Fréttatíminn - 22.12.2014, Blaðsíða 4
Heilbrigðismál enginn jáeindaskanni er Hér á landi
Domus í viðræðum um
kaup á jáeindaskanna
Einkafyrirtæki í heilbrigðis-
þjónustu, Röntgen Domus,
er í viðræðum við bandarískt
fyrirtæki um að koma upp
jáeinda skanna hér á landi
sem er mikilvægt greiningar-
og meðferðartæki vegna
alvarlegra sjúkdóma á borð
við krabbamein. Enginn
jáeindaskanni er til hér á landi
og eru sjúklingar sendir til
Danmerkur í slíka rannsókn, þó
aðeins einn af hverjum tuttugu
sem þyrftu á því að halda.
Jáeindaskanni er staðalbún-
aður á sjúkrahúsum erlendis.
F orsvarsmenn Röntgen Do-mus eru í viðræðum við bandarískt fyrirtæki um
að koma upp jáeindaskanna hér á
landi. Enginn jáeindaskanni er til
hér á landi, þrátt fyrir að áform um
kaup á slíku tæki hafi verið ofarlega
á lista Landspítalans undanfarinn
áratug. Jáeindaskanni (PET/CT) er
myndgreiningartæki sem er mikil-
vægt til greiningar á krabbameini
og nýtist í meðferðum gegn því.
Einungis tuttugasti hver sjúkling-
ur sem notast þyrfti við greiningu
í jáeindaskanna fær slíka þjónustu
hér á landi. Íslenskir sjúklingar
eru sendir til Kaupmannahafnar í
greiningarskyni en þó mun færri en
myndu njóta góðs af jáeindaskann-
anum ef hann væri til hér á landi.
Eyþór Björgvinsson, röntgen-
læknir og stjórnarmaður í Rönten
Domus, sem er einkarekið fyrir-
tæki í heilbrigðisþjónustu sem sér-
hæfir sig í myndgreiningu, segir að
fyrirtækið hafi verið í viðræðum við
bandaríska fyrirtækið í um ár og sé
nú í viðræðum við heilbrigðisyfir-
völd hér á landi til þess að tryggja
rekstrarlegan grundvöll fyrir fjár-
festingunni.
Rannsóknir í jáeindaskanna eru
gerðar með svokölluðum ísótópum,
sem eru geislavirk efni, sérfram-
leidd til þessa nota í þar til gerð-
um línuhraðli. Línuhraðallinn og
gerð efnanna er stærsti hluti fjár-
festingarinnar og er talinn kosta
um milljarð króna auk verulegs
rekstrarkostnaðar því mjög sérhæft
starfsfólk þarf til framleiðslunnar.
Til þessa hefur verið talið ómögu-
legt að koma upp jáeindaskanna
hér á landi sökum þess hve mik-
ill kostnaður er við ísótópafram-
leiðsluna og hve erfitt er að flytja
þá milli landa því þeir eyðileggist
á fáeinum klukkustundum. Eyþór
segir að nú sé ljóst að mögulegt sé
að flytja ísótópa inn frá Osló og nýta
til rannsókna hér. „Við höfum kynnt
hugmyndir okkar fyrir heilbrigðis-
ráðherra sem tók jákvætt í þær. Við
þurfum hins vegar skuldbindingu
frá ríkinu um að við gerðum 300
rannsóknir á ári til þess að af þessu
geti orðið,“ segir Eyþór.
Hann segir að Sjúkratrygging-
ar Íslands geri ráð fyrir að senda
70 manns til Kaupmannahafnar á
næsta ári til þessara rannsókna.
Hver rannsókn kosti um 400 þús-
und. „Rannsókn hér á Íslandi myndi
kosta ríkið 500 þúsund, því kostn-
aður okkar er hlutfallslega hærri
en í Danmörku sökum fjölda rann-
sókna,“ segir Eyþór.
Pétur Hannesson, yfirlæknir á
röntgendeild Landspítala, segir að
um 100 sjúklingar séu sendir utan
árlega til þessarar greiningar en
þörfin sé líklega um 2000. Einungis
einn af hverjum tuttugu sjúkling-
um sem ellegar gætu haft gagn af
rannsókn með jáeindaskanna fær
því slíka rannsókn.
Að sögn Péturs verður heilsufars-
legur ávinningur jáeindaskanna
ekki metinn til fjár. „Þótt tæknin sé
dýr mun jáeindaskanni þó einnig
hafa jákvæð áhrif á kostnað í heil-
brigðiskerfinu. Nákvæmari grein-
ing leiðir til markvissari meðferð-
ar og með jáeindaskanna er hægt
að meta virkni meðferðar strax í
upphafi hennar og þannig hægt að
draga úr kostnaði við ný dýr lyf með
því að gera notkun þeirra markviss-
ari. Auk þess er hægt að draga úr
fjölda ónauðsynlegra skurðaðgerða
vegna betri greiningar,“ segir Pétur.
Tómas Guðbjartsson hjartaskurð-
læknir segir að erlendar rannsóknir
sýni að hægt sé að fækka ónauð-
synlegum skurðaðgerðum vegna
lungnakrabbameins um 10 prósent
með markvissri notkun jáeindask-
anna. „Danir eiga fjölmarga jáein-
daskanna en við engan. Fyrir tíu
árum, þegar ég var nýkominn heim,
var í alvöru verið að ræða hvort við
ættum að eignast tvö eða þrjú slík
tæki –en við erum ekki einu sinni að
sjá til lands með að fá svona eitt tæki
sem er hluti af nútímalæknisfræði
og til á öllum stærri háskólasjúkra-
húsum í nágrannalöndum okkar. Við
verðum að sýna meiri stórhug í heil-
brigðiskerfinu, líkt og tíðkaðist hér
á árum áður,“ segir Tómas.
