Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.12.2014, Síða 46

Fréttatíminn - 22.12.2014, Síða 46
46 matur & vín Helgin 22.-28. desember 2014 Höskuldur Daði Magnússon Teitur Jónasson ritstjorn@frettatiminn.is Villibráð Fátt kjöt er betra en íslensk villibráð með bragði af náttúrunni og hennar náttúrulegu kryddum. Kjötið er oftast bragðmikið en fínlegt og ef það er ekki borið fram með sultu eða miklum sætindum, eins og ég ætla að gera við gæsina mína, finnst mér gott að fá vín sem er bragðmikið og fínlegt með miklu bragði af uppruna sínum. Með gæsinni og annarri villibráð ætla ég að fá mér góðan Bor- deaux, nánar tiltekið St Emilion. Chateau Teyssier Gerð: Rauðvín. Uppruni: Frakkland. Styrkleiki: 13,5% Verð í Vínbúðunum: 5.499 kr. (750 ml) Drekktu þetta með jólamatnum! Nú eru jólaveislurnar fram undan og á flestum heim- ilum er farið að huga að eldamennskunni. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið með að velja réttu vínin með veislumatnum. Frétta- tíminn leitaði til Ólafs Arnar Ólafssonar, veitingamanns og fagurkera, og fékk hann til að mæla með góðum vínum með íslenska jóla- matnum. Annað sem gengur vel með villibráðinni: Vín úr Shiraz eða Grenache eins og t.d. frá Côtes du Rhône, eða Suður-Spáni, eða þægilegt vín úr Nebbiolo-þrúgum frá Piemonte á Ítalíu. Það færist í aukana að fólk borði góða nautasteik á jólum. Að para vín með góðri nautasteik er alltaf gaman. Ef fólk er með soðsósur, rauðvínssósur eða þess háttar myndi ég velja kraftmikið vín, kannski frá Toscana, eða Malbec frá Argentínu. Ef sósan er feitari, eins og rjómasósa eða Bernaise, þarf að milda tannínin dálítið og þá væri gott að leita til Bordeaux eða jafnvel Portúgals. Crasto Douro Gerð: Rauðvín. Uppruni: Portúgal. Styrkleiki: 13,5% Verð í Vínbúðunum: 2.895 kr. (750 ml) Annað sem gengur vel með nauta- steikinni: Kröftug rauðvín, Malbec, Cabernet Sauvignon, Merlot og Syrah. Nautasteik HaNgikjöt Að finna vín með hangikjöti er árlegur höfuðverkur, sérstaklega ef það er tað- reykt. Það er ekki síst hið hefðbundna meðlæti sem eykur flækjustigið í vínvali. Kjötið sjálft er yfirleitt mjög salt og meðlætið sætt og súrt. Þess vegna vil ég meina að það sé betra að velja vín sem hefur í sér einhverja sætu og mjúk eða lítil tannín. Mér hefur reynst vel að velja rauð Ripasso-vín eða sætari hvítvín frá Þýskalandi eða Alsace, eða jafnvel styrkt vín sem nálgast það að vera eins og portvín, en það hefur fallið í misgóðan jarðveg, þó ég standi við að það passi vel. Famiglia Pasqua Passimento Gerð: Rauðvín. Uppruni: Ítalía. Styrkleiki: 14% Verð í Vínbúðunum: 2.299 kr. (750 ml) Annað sem gengur vel með hangikjötinu: Góður bjór með sætuvotti, Pinot Gris frá Alsace, ries- ling frá Þýskalandi eða jafnvel gómsætur Amarone. Tommasi Amarone della Valpolicella Classico Gerð: Rauðvín Uppruni: Ítalía, 2010 Styrkleiki: 15% Verð í Vínbúðunum: 6.399 kr. (750 ml) Chateau Musar (steinliggur með rjúpunni) Gerð: Rauðvín Uppruni: Líbanon, 2007 Styrkleiki: 14% Verð í Vínbúð- unum: 5.199 kr. (750 ml) Hamborgarhryggur lýtur að mörgu leyti sömu lögmálum og hangikjötið nema reykurinn er oft ekki eins ágengur og þess vegna auðveldara að finna með honum vín. Ég vil helst hafa smá sætu og mild tannín. Amarone eða Ripasso-vín frá Ítalíu ef það á að vera rautt og Gewürzt- raminer eða Pinot Gris fyrir hvítt. Pfaff Pinot Gris Cuvée Rabelais Gerð: Hvítvín. Uppruni: Frakkland. Styrkleiki: 13,5% Verð í Vínbúðunum: 2.995 kr. (750 ml) Annað sem gengur vel með hamborgar- hryggnum: Vín gerð með Ripasso aðferð eins og Amarone, eða Shiraz-vín frá heitum svæðum eins og Suður-Frakklandi eða Ástralíu. Humar Með humri með miklu smjöri eða rjóma þarf kraftmikið hvítvín, nokkuð sýruríkt til að skera í gegnum feitan fiskinn. Það þarf að hafa nokkuð mikla fyllingu og sjálfum þykir mér best að það hafi komið nálægt eikar- tunnum. Stag’s Leap Karia Char- donnay Gerð: Hvítvín. Uppruni: Napa dalur, Kali- fornía. Þrúga: Chardonnay Styrkleiki: 13,5% Verð