Fréttatíminn - 22.12.2014, Blaðsíða 6
Heilsa eigandi sjávarsmiðjunnar segir þaraböðin bara byrjunina
Ætlar að reisa heilsuspa
við Breiðafjörð
Háleitar hugmyndir eru uppi
um að reisa heilsuspa á Reyk-
hólum við Breiðafjörð þar sem
boðið væri upp á sjávarböð og
þarabað, auk nærandi líkams-
meðferða. Fyrr í þessum mán-
uði samþykkti sveitarstjórn
Reykhólahrepps deiliskipulag
fyrir starfsemina en gert er
ráð fyrir 10 þúsund fermetra
þjónustubyggingu við sjóinn.
Fjármögnun er á byrjunarstigi.
þ etta er stór hugmynd og dásamlegt ef hún getur orðið að veruleika,“ segir
Svanhildur Sigurðardóttir, eigandi
SjávarSmiðjunnar á Reykhólum við
Breiðafjörð, en sveitarstjórn Reyk-
hólahrepps hefur samþykkt deili-
skipulag fyrir heilsuspa við sjóinn
sem mun bera nafnið Sjávarböðin.
SjávarSmiðjan var opnuð sumarið
2011 en þar er boðið upp á þara-
böð þar sem blandast saman gæða-
vottað þaramjöl frá Þörungaverk-
smiðjunni og heita hveravatnið á
Reykhólum. Svanhildur segir að
frá upphafi hafi verið draumurinn
að bjóða upp á frekari líkamsmeð-
ferðir. Í því skyni keypti hún 324
hektara land sem nær allt frá syðstu
þéttbýlismörkum Reykhóla niður að
sjó við Karlsey þar sem hún stefnir
á að reisa heilsuspa. „Þetta er allt
á byrjunarstigi en það eru ákveð-
in tímamót að deiliskipulagið hafi
verið samþykkt,“ segir hún.
Þaraböðin á Reykhólum hafa ver-
ið afar vinsæl, bæði meðal heima-
manna en einnig innlendra sem
erlendra ferðamanna. Við þau er
starfrækt lítið kaffihús en gestir
fara í baðfötin í útiklefa og njóta út-
sýnisins yfir Breiðafjörð úr pottun-
um. „Við vorum alltaf með háleitari
hugmyndir en þaraböðin voru til-
raun sem hefur heppnast afar vel
og nú komið að næsta skrefi,“ segir
Svanhildur. Hægt er að kaupa þara-
mjöl í SjávarSmiðjunni til að nota
heima í baðið eða sem maska en að
sögn Svanhildar hefur verið mikil
eftirspurn eftir því að hægt sé að
fara í heilsumeðferðir í tengslum við
þaraböðin. „Fjöldi gesta hjá okkur
hefur vaxið ár frá ári. Hér á Íslandi
erum við auðvitað þegar með Bláa
lónið, Heilsustofnunina í Hvera-
gerði og Jarðböðin við Mývatn, en
ég sé fyrir mér að hér á Reykhólum
gæti risið meiri heilsuþjónusta en
hvergi á landinu er svona starfsemi
við sjóinn. Við myndum þá bjóða
upp á nudd og líkamsmeðferðir, það
yrði veitingastarfsemi í tengslum
við þetta og draumurinn er að geta
verið með gistiaðstöðu þannig að
hingað gætu jafnvel komið hópar og
verið í einhverja daga,“ segir hún.
