Fréttatíminn - 15.08.2014, Side 22
Hallir Íslands
Í flestum löndum Evrópu hafa verið reistar
hallir í aldanna rás. Hallir eru áhugaverðar
bæði fyrir sögu þeirra og arkitektúr. Á Ís-
landi eru engar hallir. Bæði vegna þess að
byggingarsaga okkar er ekki löng og það
hefur aldrei verið neitt tilefni til þess að
reisa hér höll. Við deyjum þó ekki ráðalaus
frekar en fyrri daginn og mörg fyrirtæki
á Íslandi hafa tekið hallarleysið í sínar
hendur. Í gegnum tíðina hefur alltaf ákveðin
hallarbylting verið í nöfnum fyrirtækja. Hér
eru nokkrar hallir Íslands.
Bílahöllin - 1970.
Ein elsta bílasala landsins.
Húsgagnahöllin – 1965
Frá upphafi hefur markmið Hús-
gagnahallarinnar verið að bjóða
upp á gæðahönnun á góðu verði.
Bíóhöllin Akranesi – 1942
Eitt elsta kvikmyndahús landsins. Reglulega eru
kvikmyndasýningar í húsinu. Bíóhöllin hefur
verið nýtt til ýmissa samkoma, s.s. tónleika-
halds, leiksýninga, fundahalda og fleira.
Keiluhöllin – 1985
Keiluhöllin í Öskjuhlíð er
heill heimur af skemmtun.
Vídeóhöllin – 1992
Videóhöllin í Lágmúla, sem lengi var ein
stærsta og vinsælasta höll landsins. Hún
lokaði 2013 sem var mörgum reiðarslag.
Kjöthöllin – 1944
Kjöthöllin er með elstu verslunar
og kjötvinnslufyrirtækjum lands-
ins, stofnað 1. maí 1944.
Dekkjahöllin – 1984
Höll sem staðsett er í Reykjavík,
Akureyri og Egilsstöðum.
Höllin Vestmannaeyjum – 2001
Höllin, veislu- og ráðstefnuhús, er stað-
sett í einstakri náttúrufegurð. Voldug-
asta höll Vestmannaeyja.
– fyrst og fre
mst
ódýr!
227kr.stk.
Verð áður 379 kr. st
k.
Happy Day epla-, ap
pelsínu-
og multivitaminsafi
, 2 lítrar
Hámark
12 stk. á mannmeðan birgðir
endast!
40%afsláttur
v
2
lítrar
Demantshringur 0.70ct
Verð 680.000.-
siggaogtimo.is
22 úttekt Helgin 15.-17. ágúst 2014