www.kia.com
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
4-
21
49
Nútímatækni og hönnun hefur ekki einungis skilað mögnuðum gæðabíl, heldur er hann
einn sparneytnasti fjöldaframleiddi dísilbíll í heimi. Magn CO2 í útblæstri er einnig mjög
lítið svo hann fær frítt í stæði í Reykjavík í 90 mínútur í senn. Að sjálfsögðu er 7 ára
ábyrgð á nýjum Kia Rio, svo hún gildir til ársins 2021.
Komdu og reynsluaktu, við tökum vel á móti þér.
Eyðir aðeins frá 3,6 lítrum á hundraðið
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi.
Þú finnur „Kia Motors Ísland“
á Facebook
Eigum
bíla ti
l
afgre
iðslu
strax
!
Glæsilegur Kia Rio
Útborgun aðeins 259.777 kr.
Verð frá 2.590.777 kr. Rio 1,1 dísil
90% lán útborgun aðeins 259.777 kr.
Aðeins 38.777 kr. á mánuði í 84 mánuði**M.v. 90% bílalán frá Lykli í 84 mánuði. 8,9% óverðtryggðir vextir. Árleg hlutfallstala kostnaðar 10,58%. Nánar á lykill.is.
22 pistill Helgin 21.-23. nóvember 2014