Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.12.2014, Qupperneq 8

Fréttatíminn - 22.12.2014, Qupperneq 8
Í hlustendakönnun ársins frá Capacent Gallup kemur í ljós að Rás 2 er í mestri samkeppni við Rás 1 um hlustun en einnig við allar „frjálsu“ útvarps- stöðvarnar. Það má því segja að ríkis- fjölmiðillinn sé bæði í samkeppni við útvarp í almannaþágu og einnig við út- varp í samkeppnisstarfsemi. Það er því ljóst að málið þarfnast einhverrar skoðunar. RÚV er óheimilt að niðurgreiða samkeppnisstarfssemi sína með því fjármagni sem ætlað er til reksturs fjölmiðla í almannaþágu. Þetta kemur fram í lögum nr. 23, frá 20. mars 2013, um Ríkisútvarpið, fjöl- miðil í almannaþágu. Hlutverk RÚV er að stuðla að lýðræðislegri umræðu, menningarlegri fjölbreytni og félagslegri samheldni í íslensku samfélagi með fjölmiðlaþjónustu í almannaþágu. Endurskoðun á hlutverki RÚV nauðsynleg I llugi Gunnarsson menntamála-ráðherra hefur sagt á Alþingi að hugsanlega sé komið að þeim tímapunkti að taka þurfi ákvarðanir um framtíð Ríkisútvarpsins og með hvaða hætti vilji er til þess að sjá það þróast. Samkvæmt lögum um Ríkisút- varpið á Fjölmiðlanefnd árlega að leggja sjálfstætt mat á það hvort Ríkisútvarpið hafi uppfyllt almanna- þjónustuhlutverk sitt. Nefndin skal afhenda stjórn Ríkisútvarpsins og ráðherra sjálfstætt mat eigi síðar en fjórum mánuðum eftir að árs- skýrsla Ríkisútvarpsins hefur verið birt. Ríkisútvarpið lætur fjölmiðla- nefnd í té upplýsingar til að hún geti sannreynt og metið gagnsæi og hlutlæga kostnaðargreiningu á almannaþjónustuhlutverki Ríkisút- varpsins að frádregnum kostnaði við samkeppnisrekstur. Fjölmiðlanefnd nýtur liðsinnis Ríkisendurskoð- unar og hefur einu sinni skil- að mati, það mat er þó ekki opinbert. Vantar gegnsæi RÚV hefur að sögn Frið- riks Friðrikssonar, fram- kvæmdastjóra Skjásins, ekki virt þetta ákvæði í lögunum. „Mað- ur getur spurt sig af hverju er ekki mögu- legt að sjá að- greininguna betur í árs- reikning- um stofn- unarinnar,“ segir hann. „ Það er l jóst að greina þarf betur hvað er útvarp í almanna- þágu og hvað er efni í sam- keppni þar s em e i n - hverjir þættir hjá Rás 1 eru áreiðanlega í samkeppni við annan samkeppn- isrekstur og ein- hverjir þættir á Rás 2 myndu hugsanlega flokkast sem útvarp í almannaþágu. Það sama gildir um Sjón- varpið. Við þurfum að spyrja okkur þeirra spurn- inga hvort endurskoða þurfi hlutverk RÚV upp á nýtt í ljósi lag- anna þar sem þau bjóða upp á of víða túlkun. Ís- lenska ríkið er að mati margra að reka fjölmiðla í samkeppni við „frjálsa“ fjölmiðla. Þeir hinir sömu eru ósáttir við að halda uppi ríkisútvarpi, einni sjónvarps- stöð og tveimur útvarpsstöðum og telja markaðinn geta leyst þessar þarfir. Eins hafa eigendur fjölmiðla hinna frjálsu lengi verið ósáttir við að RÚV skuli vera í svo miklum mæli á auglýsingamarkaði þrátt fyrir að einhverjar hömlur hafi verið settar þar á í lögunum. „Ekki er heldur mögulegt að sjá að greining hafi farið fram á því ríkis- framlagi sem dæmigert vel rekið fjöl- miðlafyrirtæki þarf á að halda til að inna af hendi almannaþjónustuhlut- verkið. Önnur fyrirtæki í fjölmiðla- rekstri treysta sér hugsanlega til þess að reka útvarp í almannaþágu á hagkvæmari hátt,“ segir Friðrik. Í samkeppni við útvarp í almannaþágu Það er fróðlegt að skoða hlustenda- og áhorfskönnun Capacent Gallup eftir aldri hjá öllum helstu útvarps- stöðvunum þar sem stór hluti þeirra sem greiða útvarps- gjald nota fjölmiðlana lítið sem ekkert. 