Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.12.2014, Blaðsíða 24

Fréttatíminn - 22.12.2014, Blaðsíða 24
Ragna Jóns segist aldrei hafa fallið inn í hefðbundnar kynjaskil- greiningar, hún upplifi sinn eigin sannleika og tali máli hans. Ragna ólst upp í Los Angeles en fluttist sem unglingur til Íslands með foreldrum sínum, Jóni Óttari Ragnarssyni og Margréti Hrafnsdóttur. Hún stundar nám í Bandaríkjunum en hefur verið á landinu í leyfi sem hún eyðir í vinnu við þættina Dulda Íslands sem foreldrar hennar framleiða. Auk þess að vera ötul baráttu- manneskja fyrir mannréttindum er Ragna að skrifa bók, milli þess sem hún rappar með Reykjavíkurdætrum. M ér var gefið nafnið Einar Ragnar Jónsson, í höf-uðið á afa mínum sem var reyndar alltaf kallaður Ragnar í Smára. En ég nota Ragnars nafnið sífellt sjaldnar og rétt eins og afi þá hef ég aldrei notað Einarsnafnið,“ segir Ragna sem vissi frá því að hún var lítil að hún væri ekki bara strák- ur eða stelpa, heldur einhversstaðar á milli kynjanna. Vinnur að skáldsögu á Íslandi Ragna ólst upp í Los Angeles en f lutti til Íslands með foreldrum sínum, Jóni Óttari Ragnarssyni og Margréti Hrafnsdóttur, þegar hún var þrettán ára. Hún flutti svo aftur út eftir stúdentspróf og stundar nú nám í nútímamenn- ingar- og margmiðl- unarfræðum [Modern Culture & Media] við Brown háskólann í Bandaríkjunum en er á Íslandi í leyfi frá náminu. „Námið í Brown er frá- bært því það tengir allt sem ég hef áhuga á, m.a. bókmenntir, listir, fjöl- miðla, heimspeki, bíó, sjónvarp, „performans“ og tísku. En mig lang- aði bara í smá pásu á Ís- landi. Þetta hefur verið frábær tími fyrir mig því ég hef getað einbeitt mér að bókinni sem ég er að skrifa auk þess að vinna við sjónvarpsserí- una sem foreldrar mín- ir framleiða hér,“ segir Ragna sem hefur auk þess unnið sem lausa- penni fyrir vefritin Blu- estockings Magazine, The Daily Beast og Wo- men in the World, þar sem hún byrjaði að vinna í gegnum háskólann úti. Skipulagði mótmæli gegn nauðgunum „Mannréttindi skipta mig miklu máli og þess vegna finnst mér blaða- mennska heillandi. Mér finnst mik- ilvægt að láta verkin tala,“ segir Ragna sem hefur unnið fyrir Unicef með náminu. Auk þess skipulagði hún mótmæli síðastliðinn vetur í skólanum sínum sem tugir manna tóku þátt í. „Á síðustu önn var stelpu að nafni Lena Sclove nauðgað í skól- anum en skólinn gerði ekkert í því. Lena ákvað því að fara í hæstarétt og kæra skólann með öðrum nem- endum. Þetta fékk mig til að hugsa um alla hina, hátt í tuttugu manns, sem ég þekki innan skólans, bæði stelpur og stráka, sem hefur verið nauðgað og ég ákvað að styrkja mál- efni Lenu og annara fórnarlamba með herferð gegn nauðgunum í skólanum. Við gáfum út yfir tutt- ugu frásagnir fórnarlamba nauðg- ana og birtum þær svo í blaði sem Bluestockings gaf út. Þetta var ótrúlega flott tölublað sem ég er mjög stolt af að hafa tekið þátt í. Mér finnst ekki nóg að vinna bara í minni baráttu, mér finnst að kona eigi að láta sig réttindi allra varða.“ Kom út sem tvíkynhneigð fjór- tán ára Þegar Ragna talar um sína eigin bar- áttu á hún við réttindabaráttu trans- fólks. „Ég kom út sem tvíkynhneigð gagnvart foreldrum mínum þegar ég var fjórtán ára og það var frek- ar erfitt. Ég var náttúrulega mjög ung en samt svo viss, var búin að vita þetta í langan tíma. Ég sagði þeim bara að ég vissi að ég laðaðist bæði að stelpum og strákum. Og að ég upp- lifði mig ekki bara sem strák heldur eitthvað á milli sem ég væri ekki viss hvað væri, og veit í rauninni ekki enn. Þau tóku þessu bara frekar vel, myndi ég segja.“ Þarna var fjölskyldan nýflutt til Íslands og Ragna, þá Ragnar, ný- byrjuð í Hagaskóla. „Ég hafði aldrei lent í neinni svakalegri stríðni í LA, þrátt fyrir að vera stelpulegur strákur, en svo fór ég í Hagaskóla og þar lenti ég í rosa- legu einelti. Ég var kall- aður ýmsum nöfnum því ég var ekki bara tví- kynhneigð heldur líka útlendingurinn sem tal- aði alltaf ensku, svo ég lá vel við höggi þeirra sem vildu særa mig.“ Ég er margkyns og hvað með það? Eftir Hagaskóla lá leið Rögnu í MH. „Ég hélt að það væri svona mest „gay-líbó“ skólinn en hann var það ekki alltaf. Klíkurnar eru svo sterkar á þessum aldri og ég fann fyrir því að ef þú varst hommi þá var komin ástæða til að halda þér utan við klíkuna. Í Hagaskóla var eineltið meira svona beint og opin- bert en það varð lúmskara í MH. En svo er svo fyndið hvernig fólk er og hagar sér. Eftir að ég kom svo út sem trans, þegar ég var tvítug, þá er alls konar fólk sem var alveg upp- fullt af sjálfu sér farið að hafa áhuga á mér, eins og það langi í smá bita af þessari áhugaverðu köku,“ segir Ragna. Henni fannst ekki jafn erfitt að koma út sem trans. „Það var bara fínt. Ég hafði komið út úr skápnum sjö árum áður og þetta var bara næsta þrep, ekkert erfiðara en að segjast vera trúlaus eða hvað annað. Ég upp- lifi mig sem margkyns og hvað með Hver er Ragna Jóns. Fæddist sem Einar Ragnar Jónsson. Hvaðan: Ólst upp í Los Angeles en flutti til Íslands 13 ára. Menntun: Haga- skóli og Mennta- skólinn við Hamra- hlíð. Stundar nú nám í menn- ingarfræðum og fjölmiðlun (Modern Culture & Media) í Brown University, Providence. Foreldrar: Jón Óttar Ragnarsson og Margrét Hrafns- dóttir. Vinna: Vinnur hjá Póstinum og við sjónvarpsseríuna Dulda Ísland, auk þess að vera lausa- penni hjá femenísku vefritunum Blue Stockings Ma- gazine, Daily Beast og Women in the World. ? Passar ekki í hefðbundnar kynjaskilgreiningar 24 viðtal Helgin 22.-28. desember 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.