Fréttatíminn - 15.08.2014, Page 10
www.volkswagen.is
Meistari í sparsemi
Volkswagen up!
Volkswagen Take up! kostar
1.990.000 kr.
Samkvæmt könnun breska bílablaðsins Autoexpress er enginn
bíll ódýrari í rekstri en Volkswagen up! Með Volkswagen
up! hafa jafnframt verið sett ný viðmið í hönnun því hann er
einstaklega nettur að utan en afar rúmgóður að innan.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Umboðsmenn: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði
Komdu og reynsluaktu Volkswagen up!
Eyðsla frá 4,1 l/100 km
A
uk
ab
ún
að
ur
á
m
yn
d:
S
am
lit
h
an
df
ön
g,
só
lþ
ak
, þ
ok
ul
jó
s,
lis
ta
r á
h
ur
ðu
m
, k
ró
m
á
sp
eg
lu
m
.
1. Alberta Tar Sands,
Kanada. Stærsta olíu-
vinnslusvæði í heimi er
að útrýma vistkerfi á
stærð við England vegna
tjörusanda.
2. Stærsti rusla-
haugur jarðar flýtur
í Kyrrahafinu og er á
stærð við Texas. Eyjan er
samansett úr 100 milljón
tonnum af plasti.
3. Ósar Nígeríuárinnar,
Nígeríu. Svæði á stærð
við Írland er mengað
vegna áratugalangrar
olíuvinnslu.
4. Djúpsjávarnámur
við strendur Nýju
Gíneu. Röskun á lífríki
sjávar vegna leitar að
gulli, silfri og kopar.
5. Eldfjallið Luci í
Indónesíu hefur gosið
leir stöðugt frá árinu
2007 vegna óhóf-
legrar gasvinnslu á
svæðinu. 12 þorp hafa
þurrkaðst af kortinu.
6. Bingham kopar-
vinnslan, Banda-
ríkjunum. Stærsti
manngerði hellir í
heimi.
7. Drykkjar-
vatnsmengun í
Ekvador, vegna
hráolíu og eiturefna
sem olíufyrirtæki
hafa mengað árnar
með.
8. Loftmengun
Tianying, Kína.
140.000 manns lifa
þar við mjög skert
lífsgæði vegna meng-
unar frá námugreftri
og endurvinnslu
rafhlaðna.
9. Skógareyðing í
Amazon. Nú þegar
er svæði á stærð
við Frakkland sviðin
jörð. Talið er að 60%
skóganna verði horfnir
árið 2030, aðallega
vegna námugraftar
og nautgriparæktar.
Amazon skógurinn hefur
verið kallaður lungu
jarðarinnar en án hans
fer vistkerfi allrar jarðar-
innar úr skorðum.
10. Geimrusl. Vísinda-
menn eru óvissir um þær
afleiðingar sem gætu
hlotist af þeim milljónum
járnhluta, úrgangs vegna
geimferða, sem svífa um
lofthjúpinn.
10 vistmorð
til varnar. Núna, sjö árum síðar, er
ég enn í þessu árs leyfi. Ég er komin
svo langt áleiðis að ég hugsa að ég
muni aldrei snúa aftur til fyrra lífs.“
Trúir þú því að þér takist þetta?
„Já, því ég er með svo mikið af
góðu fólki á bak við mig. En til að
ríkisstjórn ir ranki við sér þarf al-
menningur að láta í sér heyra líka.
Og fólk er að láta í sér heyra. Þess
vegna er ég svo viss um að nú sé
tíminn til að fá þessi lög í gegn. Fólk
hefur aldrei fyrr verið jafn meðvitað
um eyðingu skóga, erfðabreytt efni,
eiturefni í náttúrunni, námuvinnslu,
gróðurhúsaáhrif og hækkun sjávar
svo eitthvað sé nefnt.
