Fréttatíminn - 15.08.2014, Síða 24
Í
myndaðu þér 10 fermetra járnhylki, þar sem níu
karlmenn búa saman í þrjátíu daga. Innilokaðir.
Þar eru þeir samankomnir til að vinna við eitt
hættulegasta starf í heimi; djúpsjávarköfun. Að
sauma útlim á líkama er meðal þeirra verka sem
karlarnir þurfa að kunna því ef eitthvað kemur upp á
komast þeir ekki út úr hylkinu og þurfa því að bjarga sér
sjálfir. Helíumið í léttu lofti hylkisins gerir það að verkum
að karlarnir tala eins og Ripp Rapp og Rupp, sem Björg-
vin Hilmarsson atvinnukafari segir vera ansi fyndið,
svona í ljósi aðstæðna. Hann hafi verið lengi að venjast
því að tala alltaf eins og djúpraddaður Elvis Prestley þeg-
ar vinnutörninni lauk. Björgvin hafði unnið í mörg ár við
að flísaleggja, dúkleggja og flota gólf þegar hrunið skall á
árið 2008. Flest fyrirtækjanna sem hann vann fyrir fóru á
hausinn svo hann stóð skyndilega uppi atvinnulaus eftir
að hafa unnið meira og minna sleitulaust frá því að hann
var unglingur. Hann var í raun löngu kominn með leið á
því sem hann var að gera og ákvað því að líta á þessa nýju
stöðu í lífinu sem áskorun.
Algjör Bubbi byggir
„Ég gúgglaði bara og leitaði að stysta námi í heiminum
sem væri mjög vel borgað. Og þá datt ég niður á atvinnu-
köfun í Noregi. Þetta er kennt á fjórum mánuðum, bara
fjórar vikur bóklegar og restin verkleg. Það var nýbyrjað
að kenna þetta á ensku svo ég bara pakkaði saman dótinu
mínu og fór.“ Fjölskylda og vinir Björgvins voru ekkert
hissa þegar hann pakkaði öllu saman og fór, þar sem
hann hefur alltaf verið frekar eirðarlaus. Skólinn kom
honum skemmtilega á óvart, enda nóg af nýjum tólum og
tækjum til að leika sér með og námið gekk eins og í sögu.
Meira að segja eðlisfræðin var allt í einu auðveld, „því
hún „meikaði sens“ í samhengi við köfunina.“
„Ég er algjör Bubbi byggir, get allt þegar kemur að því
að smíða eða laga hvað sem er, þó ég hafi aldrei tekið
nein próf í því. Ég hef aldrei verið neinn skólahaus, ekki
náð einu prófi síðan ég var tíu ára. Hugsanlega vegna
þess að ég er svo ofboðslega ofvirkur. Ég hef aldrei getað
fókusað á neitt eitt í einu nema það sé eitthvað brjálæðis-
lega skemmtilegt og verklegt, þá get ég það.“
Með Top Gun á heilanum
Hann segir fólkið í náminu hafa verið fjölbreytt, þó þar
hafi ekki verið nein einasta kona því djúpsjávarköfun sé
algjör karlastétt. „Það eru allskonar skrítnir kálfar sem
fara í þetta nám. Þegar ég mætti fyrst var ég með „Top
Gun“ lagið á heilanum því ég hélt að ég væri á leiðinni í
eitthvað þvílíkt rokk og ról. En svo kemst maður fljótlega
að því að starfið felst aðallega í því að skrapa skel af bor-
pöllum og bátum og að þetta er bara algjör drulluvinna
sem er fimm sinnum erfiðari en önnur drulluvinna því
hún fer fram í kafi,” segir Björgvin og hlær.
Atvinnuköfun er lögbundin starfsgrein í Noregi og
mesta vinnan er í kringum laxeldið. Björgvin byrjaði
á því að læra loftköfun sem gefur réttindi til að kafa á
50 metra dýpi og vann eftir það aðallega við að skrapa
skel og hreinsa sjókvíar í laxeldi en fór svo út í brúar- og
bryggjuverkefni. Þar kynntist hann djúpsjávarköfurum
og ákvað að ná sér í réttindin. „Mér finnst það nú svolítið
merkilegt að þegar ég byrjaði í skólanum höfðu aðeins
tveir aðrir Íslendingar lagt djúpsjávarköfun fyrir sig og
þeir voru báðir úr Hveragerði, eins og ég. Annar þeirra
býr líka í Noregi en hinn hefur búið í mörg ár í Taílandi.”
Margir endast ekkert í starfinu
Djúpsjávarkafarar vinna á 50 til 250 metra dýpi. Lang-
mesta vinnu er að fá við gas- og olíuborpalla og sú vinna
líkist hefðbundinni verkamannavinna fyrir utan að hún
fer öll fram á kafi við mjög erfiðar aðstæður. „Mér er
flogið þangað sem vinnan er og svo er það bara bein leið
af vellinum út á sjó. Þetta er í raun algjört sjómannslíf en
í stað þess að vera á skipi þá er ég á risastórum pramma.
Margir þola ekki
innilokunina og „snappa“
Björgvin Hilmarsson vinnur við djúpsjávarköfun í Indlandshafi og Norðursjó,
en það er eitt hættulegasta starf í heimi. Vinnan krefst þess að kafararnir búi
nokkrir saman í algjörri einangrun í litlum járnhylkjum í allt að þrjátíu daga
samfleytt þar sem allir tala eins og Ripp Rapp og Rupp vegna létts helíum-
loftsins. Að sauma útlimi á búka er eitt af þeim mörgu verkum sem þessi
vinna krefst því mennirnir þurfa að bjarga sér sjálfir komi upp vinnuslys. Það
sem dregur menn að starfinu eru mjög góð laun og ævintýraþrá.
Framhald á næstu opnu
Lj
ós
m
yn
d/
H
ar
i
24 viðtal Helgin 15.-17. ágúst 2014