Enn sem komið er liggja bara
fyrir frumdrög að teikningum sem
nauðsynlegar voru til að leggja fyrir
sveitarstjórnina. Í deiliskipulagstil-
lögunni, sem var lögð fram, er gert
ráð fyrir að allt svæðið sé ætlað fyrir
almenna útivist í sátt við umhverfið
og náttúru svæðisins en einnig af-
mörkun á 10 þúsund fermetra lóð
sem er ætluð fyrir þjónustubyggingu,
en vinnuheiti starfseminnar er Sjáv-
arböð. Innan lóðarinnar má byggja
þjónustubyggingu, smáhýsi, laugar
og potta ásamt bílastæðum sem þjóna
Sjávarböðunum. Lóðinni er ætlað að
vera skipt upp í framkvæmdasvæði
og náttúrusvæði þar sem byggingin
markar skil á milli þeirra. Svanhildur
segir næstu skref að vinna teikning-
arnar áfram og móta þær betur, auk
þess sem fjármögnun sé á byrjunar-
stigi. „Við gátum ekki gert mikið fyrr
en þessi samþykkt var komin í hús,“
segir Svanhildur en hún vonast til að
eftir ár verði þetta verkefni komið á
góðan rekspöl.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
sorpHirða Fólk er Hvatt til að Hreinsa snjó við sorptunnur
Litaður gjafapappír í bláu tunnuna
Umhverf is - og skipulagssvið
Reykjavíkurborgar vekur athygli
á því að litaður gjafapappír má
fara í bláu tunnuna. Vonast er til
að hægt verði að losa allar tunnur
fyrir jól, eins og losunardagatal
borgarinnar segir til um, og hefst
vinnan aftur eftir jól laugardaginn
27. desember.
Veður og færð hefur tafið sorp-
hirðu í Reykjavík síðustu vikuna.
Víða hefur þurft að sleppa því að
losa tunnur þar sem aðkomuleiðir
að þeim eru ógreiðfærar. Sérstak-
lega þarf að huga að því að hægt sé
að opna sorpgerði og hurðir því þær
geta átt það til að frjósa fastar.
Allt tilfallandi umframsorp sem
ekki rúmast í gráu tunnunni á að
vera í sérmerktum pokum sem
hægt er að kaupa hjá N1 stöðvum í
Reykjavík og í Þjónustuveri Reykja-
víkurborgar í Borgartúni 12-14.
Þegar poki fyrir umframsorp er
nýttur skal staðsetja hann við hlið
tunnunnar. Pokinn er eingöngu ætl-
aður heimilum í Reykjavík og undir
blandað heimilissorp.
Í tilkynningu frá Reykjavíkur-
borg er bent á að flokkun og skil,
á þær 86 grenndarstöðvar og sex
endurvinnslustöðvar á höfuðborg-
arsvæðinu, dregur úr því magni
sem annars færi í gráu tunnuna.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Um síðustu jól var tilkynnt að rauður
gjafapappír, glansandi eða gylltur
mætti ekki fara í bláu tunnuna en nú
má allur litaður pappír fara í hana.
Fyrstu tölvuteikningar sem unnar voru að Sjávarböðunum og næstu skref eru að
vinna áfram með þær. Mynd/eyLAND Vatnavinir
Þaraböðin á Reykhólum hafa verið afar vinsæl bæði meðal heimamanna sem og
innlendra og erlendra ferðamanna, en frá upphafi stóð til að starfsemin yrði viða-
meiri.
MUNDU eftir að snúa virku hlið
sængurinnar að líkamanum. Virka
hliðin er með rauðum saumi og
miða sem á stendur „Certified
Space Technologi“
JAFN HITI gefur betri svefn. Tempra-
kon var þróað til að halda jöfunum
37ºC hita á á milli líkama og sængur
alla nóttina. Það gefur þér rólegri og
dýpri svefn.
BETRI RAKASTÝRING. Temprakon
Advance tæknin og FRESH áklæðið
viðhalda jöfnu hitastigi og um leið
stýra rakajafnvægi milli líkama og
sængur. Dregur úr nætursvita.
MYND 1
MYND 2
MYND 3
Of kalt
Of heitt
Venjuleg
dúnsæng
Æskilegasta
hitasvæðið
Fjarlægir raka og tryggir hámarks svefngæði
Jafnar hita og kulda til að tryggja sem æskilegastan hita.
NÝ VÍDD Í SVEFNI
®
D Ú N S Æ N G U R & D Ú N K O D D A R
TEMPRAKON
ADVANCE SÆNG
Stærð: 135 X 200
90% hvítur gæsadúnn
FULLT VERÐ: 51.900
JÓLATILBOÐ
KR. 44.115
®
TEMPRAKON
ADVANCE KODDI
Stærð: 50x70
Fullt Verð: 22.823
JÓLATILBOÐ KR. 19.400
betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is
Opið til 22 til jóla
ÞÚ FÆRÐ AÐEINS Í BETRA BAKI
®
6 fréttir Helgin 22.-28. desember 2014