Og þess vegna held ég að mín
vinna fái athygli núna. Við erum ein-
faldlega búin að ganga allt of lengi á
auðlindir jarðar og uppskera þeirrar
eyðileggingar er alltaf að verða aug-
ljósari.“
Og hvernig gengur baráttan?
„Það er áhugavert að þú notið
þetta orð því ég vil alls ekki skil-
greina þetta sem baráttu. Þetta snýst
frekar um að benda fyrirtækjum og
ríkisstjórnum á nýjar leiðir. Við erum
í raun að bjóða upp á líflínu fyrir
mörg stór og gamalgróin fyrirtæki
sem eru að vinna í takt við fortíðina
en ekki framtíðina. Það er erfitt og
þreytandi að vinna í neikvæðri orku.
Og það er svo miklu uppbyggilegra
að vinna að því að auka ást frekar en
að vera í baráttu við einhvern. Mér
finnst þessi fyrirtæki ekki vera vond,
mér finnst þau bara vanta tækin til
að standa sig betur. Ef það væru lög
sem skylduðu þau á alþjóðavísu að
haga sér betur, þá yrðu þau að leita
tækjanna. Ég vinn vegna ástar á líf-
inu ekki vegna haturs á eyðilegg-
ingu.“
Og hvernig gerir þú það?
„Í stað þess að berjast og lobbí-
ast þá vinn ég eins og ráðgjafi. Stór
hluti að mínu starfi er að kynna
nýjungar og fjárfestingar til fram-
tíðar fyrir ríkisstjórnum og stórum
fyrirtækjum. Núna vinna fyrir-
tækin gegn umhverfinu því lögin
eru þannig. Ef lögin væru öðruvísi
myndu fyrirtækin haga sér í sam-
ræmi við það. Auðvitað fara stóru
fyrirtækin í kringum lögin því laga-
umhverfið býður upp á það. Ég vil
breyta því. Ég stefni ekki að því
að útrýma vondum fyrirtækjum,
heldur stefni ég að því að gera þau
betri.“
Þetta hljómar allt svo útópískt.
„Já, að sjálfsögðu hljómar þetta
þannig. Will iam Willberforce
hljómaði líka útópískur þegar
hann talaði um bann við þrælasölu
og það tók hann 26 ár að fá lögin
loks í gegn árið 1807. Í dag þykja
þau sjálfsögð. Hann sagðist vera til-
búinn að fórna lífi sínu fyrir þau lög
og það sama á við mig. Allt mitt líf
snýst um að fá vistmorð samþykkt
sem alþjóðalög.“
Hvernig snertir þetta okkur hér á
Íslandi?
„Ísland er áhugavert land því
það er land friðar. Og þið eruð
í fararbroddi í heiminum í notk-
un jarðvarma og eruð að prófa
ykkur áfram með fleiri endur-
nýjanlega orkugjafa. Þið gæt-
uð kosið að vera fyrirmyndir á
heimsmælikvarða. Vistmorð er
kannski ekki málefni sem snertir
ykkur núna, en mun mjög líklega
gera það seinna meir. Ísland mun
þurfa á lögum um vistmorð að
halda því hlýnun jarðar og sjávar
mun hafa hér mikil áhrif. Þetta
er ferli sem er nú þegar hafið á
Grænlandi. Þegar ísinn byrjar að
bráðna hér munu verða hér mikil
umhverfisáhrif og eyðilegging.
Ef lög um vistmorð verða gengin
í gegn þá mun Ísland geta leitað
réttar síns og aðstoðar frá al-
þjóðasamfélaginu, annars ekki.“
Polly Higgins verður í Nor-
ræna húsinu á morgun, laugar-
daginn 16. ágúst, frá 15.30-16.30,
í opinni samræðu við dr. Krist-
ínu Völu Ragnarsdóttur. Allir
eru velkomnir og aðgangur er
ókeypis.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
10 fréttaviðtal Helgin 15.-17. ágúst 2014