Fréttatíminn - 22.12.2014, Blaðsíða 44
Helgin 22.-28. desember 201444 jólagjafir
KVRL Design
Geómetrísk listaverk
þar sem handteiknuð
form eru færð í staf-
rænt form og unnin.
Hrafnþyrnir
Verð: 12.900 kr.
(án ramma).
Þegar kemur að jólagjöfum hittir íslensk hönnun yfirleitt alltaf
í mark. Á vefsíðunni www.designediniceland.com má finna
ríkulegt safn vara eftir íslenska hönnuði. Það eru þær Rakel
Sævarsdóttir og Aldís María Valdimarsdóttir sem standa á bak
við Designed in Iceland.
Íslensk
hönnun í
jólapakkann
D esigned in Iceland er vett-vangur á netinu fyrir ís-lenska hönnuði til að koma
vöru sinni á framfæri. Á síðunni er
að finna fjölbreytt vöruútval auk
þess sem hönnuðir halda úti bloggi
þar sem þeir kynna vörur sínar og
auglýsa viðburði tengda þeim. „Okk-
ar markmið er að koma spennandi
hönnun frá íslenskum hönnuðum á
markað á metnaðarfullan hátt. Við
setjum stefnuna á að verða stærsti
rafræni vettvangurinn fyrir allt sem
er íslenskt, framsækið og girnilegt,“
segir Aldís María. Á Designed in
Iceland er að finna yfir 600 vörur
frá 40 hönnuðum. Það ættu því allir
að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Tulipop
Krúttlegar fígúrur og litríkur heimur
Tulipopp er sköpunarverk Signýjar
Kolbeinsdóttur, teiknara og hönnuðar.
Stafrófsplakat
Verð: 2490 kr.
Float
Íslensk hönnun gerð til að upplifa
vellíðan í vatni, skola burt streitunni
og eiga nærandi stund í kyrrð.
Flothetta
Verð: 11.500 kr.
Sóley
Húðsnyrtivörur sem unnar eru úr
kraftmiklum íslenskum jurtum.
GLÓey – hreinsandi maski
Verð: 4.100 kr.
Aberg
Handheklað skart og fylgihlutir eftir
Anítu Berglindi Einarsdóttur.
Bjarkey hálsmen
Verð: 9.790 kr.
VÍK Prjónsdóttir
Íslenskar ullarvörur hannaðar
af Brynhildi Pálsdóttur, Guðfinnu
Mjöll Magnúsdóttur og Þuríði
Sigurþórsdóttur.
Selshreifar
Verð: 7.700 kr.
Orri Finn
Orri Finn er hönnunarteymi Orra
Finnbogasonar og Helgu Gvuðrúnar
Friðriksdóttur. AKKERI er skrat-
gripalína ætluð konur og körlum.
Hringur, akkeri.
Verð: 28.600 kr.
Ihanna Home
Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir hannar
fallegar vörur fyrir heimilið undir
merkinu Ihanna Home.
Krummi, herðatré.
Verð: 7.400 kr.
Ekki Rúdolf .
Verð: 26.500 kr.
Scintilla
Scintilla var stofnað árið 2009 af Lindu
Björg Árnadóttur sem leggur áherslu
á grafík, munstur og áferð í hönnun
sinni.
Ilmkerti – Wild thyme and
bluberries.
Verð: 7.900 kr.Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16
Kápa kr. 19900
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Mikið úrval af
fallegum kápum
Opið alla daga
til kl 20.00 fram
að jólum
Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500
Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504
3 pör á aðeins
9.600.-