67,2% hlust- enda á aldrinum 61-80 ára hlusta á Rás 1, og 34% hlustenda á sama aldri hlusta á Rás 2. Einnig hlusta 20,7% á aldrinum 51-60 ára á Rás 1 og 29% á Rás 2. Þannig hlusta 6 ,7 % á aldrinum 41-50 ára á Rás 1 og 15,4% á Rás 2. Stærst- ur hluti hlust- enda út- varps- stöðva ríkisins eru því í eldri kantin- um. Hlust- endur Rásar 2 eru því einnig að eldast . Rás 2 er þannig mest að keppa við Rás 1 en einnig að ein- hverju marki allar „frjálsu“ útvarpsstöðv- arnar því ef Bylgjunni, FM957, K100 og Retro er bætt við sést að hlustunin dreifist mjög á milli aldurshóp- anna en ríkis- rásirnar eru langminnstar. Allir gætu því fundið eitt- hvað við sitt hæf i. Það er því tæplega nauðsynlegt fyrir ís- lenska ríkið að reka tvær útvarps- stöðvar, markaðurinn gæti séð um afþreyinguna og „ríkisrásin“ um al- mannaútvarp. Samlegðaráhrif Ef RÚV væri fyrirtæki á markaði og tvær deildir innan sama fyrirtækis væru að sinna sama eða svipuðu starfi fyrir sama viðskiptavinahóp- inn þá yrðu þessar deildir væntan- lega sameinaðar með rökunum sam- legðaráhrif. Í umhverfi fyrirtækja myndi vera gerð þjónustukönnun (hjá RÚV hlustendakönnun) á öll- um þáttum hjá Rás 1 og Rás 2. Þeir þættir sem fengju mikla hlustun samkvæmt „viðskiptavinum“ rás- anna myndu vera áfram á dagskrá. Þeir sem litla hlustun hljóta eru þá samkvæmt áliti almennings ekki áhugaverðir og munu hverfa af dag- skrá. Það er þó ekki víst að þessi rök myndu halda ef tekið væri tillit til hlutverks stofnunarinnar. Eldri horfa á Sjónvarpið Hvað varðar Sjónvarpið þá er svip- að upp á teningnum þar. Dreifing þeirra sem horfa á sjónvarpsstöðvar er þannig að þeir sem horfa á Sjón- varpið eru í eldri kantinum. Aldur- inn 61-80 ára er langstærstur meðal áhorfenda Sjónvarpsins. Yngri hóparnir horfa mest á Skjá- Einn en Stöð 2 hefur einnig umtals- vert mikið áhorf. Á sjónvarp í al- mannaþágu að bjóða sakamálaþætti eins og Castle, Neyðarvaktina, Sex and the City, rándýran enskan bolta og ameríska afþreyingarþætti? Eru þessir þættir nauðsynlegir fyrir framgang íslenskrar menningar og samræmast þeir hlutverki stofnunar- innar? Þessum spurningum verður ekki svarað hér en það er ljóst að fara þarf í vinnu við að skilgreina þrengra það hlutverk sem ríkisfjölmiðillinn á að sinna því kannanir sýna að al- menningur vill hafa ríkisfjölmiðlil og þykir vænt um þær hefðir sem skapast hafa í kringum hann. Það er því stórt verkefni sem býð- ur menntamálaráðuneytisins og Rík- isútvarpsins. Eva Magnúsdóttir ritstjorn@frettatiminn.is Lög um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu 5. grein Fjárhagslegur aðskilnaður. Halda skal fjárreiðum alls reksturs vegna fjölmiðlaþjónustu í almanna- þágu skv. 3. gr. aðskildum frá fjárreiðum annars reksturs á vegum Ríkisútvarpsins eða dótturfélaga þess. Er Ríkisútvarpinu óheimilt að nota fjármuni frá rekstri skv. 3. gr. til þess að greiða niður kostnað vegna annarrar starfsemi. Rekstrarafgang af starfsemi dótturfélaga skal nýta til starfsemi skv. 3. gr. og eftir atvikum til að auka eigið fé samkvæmt nánari ákvörðun aðalfundar. ALLT AÐ 80% AFSLÁTTUR VETRAR- OG ÚTIVISTARFATNAÐUR FÁKAFEN 9 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 555 7412 OPIÐ 22. des. 10-21 23. des. 10-21 24. des. 10-14 8 úttekt Helgin 22.-28. desember 2014 Sjá enn fremur bls. 10
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.