Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.12.2014, Blaðsíða 58

Fréttatíminn - 22.12.2014, Blaðsíða 58
58 bækur Helgin 22.-28. desember 2014  RitdómuR SvaRthvítiR dagaR  RitdómuR veRaldaRSaga mín – æviSaga hugmynda P étur Gunnarsson segir í Veraldar-sögu sinni – ævisögu hugmynda frá mikilvægum mótunarárum í lífi sínu, en bókin hefst þegar hann heldur til náms í Frakklandi árið 1968. „Reyndar var erindi mitt til Parísar ekki að nema heldur skrifa. Þetta var á því stigi rithöfundarköllunarinnar þegar manni finnst að allt og sumt sem þurfi sé nógu sláandi yrkisefni, afgangurinn komi af sjálfu sér.“ (20) Hinn ungi Pétur er ekki bara að upp- götva ástina og listina, heldur einnig póli- tíkina og allar hugmyndirnar sem gras- seruðu í suðupotti Evrópu á þessum tíma róttækninnar. Hann hefur kynnst konunni sem verður hans lífsförunautur og sam- an fara þau í ævintýralegt puttaferðalag um Ítalíu og Grikkland. Á þessum árum verður hann rithöfundur, sendir frá sér sitt fyrsta handrit (sem hann fær raunar í höf- uðið aftur) en síðar tekur Sigfús Daðason hann upp á sína arma og samþykkir útgáfu ljóðabókarinnar Splunkunýs dags, eins og frægt er orðið. Hvað mótar manneskju? Hvað gerir okkur að því sem við erum? Hvernig verð- ur rithöfundur rithöfundur? Hvaða atvik verða til þess að við vöknum til vitundar um veröldina í kringum okkur? Pétur leitar í smiðju Þórbergs Þórðarsonar og talar um endurfæðingar sínar, „þessar umpólanir sem marka skil og breyta manni“ (54) sem hann segir hafa verið bíó, hesta, kynhvöt, HKL, Bítlana, ástina og Marx. Ekki einungis kemst maður nær höf- undarverki Péturs Gunnarssonar og því sem mótaði hann, heldur líka ýmsu öðru sem maður hafði kannski ekki leitt hugann að áður. Pétur er fræðari af guðs náð og honum lætur vel að segja frá aðskiljanleg- ustu hlutum á skýran og skilmerkilegan máta. Dæmi má nefna úr bókinni, þegar hann fer yfir lífshlaup Karls Marx og gerir það svo átakanlegt og heillandi að lesanda liggur við gráti. Raunar hvarf ég svo gersamlega inn í bókina að ég gleymdi að nótera hjá mér það sem mig langaði helst að segja í þess- ari umsögn. Því skrifa ég bara eitthvað, í von um að fólk lesi ekki textann, heldur líti bara á stjörnurnar (er einhver búinn að fá nóg af þessum stjörnubröndurum? ókei, ég er hætt). Það sem líka er svo aðlaðandi við Ver- aldarsögu Péturs er að hann teygir eng- an vaðal yfir fimm hundruð síður (sem er sennilega frekar freistandi þegar maður býr að gáfum hans og lífsreynslu). „Stíll er að þegja réttilega um það sem ekki skiptir máli,“ hefur verið sagt. Og enn- fremur: „Stíllinn er maðurinn sjálfur.“ Og það er sannarlega heillandi manneskja sem myndast á síðum bókarinnar. Stillt, hóg- vær og launfyndin. Veraldarsaga Péturs Gunnarssonar er óvenjuleg bók. Hún „lætur ekki mikið yfir sér,“ eins og sagt er, en er djúp, hlý og fögur. Hún miðlar vakningu hugmynda og andrúmslofti snemmfullorðinsáranna á sannfærandi hátt og hún vekur nostalgísk- an lífsþorsta í brjósti lesandans.-þhs Umpólanir Péturs Vetrarhefti tímaritsins Þjóðmála kom út á dögunum. Meðal efnis í því er ritgerð Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um fall íslensku bankanna þar sem m.a. er leitað skýringa á því hvers vegna bresk yfirvöld beittu hryðjuverkalögum til að frysta eigur Landsbankans. Ívar Jónsson fjallar um hugmyndafræði Sjálfstæðisflokksins og mælist til þess að flokkurinn hefji „samfélagslega ábyrgð“ á ný til vegs í stefnu sinni. Björn Bjarnason skrifar um endurminningar Jóns Steinars Gunnlaugssonar, afsögn Hönnu Birnu Kristjánsdóttur og blekkingar vegna Reykjavíkurflugvallar. Þá dregur Þorsteinn Antonsson fram í dagsljósið bréf Kristmanns Guðmundssonar til útgefanda síns, Ragnars í Smára og Karl Sigurbjörnsson skrifar jólahugvekju. Jóhann J. Ólafsson skrifar