Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.12.2014, Síða 22

Fréttatíminn - 22.12.2014, Síða 22
Ég er í raun og veru að jarða sjálfan mig og það er spennandi. É g er alltaf eins og drusla þegar ég er að leikstýra,“ segir Þorleifur Örn Arnar- son og lítur niður á fötin sín. Hann er í raun bara í ósköp venjulegum fötum, svörtum buxum og dökk- blárri hettupeysu, en þetta er sumsé druslulegt miðað við hvernig hann klæðist þegar hann er ekki í loka- fasa stórs leikstjórnarverks. Þor- leifur leikstýrir jólasýningu Þjóð- leikhússins, Sjálfstæðu fólki, sem er frumsýnd á annan í jólum. Síð- ustu vikurnar eru annasamastar og fjölmargar ákvarðanir sem leik- stjóri þarf að taka á hverjum ein- asta degi. „Ég finn oft fyrir því í uppsetningarferlinu að ég get ekki tekið einföldustu ákvarðanir í dag- legu lífi. Um daginn hringsnerist ég í Bónus í hálftíma og gat engan veginn ákveðið hvað ætti að vera í kvöldmatinn. Þá var ég búinn að taka líklega þrjú hundruð ákvarð- anir niðri í Þjóðleikhúsi. Ég las ein- hvers staðar að Obama léti velja fyrir sig hvað hann borðar og velja fyrir sig föt. Allar ákvarðanir sem maður tekur krefjast sama ferlisins og þær kosta allar jafn mikið. Þess vegna á fólk sem vinnur undir miklu álagi í mestu vandræðum með ein- faldar ákvarðanir,“ segir Þorleifur og bendir á að Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, og Hollywood- leikstjórinn Christopher Nolan fari svipaðar leiðir. „Ég hef ekki rými til að ákveða hvernig ég lít út þannig að ég á bara nóg af svörtum hettu- peysum. Þegar ég setti upp Engla alheimsins kvartaði Högni Egilsson meira að segja yfir því hvernig ég leit út og vildi fara með mig í búðir,“ segir hann. Englar alheimsins var fyrsta verkið sem Þorleifur leikstýrði í Þjóðleikhúsinu. Það var tilnefnt til fjölda Grímuverðlauna og valið leik- rit ársins 2013. Símon Birgisson sá þar um leikgerðina og Atli Rafn Sig- urðarson var í aðalhlutverki, og það er sama sagan nú. Þá hefur vakið nokkra athygli að meðal annarra leikara en faðir Þorleifs, stórleikar- inn Arnar Jónsson sem leikur Jón hreppstjóra í Sjálfstæðu fólki. Síð- ast þegar Sjálfstætt fólk var sett á fjalirnar, fyrir 15 árum, fór Arnar hins vegar með hlutverk Bjarts í Sumarhúsum. Blómasendingar eftir upp- lestur Þorleifur stakk upp á því að við tækjum þetta viðtal á kaffihúsinu Gráa kettinum sem er á Hverfisgöt- unni, til móts við Þjóðleikhúsið. Við mætum bæði stundvíslega klukkan 9 en klukkutíma síðar hefst æfing á Sjálfstæðu fólki, hinum megin við götuna. „Þetta verður langur og strembinn dagur,“ segir Þorleifur, eins og til að skýra morgunmat- inn sinn þegar honum er færður sneisafullur diskur með beikoni, eggjum og pönnukökum. Þorleif- ur lætur mig vita að Arnari seinki örlítið en hann hringir stuttu síð- ar og ég veiti því athygli að á skjá símans stendur ekki „Pabbi“ þegar hann hringir heldur „Arnar Jóns- son.“ Þorleifi virðist koma það á óvart þegar ég spyr hann út í þetta og segir að mamma hans heiti ein- faldlega „Þórhildur Þorleifsdóttir“ í símanum hans og meira að segja konan hans hafi heitið „Anna Rún Tryggvadóttir“ þar til hún hafi sjálf breytt því í „Beibið Tryggvadóttir“ sem Þorleifur tekur fram að hann hafi verið afar sáttur við. Arnar kemur stuttu síðar og heils- ar okkur með virktum. „Blessaður sonur sæll,“ segir hann við soninn sem svarar í glettni: „Mér þætti nú betra ef þú ávarpaðir mig: Herra leikstjóri.“ Þorleifur viðurkennir að það hafi um stund vafist fyrir hon- um hvort hann ætti að kalla pabba sinn pabba eða Arnar á æfingum þar sem allir vissu jú að þetta væri pabbi hans, en niðurstaðan var að kalla hann einfaldlega Arnar. „Við erum fagmenn og högum okkur þannig,“ segir Arnar. Hann hefur einmitt mikla reynslu af því að starfa með sínum nánustu en Þór- hildur, eiginkona hans, hefur leik- stýrt honum í fjölda verka. „Verkið Pétur Gautur hefur fylgt fjölskyld- unni í gegnum tíðina. Við Þórhildur fórum fyrst að gefa hvort öðru auga við uppsetningu á Pétri Gaut árið 1963. Löngu seinna leikstýrði hún mér í Pétri Gaut og þegar Þorleifur var í Þýskalandi í námi setti hann þar upp Pétur Gaut og þýska sýn- ingin var sett hér upp á Listahátíð í Reykjavík,“ segir Arnar. En það er annað verk sem fjöl- skyldan hefur mikil tengsl við, nefnilega Sjálfstætt fólk. Auk þess að hafa leikið Bjart í Sumarhúsum las Arnar alla bókina eftir Halldór Laxness í útvarpinu hér á árum áður og Þorleifur man vel eftir því að heim til þeirra bárust blómasend- ingar nánast eftir hvern einasta upp- lestur. Hnakkrifist á miðri sýningu Þorleifur var kominn vel á unglings- ár þegar hann las bókina sjálfur og hefur frá upphafi verið heillaður af sögunni. Það er ekki að undra enda er Sjálfstætt fólk talið eitt besta ís- Þorleifur Örn Arnarson segist hafa verið í smá vafa um hvort hann ætti að kalla Arnar Jónsson „pabba“ eða „Arnar“ á æfingum fyrir Sjálfstætt fólk en niðurstaðan var sú að kalla hann einfaldlega „Arnar.“ Mynd/Hari Þorleifur átti aldrei séns Þorleifur Örn Arnarson segist aldrei hafa orku til að ákveða hvaða fötum hann klæðist eða hvað sé í kvöldmatinn þegar hann er í lokafasa á uppsetningu leikverka. Þorleifur leikstýrir jólasýningu Þjóðleikhúss- ins, Sjálfstæðu fólki, þar sem faðir hans, Arnar Jónsson fer með hlut- verk Jóns hreppstjóra. Frá barnsaldri sat Þorleifur úti í sal í Þjóðleik- húsinu og fylgdist með foreldrum sínum og upplifir nú sterkt hvernig hann er orðinn fulltrúi hins nýja leikhúss. 22 viðtal Helgin 22.-28. desember 2014

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.