Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.12.2014, Blaðsíða 2

Fréttatíminn - 22.12.2014, Blaðsíða 2
Erla Hlynsdóttir erla@ frettatiminn.is Samfylking og Fram sókn tapa fylgi í borginni Samfylkingin og Framsóknarflokkurinn hafa misst fylgi í Reykjavík frá kosningu- num í vor, samkvæmt könnun Gallup. Sjálf- stæðisflokkurinn stendur í stað en aðrir flokkar bæta við sig fylgi. RÚV greindi frá þessu. Könnun Gallup var gerð 17. nóvem- ber til 17. desember. Samfylkingin er enn stærsti flokkurinn en fylgi hennar minnkar um þrjú prósentustig frá kosningum og er tæp 29 prósent. Sjálfstæðisflokkurinn stendur í stað í rúmum 25 prósentum. Björt framtíð bætir við sig tveimur prósentusti- gum og er með tæp átján prósent. Píratar bæta mestu við sig, fimm prósentustigum, og eru með tæp ellefu prósent. Vinstri græn bæta lítillega við sig og eru með tæp tíu prósent en Framsókn og flugvallarvinir eru með tæp sex prósent og hafa misst fimm prósentustig af fylgi sínu. Þakkantur féll á konu í Hafnarstræti Þakkant ur og báru járnsbút ar féllu á gang­ andi vegfarenda í Hafn ar stræti aðfaranótt sunnudags. Konan slasaðist ekki al var lega og hélt áfram að skemmta sér, að því er haft er eftir lögreglu á mbl.is. Landsban- kinn er með starfsemi í húsinu sem er að Hafnarstræti 5. Eigendur hússins hafa gert viðeigandi ráðstafanir til að þetta endurtaki sig ekki. Hátt leiguverð Airbnb að kenna Leiguvefurinn Airbnb er stærsti or- sakavaldurinn að hækkandi leiguverði miðsvæðis í Reykjavík. Þetta staðhæfir Sölvi Blöndal, sjóðsstjóri hjá fasteigna- félaginu GAMMA, í viðtali við tímaritið Mannlíf. Gamma rekur stærsta einkarekna leigufélag landsins og hafa margir lýst yfir áhyggjum af umfangi þess og áhrifum á leiguverð. Sölvi vísar ábyrgðinni á Airbnb: „Nánast allir sem vettlingi geta valdið eru að leigja út til ferðamanna. Það er mikilvægt að átta sig á því að jafnvel þó að GAMMA reki stærsta einkarekna leigufélag landsins og umsvifin séu sannarlega mikil, þá er félagið ekki markaðsráðandi aðili af neinu tagi, hvorki í fasteignaviðskipum né á leigumarkaði. En auðvitað er það okkar hlutverk að skila fjárfestum okkar ávöxtun.“ John Grant með þátt um Ísland á BBC Bandaríski tónlistamaðurinn John Grant, sem búsettur er á Íslandi, fjallaði um íslenska tónlist og tónlistarmenn í útvarpsþætti á BBC Radio 6 um helgina. Auk þess fjallaði hann um listamenn sem hafa nýtt sér Ísland sem innblástur. Þáttur Grants nefndist Songs from a Dark Place og í honum ræddi hann meðal annars við strákana í Sigur Rós. Meðal tónlistarmanna sem Grant lék lög með eru Björk, Damon Albarn og Ásgeir Trausti. Hægt er að hlusta á þáttinn á vef BBC. V ið höfum eytt jólunum í Hjálpræðishernum frá því árið 2009,“ segir Dúna Árnadóttir sem ásamt dætrum sín- um er einn af sjálfboðaliðum í jóla- haldi Hjálpræðishersins en þar eyða yfir 100 manns jólunum ár hvert. „Dætur mínar hafa alltaf haft það rosalega gott og ég vildi bara að þær yrðu þakklátari fyrir það sem þær hafa. Þær voru alveg jafn spenntar fyrir þessu og ég og alveg örugg- lega þakklátari fyrir sitt en flestir á þeirra aldri. En mér fannst allt í lagi að þær sæu það að jólin þyrftu ekki að snúast um það að fá sem mest í jólagjöf, það væri ekki andi jólanna heldur að láta gott af sér leiða. Í upp- hafi fórum við öll fjölskyldan saman en síðan að við pabbi þeirra skild- um þá höfum við mæðgurnar alltaf eytt jólunum með stórum hópi fólks í Hjálpræðishernum.“ Mjög blandaður hópur fólks Rannvá Olsen hefur haldið utan um jólahaldið í húsi hersins við Kirkjustræti í mörg ár. Hún segir það besta við jólin þar vera hversu blandaður hópur fólks komi þar saman. „Margir eru einstæðingar sem vilja ekki eyða jólunum einir og þó nokkuð kemur af einstæðum foreldrum sem eru ekki með börnin hjá sér yfir jólin en vilja ekki vera einir á aðfangadag,“ segir Rannvá. „Svo kemur hingað fólk sem á hvergi heima en líka fólk sem vill vera hér vegna þess að hér er svo góður jólaandi. Og svo eru það allir sjálfboðaliðarnir sem koma hingað til að hjálpa við eldamennskuna og leggja á borð.