og um íslenska mannanafnahefð. Ritstjóri Þjóðmála er Jakob F. Ásgeirsson en tímaritið hefur komið út fjórum sinnum á ári síðan 2005. Vetrarhefti Þjóðmála komið út Þær Birgitta Elín Hassell og Marta Hlín Magnadóttir hafa gengið frá samningi við Arena Verlag, einn stærsta útgefanda barna- og unglingabóka í Þýskalandi, um útgáfu þriggja fyrstu bókanna um Rökkurhæðir. Samningurinn við Arena Verlag markar tímamót í starfsemi Birgittu Elínar og Mörtu Hlínar sem höfunda og útgefenda, að því er segir í fréttatilkynningu. Fulltrúi þýska forlagsins hafði samband við þær á bókamess- unni í Frankfurt í ár og í kjölfarið hófust viðræður sem lyktaði með samningi. Arena Verlag hyggst gefa út fyrstu Rökkurhæðabókina, Rústirnar, í janúar 2016 og síðan þær næstu, Óttulund og Kristófer, þremur og sex mánuðum síðar. Þýska forlagið hyggst jafnframt gefa út hinar þrjár Rökkurhæða- bækurnar, sem út eru komnar hérlendis, og þá sjöundu og síðustu, sem verður skrifuð og gefin út á næsta ári hjá Bóka- beitunni. Anika Wolff þýðir bækurnar. Hún hefur áður þýtt bækur höfunda á borð við Guðrúnu Helgadóttur, Guðrúnu Evu Mínvervudóttur og Kristínu Steinsdóttur á þýsku. Rökkurhæðir gefnar út í Þýskalandi Jóhanna Kristjónsdóttir skrifar í Svarthvítum dögum um æsku sína, frá því að hún man eftir sér og þar til hún er sautján ára og kynnist Jökli Jakobssyni, en árunum eftir það hefur hún gert skil í öðrum sjálfsævisögulegum bókum, m.a. Perlum og steinum (1993), Kæra Keith (1997) og Insjallah: á slóðum araba (2001). Að mörgu leyti eru Svarthvítir dagar ákaflega hefðbundin sjálfsævisaga. Fyrirvarar eru settir við brigðult minni og stundum bætt um betur með „ég man þetta ekki, en mér var sagt frá því.“ Líkt og í hefðbundnum sjálfsævisögum er forfeðrunum gerð rækileg skil (meira að segja ættartré í upphafi bókar). Fæðingar- og dán- arár, búseta, atvinna og sagt frá einkalífi upp að ákveðnu marki. Fyrri hluti bókarinnar er byggður upp af eins konar minningarleiftrum eða smáminningum sem sýna hvernig barnshugurinn virkar. Það sem situr fast í minninu er ef til vill fremur ómerkilegt í hinu stóra samhengi og fullorðna fólkið tekur jafnvel varla eftir því. Þegar kötturinn sleikti kakósúpuna, þegar strákurinn neitaði að dansa í dansskólanum, þegar Axel skaut rakettunni á loft. Smámyndirnar eru margar hrífandi bernskar og skemmtilegar. Sumir af köflunum 269 hefðu þó e.t.v. mátt missa sín. Þar á ég t.d. við kafla þar sem taldir eru upp vinir foreldra höfundarins eða nágrannar – þeim lýst og sagt undan og ofan af ævi þeirra. Þessir stuttu kaflar eru oft lítið annað en neimdropp (stundum með titlatogi við hæfi) og enda yfirleitt á einhverju á borð við: „X lést um fimmtugt, frá konu og þremur börnum.“ Góðir eru kaflarnir þar sem Jóhanna segir af einlægni frá vandræðum sínum við að eignast vin- konur og bregður upp svipmyndum úr skólalífinu í Landakoti og Kvennó, svo ekki sé talað um þau ósköp þegar hún vogaði sér að kyssa strák í sveit- inni og það hafði aldeilis ófyrirséðar afleiðingar. Langbest tekst höfundi upp þegar hún lýsir for- eldrum sínum og öfum og ömmum. Kristjón og Elísabet voru bersýnilega sterkir karakterar, giftu sig án blessunar foreldra sinna og voru lengi að bíta úr nálinni með það. Sérlega forvitnileg er svo saga ömmu Valgerðar og afa á Krók, en þau skildu eftir áratugalanga sambúð og enginn vissi hvers vegna. Í frásögninni af þeim er dramatík í stórum skömmtum. -þhs Myndir úr bernsku  veraldarsaga mín – Ævisaga hugmynda Pétur Gunnarsson JPV útgáfa, 2014, 166 s.  Svarthvítir dagar Jóhanna Kristjónsdóttir Sögur útgáfa, 2014, 380 s. Pétur Gunnarsson. Laugavegi 86 101 Reykjavík S. 511 2004 www.dunogdur.is Glæsileg jólatilboð á öllum vörum Hreinsum og endurnýjum allar tegundir af sængum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.