„Það er rútína víða erlendis að
sjúklingar með ákveðna tegund
krabbameins, til dæmis lungna-
krabbamein, séu alltaf sendir í
greiningu í jáeindaskanna. Við
erum að senda hluta okkar sjúk-
linga, sem þurfa greiningu með já-
eindaskanna, til Danmerkur með
fylgdarmanni. Það er dýrt og eykur
kvíða sjúklinga sem eru að takast
á við erfiðan sjúkdóm og meðferð,“
segir Tómas.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Eyþór Björgvinsson, röntgenlæknir og stjórnarmaður í Rönten Domus, segir að
fyrirtækið þurfi skuldbindingu frá ríkinu um rannsóknir svo hægt sé að ráðast í
kaupin á jáeindaskannanum. Ljósmynd/Hari
veður mánudagur Þorláksmessa aðFangadagur
Fremur hvöSS NA-átt og SNjókomA N-til
ANNArS úrkomulítið.
höFuðborgArSvæðið:
BJaRtviðRi.
NorðAuStlæg átt og lítilSháttAr éljAgANg-
ur NorðANtil ANNArS bjArtviðri.
höFuðborgArSvæðið:
BJaRtviðRi.
breytileg átt og Dálítli él Fyrir NorðAN og
AuStAN ANNArS léttSkýjAð.
höFuðborgArSvæðið:
LéttiR tiL.
lægðagangur og
kólnandi veður
Næstu daga er ríkjandi norðlæg átt yfir
landinu með kólnandi veðri. Snjókoma
eða éljagangur um landið norðanvert í
dag og á morgun, en léttskýjað syðra.
Lægir talsvert annað kvöld, og á aðfanga-
dag er útlit fyrir hæglætis
veður og víða úrkomulítið,
en þó einhver éljagangur
með norður og austur-
ströndinni. Það kólnar
talsvert og má gera ráð
fyrir frosti um allt land
næstu daga.
-2
-2 -2
-1
-2
-4
-2 -5 -3
-4
-4
-5 -6
-6
-4
elín björk jónasdóttir
vedurvaktin@vedurvaktin.is
Demantshringar frá 80.000 kr.
ein ferð á jóladag
Flugstöð Leifs Eiríkssonar verður opin
á jóladag, ólíkt því sem verið hefur
síðustu ár. Opnunin er þó aðeins fyrir
aðeins eina ferð en vél easyJet lendir
í Keflavík um kaffileytið og fer aftur í
loftið tíu mínútur í fimm. Þetta kom
fram á túristi.is.
jóladagatal á hólmavík
Félagar í Leikfélagi Hólmavíkur flytja frum-
samið útvarpsleikrit á netinu um þessar mundir.
Jóladagatalið, eins og leikritið kallast, er í þrettán
köflum og er einn kafli birtur á dag á Facebook-
síðu leikfélagsins og á Youtube. Jóladagatalið var
samið af nokkrum heimamönnum fyrir aldarfjórð-
ungi og hefur verið sett á svið víða um land.
mest ánægja með ráðherra-
störf bjarna benedikssonar
Mest ánægja mælist með störf Bjarna
Benediktssonar fjármála- og efnahags-
ráðherra. Þrír af hverjum tíu sem taka
afstöðu eru ánægðir með störf hans,
samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallup. Rúmlega
26% eru ánægð með störf Eyglóar
Harðardóttur félags- og húsnæðismála-
ráðherra, ríflega fjórðungur er ánægður
með störf Sigmundar Davíðs Gunnlaugs-
sonar forsætisráðherra og um 24%
með störf Ragnheiðar Elínar Árnadóttur
iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Um 22%
eru ánægð með störf Kristjáns Þórs
Júlíussonar heilbrigðisráðherra, ríflega
21% með störf illuga Gunnarssonar
mennta- og menningarmálaráðherra
og rúmlega 19% eru ánægð með störf
Gunnars Braga Sveinssonar utanríkis-
ráðherra. tæplega 19% voru ánægð
með störf Hönnu Birnu Kristjáns-
dóttur þáverandi innanríkisráðherra og
tæplega 17% með störf Sigurðar inga
Jóhannssonar, bæði sem sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra og sem um-
hverfis- og auðlindaráðherra.
Mest óánægja mældist með störf
Hönnu Birnu, ríflega 67% voru óánægð
með störf hennar. Ríflega 63% með
störf Sigurðar inga sem sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra, tæplega
62% með störf Sigmundar Davíðs sem
forsætisráðherra og nær 58% með
störf Sigurðar Inga sem umhverfis- og
auðlindaráðherra. Hátt í 57% eru
óánægð með störf Gunnars Braga, nær
56% með störf Bjarna og Kristjáns Þórs,
og rúmlega 54% með störf illuga. Loks
eru tæplega 43% óánægð með störf
Ragnheiðar Elínar og rúm 39% með
störf Eyglóar.
4 fréttir Helgin 22.-28. desember 2014