“ Ýmis félagasamtök auk verslana styrkja jólahald hersins og segir Rannvá það þeim að þakka auk sjálf- boðaliða að fólk sem annars væri eitt eða úti á götu geti upplifað jólaand- ann í hópi góðs fólks. Nauðsynlegt er að hringja áður og boða komu sína svo Rannvá viti hversu mikinn mat á að elda en í ár verður aspassúpa í for- rétt, lambakjöt með villisveppasósu í aðalrétt og ís í eftirrétt. Þjóna til borðs og dansa í kringum tréð „Dætur mínar elska þetta jafn mikið og ég, þetta eru bara okkar jól. Ég er ekkert trúuð og myndi frekar segja að ég væri á móti trúarbrögðum,“ segir Dúna, en þarna er yndislegt að vera, svona eins og manni finnst að jólin eigi að vera. Við undirbúum salinn og svo þegar gestirnir setj- ast niður klukkan 18 þá skömmtum við á diska og þjónum til borðs. Svo dönsum við öll saman í kringum tréð.“ Dúna segir fólkið vera misjafn frá ári til árs, sumir sjálfboðaliðar komi alltaf en annars sé það frekar breyti- legt. Við erum örugglega svona tutt- ugu manns sem hjálpum til og það er mjög fjölbreyttur hópur fólks sem kemur af misjöfnum ástæðum. Ég geri þetta bara ef eigingirni, af því að þetta lætur mér sjálfri líða betur, þetta er besta gjöfin.“ Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is  Sjálfboðaliðar jólahald hjá hjálpræðiShernum Dúna Árnadóttir og dætur hennar segja jólastemninguna í Hjálpræðishernum vera einstaka en þær hafa unnið sem sjálfboðaliðar þar í mörg ár. Þær sjá um borðhaldið og þjóna til borðs og geta ekki hugsað sér að eyða aðfangadagskvöldi annarsstaðar því að hjálpa öðrum sé besta gjöfin. Yfir hundrað manns koma í Hjálpræðisherinn á aðfangadag og fá þar hátíðarmat og dansa í kringum jólatréð. Rannvá Olsen sér um jólahaldið í Hjálpræðishernum en þar hafa Dúna Árnadóttir og dætur hennar, Þóra Katrín og Rebekka Þórs- dætur, eytt aðfangadagskvöldi í mörg ár. Þær segja jólastemninguna þar einstaka. Mynd/Hari Besta gjöfin að fá að hjálpa öðrum á jólunum  SlyS ung Stúlka miSSti báða reiðheStana Sína Tólf hestar drukknuðu í Bessastaðatjörn Tólf hestar fundust drukkn- aðir í Bessastaðatjörn í gær, sunnudag. Sjö hestanna voru í eigu Íshesta en fimm í eigu félaga í Hestamannafélaginu Sóta. „Þetta er skelfilegt,“ segir Einar Bollason hjá Ís- hestum. „Við komum aldrei til með að vita nákvæmlega hvað gerðist,“ segir hann en hest- arnir fóru út á ísilagða tjörnina sem gaf undan með þeim af- leiðingum að þeir drukknuðu. Hestarnir voru á svokallaðri haustbeit hjá Hestamanna- félaginu Sóta sem hefur verið með beit á Álftanesi í áratugi. Litið var eftir hestunum fyrir örfáum dögum og þá var allt með felldu. Verið var að smala hestunum á laugardag en kom þá í ljós að tólf hesta vantaði. Þyrla Landhelgisgæslunnar var á hefðbundnu eftirlitsflugi þegar fréttist af málinu og tók þyrlan þá þátt í leitinni. Nokkuð af afar efnilegum og verðmætum hestum voru meðal þeirra sem drukknuðu, þar af tveir reiðhestar ungrar stúlku. „Við erum fyrst og fremst að missa vini okkar. Hugur okkar hjá Íshestum er ekki síst hjá félögum okkar hjá Sóta. Ég held að allir hestamenn landsins eigi erfitt með að hugsa um baráttu þessara hesta þegar þeir féllu ofan í ískalda vökina,“ segir Einar. Hestarnir voru á haustbeit á Álftanesi, á landi þar sem hestar hafa verið á beitarlandi í áratugi. Mynd úr safni JÓLATILBOÐ Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400 FULLT VERÐ 8.990 5.990 Pizzasteinn Spaði og skeri fylgja 15” Skoðið úrvalið á www.grillbudin.is Áramótablað Fréttatímans kemur út þriðjudaginn 30. desember. Skil á auglýsingum í það blað eru mánudaginn 29. desember. Gleðileg jól. 2 fréttir Helgin 22.­28. desember 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.