Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.11.2014, Síða 79

Fréttatíminn - 21.11.2014, Síða 79
Alvofen EXPRESS alvogen.is HRAÐAR VERKAR 400 mg Fæst án lyfseðils í næsta apóteki | Lesið fylgiseðilinn fyrir notkun BÓLGUEYÐANDI, VERKJASTILLANDI OG HITALÆKKANDI MJÚK HYLKI Verkar 36% hraðar en hraðverkandi töflur og 150% hraðar en hefðbundið íbúprófen. Alvofen Express 400 mg mjúk hylki. 50 stk. í pakka. Ábendingar: Alvofen Express er ætlað til notkunar hjá fullorðnum og börnum eldri en 12 ára. Alvofen Express er ætlað til meðferðar gegn einkennum gigtar- eða vöðvaverkja, bakverks, taugaverkja, mígrenis, höfuðverks, tannverks, tíðaþrauta, kvefs með hita og inflúensu. Skammtar og lyfjagjöf: Fullorðnir, aldraðir og börn eldri en 12 ára: Nota skal minnsta virka skammt í eins stuttan tíma og hægt er til að ná stjórn á einkennum. Sjúklingurinn skal leita til læknis ef einkennin eru viðvarandi eða versna, eða ef nota þarf lyfið í meira en 10 daga. Unglingar (≥ 12 ára): Ef nauðsynlegt er að nota lyfið lengur en í 3 daga eða ef einkennin versna skal ráðfæra sig við lækni. Taka skal 1 hylki með vatni, allt að þrisvar sinnum á dag eftir þörfum. Láta skal líða a.m.k. 4 klst. á milli skammta. Ekki má taka meira en 3 hylki á sólarhring. Frábendingar: Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna. Fyrri ofnæmisviðbrögð við asetýlsalisýlsýru eða öðrum bólgueyðandi gigtarlyfjum sem ekki eru sterar. Virkt sár/blæðing í meltingarvegi eða saga um endurtekin sár/blæðingar í meltingarvegi. Saga um blæðingar eða rof í meltingarvegi í tengslum við fyrri meðferð með bólgueyðandi gigtarlyfjum. Alvarleg lifrarbilun, alvarleg nýrnabilun eða alvarleg hjartabilun. Blæðing í heilaæðum eða önnur virk blæðing. Breytingar á blóðfrumumy- ndun af óþekktum orsökum. Veruleg ofþornun (vegna uppkasta, niðurgangs eða ófullnægjandi vökvainntöku). Ekki skal nota Alvofen Express á síðasta þriðjungi meðgöngu. Sérstök varnaðarorð: Tíðni aukaverkana er hærri hjá öldruðum. Sjúklingar með sögu um berkjuastma eða ofnæmissjúkdóm geta fengið berkjukrampa. Ekki nota með öðrum bólgueyðandi gigtarlyfjum þ.á.m. sértækum COX2 hemlum. Sjúklingar með rauða úlfa eða blandaða bandvefssjúkdóm eru í aukinni hættu á heilahimnubólgu án sýkingar. Nýrnastarfsemi getur skerts enn frekar, unglingar með vökvaskort eru í aukinni áhættu. Starfstruflanir í lifur. Áhrif á hjarta og æðar og heilaæðar: Nauðsynlegt að gæta varúðar hjá notendum sem eru með sjúkdóma tengda hjarta, æðum eða heilaæðum og leita upplýsinga hjá lækni eða lyfjafræðingi áður en lyfið er notað. Meltingarfæri: Mögulegt er að sjúkdómar í meltingarfærum versni (sáraristilbólga, Crohns). Greint hefur verið frá blæðingum, sárum og rofi í meltingarvegi sem geta verið lífshættuleg við notkun allra bólgueyðandi gigtarlyfja. Stærri skammtar auka líkur á þessum aukaverkunum. Sjúklingar með sögu um eiturverkanir í meltingarvegi skulu greina frá öllum óvenjulegum einkennum frá kvið, sérstaklega á upphafsstigum meðferðar. Ráðlagt er að gæta varúðar hjá sjúklingum sem fá lyf samhliða sem geta aukið hættu á sárum eða blæðingu (s.s warfarin asetýlsalisýlsýru ofl. Húð: vegna þess að örsjaldan hefur verið greint frá alvarlegum húðviðbrögðum þá skal hætta meðferð með íbúprófens um leið og húðútbrot, sár á slímhúð eða einhver önnur ofnæmiseinken- ni koma fram. Lyfið inniheldur sorbitól. Sjúklingar með arfgengt frúktósaóþól skulu ekki taka lyfið. Meðganga: Forðast skal notkun íbúprófens ef unnt er fyrstu 6 mánuði meðgöngu. Ekki má nota íbúprófen á 3. þriðjungi meðgöngu. Brjóstagjöf: Í takmörkuðum rannsóknum kemur íbúprófen fram í mjög lágri þéttni í brjóstamjólk og aukaverkanir á brjóstmylking því ólíklegar. Frjósemi: Nokkrar vísbendingar eru um að lyf sem hamla nýmyndun cýklóoxýgenasa/prostaglandíns geti skert frjósemi hjá konum með áhrifum á egglos. Þetta gengur til baka þegar meðferð er hætt. Markaðsleyfishafi: Alvogen IPCo S.à.r.l., 5 Rue Heienhaª, L-1736, Senningerberg, Lúxemborg. Dagsetning endurskoðunar textans: 13.júní 2014. LESIÐ LEIÐBEININGAR Á FYLGISEÐLI VANDLEGA FYRIR NOTKUN LYFSINS.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.