í Vínbúðunum: 5.910 kr. (750 ml) Annað sem gengur vel með humrinum og humarsúpunni: Vín frá Chablis, Chardonnay frá Chile eða Ástralíu eða jafnvel gott kampavín. Lapostolle d’Alamel Chardonnay Gerð: Hvítvín Uppruni: Chile, 2012 Þrúga: Chardonnay Styrkleiki: 13,5% Verð í Vínbúðunum: 1.999 kr. (750 ml) Domaine Laroche Chablis Saint Martin Gerð: Hvítvín Uppruni: Chablis, Frakkkland, 2012 Þrúga: Chardonnay Styrkleiki: 12,5% Verð í Vínbúðunum: 3.397 kr. (750 ml) Truchard Pinot Noir Gerð: Rauðvín Uppruni: Kalífornía, Bandaríkin, 2011 Þrúga: Pinot Noir Styrkleiki: 14% Verð í Vínbúðunum: 4.730 kr. (750 ml) Arthur Metz Pinot Gris Gerð: Hvítvín Uppruni: Alsace, Frakk- land, 2012 Styrkleiki: 12,5% Verð í Vínbúðunum: 2.299 kr. (750 ml) Catena Malbec Gerð: Rauðvín Uppruni: Argentína, 2011 Styrkleiki: 13,5% Verð í Vínbúð- unum: 2.948 kr. (750 ml) Cune Rioja Crianza Gerð: Rauðvín Uppruni: Rioja, Spánn, 2010 Styrkleiki: 13,5% Verð í Vínbúðunum: 2.299 kr. (750 ml) Wyndham Bin 555 Shiraz Gerð: Rauðvín Uppruni: Ástralía, 2011 Styrkleiki: 14% Verð í Vínbúðunum: 2.599 kr. (750 ml) Marques de Casa Concha Cabernet Sauvignon Gerð: Rauðvín Uppruni: Chile, 2012 Styrkleiki: 14,5% Verð í Vínbúð- unum: 2.999 kr. (750 ml) Pfaff Pinot Gris Gerð: Hvítvín Uppruni: Alsace, Frakk- land, 2012 Styrkleiki: 12,5% Verð í Vínbúðunum: 2.650 kr. (750 ml) Vajra Langhe Nebbiolo Gerð: Rauðvín Uppruni: Ítalía, 2012 Styrkleiki: 14% Verð í Vínbúð- unum: 3.895 kr. (750 ml) Lambasteik er algeng á jólaborðum landans, oft krydduð með timjan, rós- maríni og hvítlauk. Ég leita alltaf fyrst til Rioja á Spáni eftir víni til að para með íslensku lambakjöti. Ég vil þó ekki hafa það of eikað og helst að í því sé ennþá dálítið ferskur ávöxtur og tannín. Þess vegna fer ég helst í gæða Crianza eða Reserva en sleppi Gran Reserva því að mínu mati er það oft orðið of „mjúkt“ fyrir lambakjötið. Einnig er gott að drekka nýja heims Pinot Noir, eða Búrgúndarvín úr heitum árgangi. Kraftmikið og ávaxtaríkt. Altos Crianza Gerð: Rauðvín. Uppruni: Spánn. Styrkleiki: 13,5% Verð í Vínbúðunum: 2.295 kr. (750 ml) Annað sem gengur vel með jólalambinu: Pinot Noir frá Chile, Ástralíu eða Kaliforníu. lambasteik Ó lafur Örn Ólafsson er landskunnur veit-ingamaður. Hann er fyrrverandi formaður Vínþjónasamtaka Íslands og einn dómara í sjónvarpsþættinum Masterchef. Ólafur er einn skipuleggjenda hins vinsæla götumatarmarkaðar Krásar í miðborg Reykjavíkur. „Að velja vín með jólamatnum er alltaf hressandi aðgerð, maður vill ekki að vínið með þessari mikil- vægustu máltíð ársins klikki, sé vont eða passi ekki. Vegna þess að jólin snúast um hefðir hjá flestum er algengt að fólk kippi með sér víni sem það þekkir og finnst gott. Þegar öllu er á botninn hvolft er það í rauninni eina reglan þegar kemur að því að velja sér vín til að drekka, að maður velji sér eitthvað sem manni þykir gott. Hins vegar er það þó þannig að matur er mis- munandi og mismunandi eiginleikar mismunandi matar hafa mismunandi áhrif á mismunandi vín (lofa að nota aldrei aftur mismunandi í þessa grein). Hlutir eins og saltmagn, fituinnihald, krydd, áferð og fleira þess háttar í mat hefur mikil áhrif á það hvernig vín bragðast. Til að taka einfalt dæmi, sem allir ættu að prófa: Margir ávextir innihalda tannín og tannín í ávöxtum passar afleitlega með rauðvíni. Prófið að fá ykkur vínglas og svo vínber og aftur sopa af víninu þá kemur í ljós að vínið bragðast allt öðruvísi, eða ef þið eruð að drekka sýruríkt hvítvín að fá ykkur súkkulaðibita og líkurnar eru að bragðið af víninu versni mikið. Á jólunum erum við oft að borða mat sem við borðum ekki venjulega svo það er sennilegra en ekki að vínið sem við erum vön að drekka sé komið í það óvenjulegar aðstæður að það ráði ekki neitt við neitt. Þá er gott að hafa eftirfarandi í huga við að velja vín.“ HamborgarHryggur Óli mælir með Óli mælir með Óli mælir með Óli mælir með Óli mælir með Óli mælir með

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.