Fréttatíminn - 22.12.2014, Síða 16
J
Jólahátíðin er að ganga í garð, helsta há-
tíð ársins, hátíð kristinna manna sem um
leið á sér eldri hefð og dýpri rætur sem
sólhvarfahátíð. Dag tekur að lengja á ný
sem er gleðiefni, ekki síst í norðlægum
löndum vegna þess hve mikill munur er
á stysta sólargangi, nú um jól, og hins
lengsta, um Jónsmessu, síðla í júní. Mun-
urinn er óvíða meiri á byggðu bóli en hér
á landi.
Það er því rík ástæða til
að fagna – og það gerum
við. Aðventan er annasam-
asti tími ársins hjá flestum
svo jólin sjálf eru kærkom-
inn hvíldar- og samveru-
tími fjölskyldna og vina.
Að þessu sinni eru jólin
hagstæð lúnum vinnulýð,
kannski ekki stóru branda-
jól að fornu mati, þegar
talað var um fjóra frídaga
í röð. Nú eru frídagarnir jafnvel einum
fleiri, fimm, það sem í nokkru gamni var
kallað „mega“ brandajól í framhaldi af
grein Þorsteins Sæmundssonar stjörnu-
fræðings þegar jóladagana bar síðast
upp á sömu vikudaga – er helgi fylgir í
kjölfar þeirra. Raunar vinna ýmsir á að-
fangadag, ekki síst verslunarfólk, ýmist til
hádegis eða lengra fram á daginn. Þá má
ekki gleyma þeim sem vinna vaktavinnu
og verða að sinna skyldum sínum jafnt á
stórhátíðum sem aðra daga. Meðal þeirra
stétta er heilbrigðisstarfsfólk, lögregla,
sjúkraflutningamenn og slökkvilið.
Ýmsir telja að óhóf einkenni jólahald
okkar og gagnrýna það. Vafalaust er
margt til í því en engu að síður er full
ástæða fagna jólum, gera sér dagamun
í mat og drykk og gefa gjafir þeim sem
eru okkur kærir. Jólin eru ekki síst hátíð
barnanna. Þau hlakka til, undirbúa komu
jólanna í skólum jafnt sem heima fyrir,
jólasveinninn gefur þeim í skóinn og
loks fá þau langþráða pakka að kvöldi að-
fangadags. Í þeim efnum er hófið best –
þarna skapar fólk hefðir framtíðar. Þegar
hugsað er til jóla minnast flestir bernsku
sinnar og jólahalds þá – og viðhalda síðan
þeim jólasiðum síðar á lífsleiðinni.
Fleiri hefðir eru sterkar þegar að jól-
um kemur, ekki síst í matargerð. Margir
halda sig við sama jólamatinn árum og
áratugum saman, leggja mikið upp úr
matseldinni þessa daga. Það er vel, með
því fororði þó að menn ofgeri sér ekki.
En á sama tíma má ekki gleymast að
staða fólks er misjöfn. Margir hafa misst
ástvini á árinu og minnast þeirra ekki
síst um jól. Heimsóknir í kirkjugarða
eru því fastir liðir, góð hefð þar sem fólk
minnist þeirra sem gengnir eru. Kjör
annarra eru lök, þeirra sem stríða við
heilsuleysi, hafa ekki atvinnu, einstæðra
foreldra og fleiri. Á þeim heimilum er
jafnvel kvíði vegna komu jólanna. Endar
ná ekki saman og hætt við skuldasöfn-
un þegar kröfurnar eru miklar. Verst er
staða þeirra sem eiga ekki fyrir mat og
verða að treysta á gjafir góðgerðasam-
taka. Slík staða er smánarblettur á vel-
ferðarþjóðfélagi okkar. Enginn á að þurfa
að standa í þeim sporum, hvorki um jól
né á öðrum tímum ársins. Ónefndir eru
síðan þeir sem teljast til útigangsmanna,
þeirra sem segja má að eigi hvergi höfði
að halla – þótt sveitarfélög og mannúðar-
félög reyni vissulega að koma til móts við
þarfir þessara veikustu þegna okkar og
veiti þeim athvarf.
Njótum jólanna saman, þeirrar ánægju
sem fylgir samskiptum fjölskyldna og
vina – sem of sjaldan hittast endranær.
Rétt er að ítreka að frídagar flestra, laug-
ardagur og sunnudagur, fylgja jólunum
að þessu sinni. Því gefst bærilegur tími
þessa daga sem fram undan eru til tóm-
stunda, ekki síst lesturs góðra bóka.
Fátt róar hugann betur í kjölfar erils
jólaundirbúningsins. Útivist og hreyfing
má ekki gleymast, hvort heldur er til að
styrkja andann bókstaflega eða jafna sig
milli veislna.
Starfsfólk Fréttatímans óskar lands-
mönnum öllum gleðilegra jóla.
Jólahátíðin að ganga í garð
Mikilvægur samverutími
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
LóABORATORíUM LóA hJáLMTýsdóTTiR
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Fréttastjóri: Höskuldur
Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri og stjórnarformaður: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson teitur@
frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
Jólatilboð
hágæða handklæði
Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500
Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504
8 stk aðeins
9.600.-
Með baðmottu
Eitt kort
38 vötn
6.900 kr
www.veidikortid.is
00000
Aldrei fleiri vötn!
JÓLAGJÖF
VEIÐIMA
NNSINS!
Hraunbær 123 | s. 550 9800 | skatar.is
Gæðajólatré - sem endist ár eftir ár!
Þessi jólatré eru í hæsta gæðaflokki auk
þess að vera mjög falleg og líkjast þannig
raunverulegum trjám. Einföld samsetning.
Fæst einnig í Hagkaupi
Smáralind, Skeifunni og Garðabæ.
• Ekkert barr að ryksuga
• Ekki ofnæmisvaldandi
• 12 stærðir (60-500 cm)
• Íslenskar leiðbeiningar
• Eldtraust
• Engin vökvun
• 10 ára ábyrgð
• Stálfótur fylgir
Opnunartímar:
Virkir dagar kl. 09-18
Laugardagar kl. 11-18
Sunnudagar kl. 12-18
Falleg jólatré
Opið allan
sólarhringinn
í Engihjalla, Vesturbergi
og Arnarbakka
16 viðhorf Helgin 22.-28. desember 2014