Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.11.2014, Blaðsíða 48

Fréttatíminn - 21.11.2014, Blaðsíða 48
48 ferðalög Kristján Sigurjónsson kristjan@turisti.is Helgin 21.-23. nóvember 2014 Söguferðir bjóða upp á framandi og fræðandi ferðir S öguferðir hafa í gegnum tíð-ina staðið fyrir ferðum um lönd og samfélög sem mörg hafa ekki sést á hinu stóra hlað- borði ferðaþjónustunnar. Starfs- fólk Söguferða leggur áherslu á persónulega þjónustu sem birtist einna helst í því að viðskiptavinum býðst sá möguleiki að taka þátt í skipulagningu ferðanna. Sögu- ferðir gera einnig miklar kröfur til fararstjóra hvað varðar þekkingu á sögu og menningu áfangastaða og þess fólks sem þar býr. Jafnframt hefur ávallt verið lögð áhersla á að halda verði í lágmarki og gæðum í hámarki. Söguferðir eru að hluta til eins konar tenglaþjónusta sem ein- staklingar, félög eða hópar geta leitað til við skipulagningu ým- issa ferða. Söguferðir bjóða upp á fararstjóra sem búa yfir þekk- ingu á fyrirhuguðum áfangastað. Fararstjórinn miðlar þekkingu sinni og skipuleggur ferð í sam- ráði við hópinn og undirbýr ferða- langana með það að leiðarljósi að þeir munu njóta ferðarinnar, bæði á meðan henni stendur og ekki síður þegar heim er komið. Að ferð lokinni eiga ferðlangar að geta geymt minningar um yndis- lega ferð um ókomin ár. Söguferðir hyggjast færa út kví- arnar á komandi ári og í undir- búningi er samstarf við ferða- skrifstofuna Vita. Fyrirhugaðar er ýmsar spennandi ferðir, en helst má nefna ferðir til Albaníu sem verða í svipuðum dúr og Söguferðir hafa áður skipulagt og tókust afar vel. Þá eru í bígerð ferðir til Búlgaríu, Wales, Hvíta-Rússlands, Póllands, Malasíu, Dúbaí, Kanada, Banda- ríkjanna, Brasilíu og Bútan. Einn- ig er á döfinni fræðsluferð um upp- haf kristinnar miðaldamenningar á Íslandi með ferð um Þýskaland og Frakkland. Næstkomandi sunnudag, 23. nóvember, fer fram kynning á fyrir- huguðum ferðum árið 2015. Kynn- ingin fer fram í Norræna húsinu og hefst klukkan 14. Allir eru vel- komnir og áhugafólk um öðruvísi ferðir, sögu og menningu ætti svo sannarlega ekki að láta þennan við- burð framhjá sér fara. Unnið í samstarfi við Söguferðir Ferðaskrifstofan Söguferðir býður upp á skipulagða fræðslu um lönd, borgir, sam- félög þjóða og menningar- heima. Markmið Söguferða er að búa til ferðaáætlanir í samráði við viðskiptavini sína frekar en að selja tilbúnar pakkaferðir. Á döfinni eru spennandi ferðir til ýmissa framandi landa í Evrópu, Asíu og Suður-Ameríku.  flug hvað borga börn og ungmenni fyrir flugSæti? Í bókunarfomum á heimasíðum flug-félaga eru börnum oftast skipt í tvo aldurshópa, tveggja til ellefu ára og hins vegar ungbörn. Sum flugfélög veita þeim sem tilheyra eldri hópnum allt að fimmtungs afslátt af fullorðinsgjaldinu. Það er þó ekki alltaf raunin. Hjá easyJet og WOW air greiða til að mynda börn sem náð hafa tveggja ára aldri venjulegt fargjald. Flugvallargjöld á Keflavíkurflug- velli eru hins vegar um tvöfalt hærri fyrir fullorðna farþega en þá sem eru á aldr- inum tveggja til ellefu ára. Hjá WOW air er tekið tillit til þess en heildarfargjaldið hjá easyJet er það sama fyrir fullorðna og börn. Tösku- og ungbarnagjaldið álíka hátt Farþegar sem eru yngri en tveggja ára eiga ekki rétt á sérsæti um borð í flugvél- um og þurfa því að sitja í fangi samferða- manna sinna. Það verður engu að síður að kaupa farmiða fyrir ungbörnin og það eru tvær mismunandi leiðir sem flugfélögin fara í verðlagningu á farmiðum fyrir þau yngstu. Annað hvort rukka þau um tíund af almennu fargjaldi, að frádregnum sköttum og gjöldum, eða sérstakt ung- barnafargjald. Hjá easyJet og WOW air er þetta gjald 4000 krónur fyrir hvora leið sem er álíka mikið og borga þarf fyrir að innrita farangur hjá þessum flug- félögum. Þeir sem fljúga með Icelandair, Norwegian eða SAS greiða mun lægra ungbarnagjald ef fullorðinsmiðinn er í ódýrari kantinum. Ef hefðbundið fargjald með þessum félögum er hins vegar ná- lægt áttatíu til hundrað þúsund krónum þá er ungbarnafarmiðinn álíka dýr og hjá easyJet og WOW air. Sérstök fargjöld fyrir ungt fólk Flugfélögin SAS og Norwegian fljúga hingað allt árið frá Osló og hjá báðum félögum eru í boði lægri fargjöld fyrir þá sem eru yngri en 26 ára. Þessi hópur greiðir þá fast gjald sem getur verið nokkru ódýrara en fullorðinsmiðarnir. Flugmiði, báðar leiðir, með SAS til Oslóar kostar þá rúmar 25 þúsund krónur en hjá Norwegian greiða tólf til tuttugu og fimm ára um fjórtán þúsund krónur. Hjá norska félaginu þarf auk þess að greiða fyrir farangur. Þetta tilboð Norwegian gildir Mikill munur á barnafargjöldum flugfélaganna Flugfarþegar sem eru orðnir tveggja ára þurfa í sumum tilfellum að borga jafn mikið fyrir flugsætið sitt og fullorðna fólkið. Ungbörn borga líka mis- munandi mikið fyrir að sitja í fangi foreldranna. Það er að ýmsu að hyggja þegar kannað er hvað fargjald fyrir börn og ungmenni kostar. Mynd NordicPhotos/ Getty Images aðeins fram að áramótum. Í vetur verða Icelandair, WOW air, easyJet, SAS og Norwegian umsvifamest í flugi til og frá landinu og eins og sjá má þá er margt sem barnafjölskyldur þurfa að taka með í reikninginn þegar bera á saman fargjöld félaganna fimm. Pólland: Hafnarborgin Gdansk. Hvíta Rússland. Höfuðborgin Minsk kemur glettilega á óvart. Moldóvía, kyrrð í sveitinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.