Fréttatíminn - 15.08.2014, Síða 6
DORMA Holtagörðum, Reykjavík ✆ 512 6800
Dalsbraut 1, Akureyri ✆ 558 1100
Húsgagnahöllinni, Reykjavík ✆ 558 1100
HE
ILS
UD
ÝN
UD
AG
AR
Stillanlegur botn
með Shape heilsudýnu
Stærð cm. Verð Dýnudagar
2x80x200 442.300,- 375.955,-
2x90x200 466.800,- 396.780,-
2x90x210 487.300,- 414.205,-
2x100x200 487.300,- 414.205,-
Stærð cm. Verð Dýnudagar
80x200 92.900,- 78.965,-
90x200 98.900,- 84.065,-
100x200 104.900,- 89.165,-
120x200 125.900,- 107.015,-
140x200 149.900,- 127.415,-
160x200 167.900,- 142.715,-
180x200 184.900,- 157.165,-
Shape heilsudýna
með botni
Shape
B y n at u r e ’ s B e d d i n g
Þ etta var ótrúlega skemmti-legt verkefni og ég er viss um að útkoman verði algjörlega
frábær,“ segir Loftur Ágústsson,
markaðsstjóri Land Rover á Íslandi.
Í liðinni viku fóru fram tökur á
nýrri Land Rover sjónvarpsauglýs-
ingu hér á landi. Auglýsingin var
framleidd af „Smalinn og synir“
fyrir Land Rover í samstarfi við BL.
Bíllinn sem um ræðir er nýjasta
útgáfan af Land Rover Discovery.
„Þetta verða mjög fjölbreyttar
senur þar sem Land Rover kemur
fyrir við ýmsar aðstæður í glæsi-
legri náttúru Íslands. Tökurnar
voru á Snæfellsnesi, að Fjallabaki
og í Reykjavík,“ segir Loftur sem
telur að forsvarsmenn bílarisans
verði ánægðir með útkomuna: „Við
erum búin að senda fyrstu skotin
á Land Rover úti og það eru allir í
skýjunum. Þeim finnst íslensk nátt-
úra algjörlega sérstök.“
Fyrirhugað er að taka enn stærri
auglýsingar fyrir framleiðandann
á Íslandi í haust fyrir nýjasta bílinn
í flota þessa breska bílaframleið-
anda. Land Rover hyggst, líkt og
fjöldi annara framleiðenda, svara
eftirspurn neytanda með litlum
sportjeppum, en þeir eru meðal
vinsælustu bíla á markaðnum í
dag. „Auglýsingarnar sem verða
teknar hér í haust eru fyrir þennan
nýjasta bíl, en það eru minni útgáfa
af Freelander sem mun koma í sölu
2015,“ segir Loftur.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Atvinnulausum fækkaði um 1600 á öðrum ársfjórðungi þessa árs miðað við sama tíma í fyrra.
Vinnumarkaður nær 190 Þúsund manns á Vinnumarkaði
Dregur úr atvinnuleysi
Að meðaltali voru 11.300 manns
án vinnu og í atvinnuleit á öðr-
um ársfjórðungi þessa árs, eða
5,9% vinnuaflsins, að því er fram
kemur í nýju hefti Hagtíðinda
um vinnumarkaðinn. Atvinnu-
leysi mældist 6% hjá konum og
5,9% hjá körlum. Samanburður
annars ársfjórðungs 2014 við
sama ársfjórðung 2013 sýnir
að atvinnulausum fækkaði um
1.600 og hlutfallið lækkað um
0,9 prósentustig.
Þeir sem hafa verið atvinnu-
lausir í 12 mánuði eða lengur
eru skilgreindir sem lang-
tímaatvinnulausir. Þegar litið er
til undangengins árs þá hefur
dregið lítillega úr langtímaat-
vinnuleysi hvað fjölda varðar. Á
öðrum ársfjórðungi 2014 höfðu
um 1.800 manns verið langtíma-
atvinnulausir eða 0,9% vinnu-
aflsins samanborið við 2.000
eða 1,1% vinnuaflsins á öðrum
ársfjórðungi 2013.
Að jafnaði voru 189.900
manns á aldrinum 16–74 ára
á vinnumarkaði á öðrum árs-
fjórðungi þessa árs og fjölgaði
um 0,8% frá sama tíma ári áður
eða um 1.600 manns. Jafngildir
þetta 83,1% atvinnuþátttöku.
Fjöldi fólks utan vinnumarkaðar
var 38.500 og hefur því fólki
fækkað um 1,6% frá fyrra ári eða
um 600 manns. Atvinnuþátt-
taka kvenna var 79,4% og karla
86,9%. Á öðrum ársfjórðungi
2013 voru alls 188.300 á vinnu-
markaði eða 83,3% atvinnuþátt-
taka og utan vinnumarkaðar
voru þá 37.900. Atvinnuþátt-
taka kvenna var 79,9% og karla
86,5%. -jh
Bílar Framleiðendur land roVer hriFnir aF íslandi
Auglýsing með nýjum
Land Rover tekin á Íslandi
Bílaframleiðandinn Land Rover hefur nýlokið tökum á auglýsingum hérlendis og hyggst taka
fleiri. Í haust verða teknar auglýsingar fyrir nýjan bíl sem fer í sölu á næsta ári.
Land Rover Defender hefur löngum
verið þekktasti bíll framleiðandans,
en hann koma á markað árið 1948
og hélst nær óbreyttur í útliti þar
til framleiðslu á honum var hætt
síðastliðinn vetur. „Síðustu bílarnir
komu til Íslands í sumar og eru allir
seldir. Eftirspurnin hafði dalað og
fyrirtækið náði ekki að gera fram-
leiðsluna hagkvæma í samræmi
við það. Þetta voru auðvitað
handgerðir bílar. Það getur reyndar
verið að það komi ný týpa síðar,“
segir Loftur.
Tökur á Land Rover auglýsingunni gengu vonum framar og verða því fleiri teknar hér í haust.
Síðustu Defender bíl-
arnir seldir á Íslandi
Framleiðslu á Land Rover
Defender hefur nú verið
hætt. Síðasta sendingin kom
til Íslands í sumar og eru
allir bílarnir uppseldir.
Z
6 fréttir Helgin 15.-17. ágúst 2014