Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.11.2014, Page 80

Fréttatíminn - 21.11.2014, Page 80
TVEIR HRAFNAR listhús, Art Gallery Baldursgata 12 101 Reykjavík +354 552 8822 +354 863 6860 +354 863 6885 art@tveirhrafnar.is www.tveirhrafnar.is Opnunartímar 12:00-17:00 fimmtudaga til föstudaga 13:00-16:00 laugardaga og eftir samkomulagi 8. nóvember - 29. nóvember JÓN ÓSKAR Camerarctica. Frá vinstri eru Bryndís, Örn, Marta, Hildigunnur, Svava, Sigurður, Ármann. Kammertónar á sunnudagskvöld Kammerhópurinn Camerarctica leikur á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins á sunnudagskvöld. Tónleikarnir fara fram í Norðurljósasal Hörpu og hefjast klukkan 19.30. Tónleikar Camerarctica hafa verið árviss viðburður hjá Kammermúsík- klúbbnum um langt skeið. Verkefnaval hópsins er óvenjulegt og áhugavert, en þar er tónlist 18. og 20. aldar teflt saman. Að þessu sinni verða flutt verk eftir Wolfgang Amadeus Mozart og Béla Bartók. Miðasala á tónleikana er í Hörpu og á harpa.is og kostar miðinn 3.500 kr. Nýir félagar í Kammermúsík- klúbbnum fá nú félagsskírteini fyrir aðeins 5.000 krónur og gildir það á ferna tónleika. Hægt er að skrá sig á heimasíðu klúbbsins, kammer.is. C aritas heldur á sunnudaginn tónleika í Landakotskirkju til styrktar ungu fólki með geðsjúkdóma. Einvala lið tónlistar- fólks mun koma þar fram og flytja efnisskrá sem fellur vel að aðvent- unni og meðal þeirra eru Sigrún Eð- valdsdóttir konsertmeistari, Kjart- an Valdemarsson á harmoniku og hljómborð, Bryndís Halla Gylfadótt- ir sellóleikari, Gunnar Kvaran selló- leikari, Vox feminae og stúlknakór Reykjavíkur undir stjórn Margrétar Pálmadóttur og Kristján Jóhannsson einsöngvari. „Þetta eru tuttugustu afmælis- tónleikar Caritas,“ segir Sigríður Ingvarsdóttir formaður. „Við mun- um bjóða upp á klassíska tónlist eins og hún gerist best og svo verð- ur líka tangó sveifla. Fjöldi lista- manna mun koma þarna fram og ég get lofað því að þetta verða glæsi- legustu tónleikar okkar hingað til. Það eru að sjálfsögðu allir að gefa vinnu sína til styrktar þessu góða málefni. Þetta árið mun allur ágóði styrktartónleikanna renna til ungs fólks með geðsjúkdóma. Við ákváð- um að styrkja þennan málaflokk í ár þar sem hann hefur verið ofboðs- lega mikið útundan. Það er svo mik- il þöggun í kringum ungt fólk með geðraskanir og ennþá eru fordómar til staðar. Þetta er mjög viðkvæmur málaflokkur sem er mikilvægt að styrkja.“ Allir listamenn gefa vinnu sína til styrktar málefninu. Selt verð- ur inn við innganginn og er miðaverð 4500 krónur. Tónleikar til styrktar ungu fólki með geðsjúkdóma Sigrún Eðvaldsdóttir kemur fram á styrktartónleikum í Landakotskirkju á sunnu- daginn, 23. nóvember, klukkan 16. Allur ágóði af miðasölu rennur til Laugaráss, endurhæfingar geðsviðs Landspítalans, þar sem ungt fólk með geðraskanir nýtur meðferðar. Sigurður Guðmundsson, Rúrí, Steingrímur Eyfjörð, Rakel McMahon, Haraldur Jónsson, Hildigunnur Birgisdóttir, Davíð Örn Halldórsson og Einar Örn Benediktsson eru meðal þeirra listamanna sem eiga verk á fjáröfl- unaruppboði Nýlistasafnsins sem haldið verður á sunnudag. Nýló, sem stofnað var árið 1978, flutti nýverið safneign sína upp í Breiðholt og leitar nú að hent- ugu sýningarrými. Fjölmargir listamenn hafa gefið safninu listaverk fyrir fjáröflunina til þess að tryggja varanlegri aðstöðu fyrir safnið og starfsemi þess. Uppboðið verður klukkan 14 á sunnudag í lestrarsal Safnahúss-  Myndlist FjáröFlunaruppboð á sunnudag Þekktir listamenn á uppboði Nýló Forvitnir listunnendur kynntu sér verkin sem verða á uppboði Nýló á sunnudag. Ljósmynd/Hari ins að Hverfisgötu 15 í Reykjavík. Verkin eru til sýnis í Safnahúsinu milli klukkan 17-19 í dag, föstudag, og frá klukkan 12-16 á laugardag. Einnig er hægt að kynna sér þau á nylo.is/uppbod. Það verður sannkölluð tónlistar- veisla í Austurbæ á þriðjudags- kvöldið næsta, 25. nóvember, þegar haldnir verða tónleikar til styrktar Ástusjóði. Ástusjóður var stofnaður 25. júlí til minn- ingar um Ástu Stefánsdóttur lögfræðing sem lést af slys- förum í sumar í Bleiksár- gljúfri í Fljótshlíð. Á tónleikunum, sem hefj- ast klukkan 20, koma fram Árstíðir, Byzantine Silhouette, Megas og Magga Stína, Ragga Gröndal og Svavar Knút- ur. Miðar eru seldir í Sjáðu á Hver f is - göt u 52 , Kaffifélag- inu Skóla- vörðustíg 10 og á Midi.is. Ástjusjóður styrkir Lands- björgu og björgunarsveitirnar um hinar dreifðu byggðir lands- ins og vinnur að hugðarefnum Ástu sem innan lögfræð- innar voru einkum um- hverfisréttur, refsiréttur, réttarfar og mannrétt- indalöggjöf. Hún hafði jafnframt brennandi áhuga á jafnréttis- og menningarmálum. Vinir hennar vilja með sjóðnum minn- ast Ástu og láta í ljós ævarandi þakklæti sitt og fjölskyldu hennar vegna starfa björg- unarsveita og lögreglu eftir slysið við leit- ina að Ástu. Tónleikar til styrktar Ástusjóði 80 menning Helgin 21.-23. nóvember 2014

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.