Fréttatíminn - 15.08.2014, Page 28
SPECIALIZED BICYCLES & COMPONENTS
KRÍA HJÓL GRANDAÐGARÐUR 7 101 REYKJAVÍK s.5349164
H álendi Íslands er furðu-legur staður. Mun fleiri útlendir ferðamenn sækja
þangað en íslenskir enda mun
f leiri útlendingar hérlendis á
sumrin en heimamenn. Upplifun-
in að vera einn í heiminum sækir
sterkt á fólk. Sérstaklega þá sem
búa þröngt. Hálendið er einfalt að
heimsækja á vel útbúnum bíl og
ekki er flókið að fara þar labbandi
um. Hins vegar er þriðja leiðin að
ryðja sér til rúms, fjallahjólaferð-
ir um hálendið eru alltaf að verða
vinsælli. Gefa enda það besta af
báðum fyrrnefndu ferðamátunum.
Tiltölulega fljóta yfirferð og þess
góða að vera einn með náttúrunni,
upplifun sem, þótt það hljómi eins
og þversögn, er oft betri í góðra
vina hópi.
Það er hægt að finna margar
skemmtilegar leiðir sem taka ekki
nema einn dag eða minna að rúlla
á hjólinu en það er upplifun, fyr-
ir þá sem það stunda ekki reglu-
lega, að sofa í fjallaskála á leiðinni.
Leiðin milli Hólaskjóls og Þórs-
merkur er ein af þessum leiðum.
Tvær dagleiðir með undir 50 kíló-
metrum á dag og skáli í miðjunni.
Leiðirnar eru rétt mátulega erfiðar
fyrir þá sem ekki eru of vanir slík-
um ferðum en á köflum nægilega
krefjandi svo reyndari menn fái
útrás líka. Þannig er líka best að
blanda hópnum. Reyndari menn í
bland við óvanari menn. Annars er
hætta á að útivistartúrinn breytist
í keppni og menn gleymi að gista á
miðri leið heldur klári rúntinn bara
á núll – einni.
Ár og lækir
Á hálendinu er nóg af óbrúuðum
ám til yfirferðar og því fyrr sem
hjólarar sætta sig við að þeir
munu blotna í fæturna, því betra.
Vaðskór eru bara eitthvað ofan á
brauð og að ætla að fara alltaf úr
skónum yfir hverja sprænuna á
fætur annarri tefur bara frá hjó-
latúrnum. Arka beint út í og setj-
ast svo strax aftur á hnakkinn eftir
volkið svo blóð sviti og eitt og eitt
tár geti hitað kaldar tærnar. Þeir
huguðu reyna að hjóla yfir sem
flestar árnar. Skynsamir menn
pakka því símum og öðrum við-
kvæmum varningi í vatnsþéttar
umbúðir áður en lagt er í hann.
Upp og niður
Kindastígar og göngustígar eru
yfirleitt skemmtilegustu hjólastíg-
arnir þarna uppi en einn og einn
vegur er til handargagns líka.
Eins og við er að búast fara þessar
brautir bæði upp og niður og því
eins gott að kunna aðeins á hjólið
og vera viðbúinn að þurfa að reiða
fákinn upp bröttustu brekkurnar,
já og stundum niður líka.
Strútslaug
Þarna á þessum hluta Fjallabaks
hins syðra, milli Hólaskjóls og
Þórsmerkur, er Strútsskáli og það
sem meira er, þarna er Strútslaug.
Vin í eyðimörkinni þar sem þreytt-
ir ferðalangar geta hvílt lúin bein
í plús, mínus 38 stiga hita. Sund-
föt eru einstaklingsbundið val þar
sem enginn er laugarvörðurinn en
hafa skal í huga að í lauginni er
mikill þörungagróður sem ekki
allir vilja á milli rasskinnana. Svo
er eitt annað. Það er best að lauga
sig bara strax því einn úr hópnum
gæti fengið þá frábæru hugmynd
að skella sér upp í skála og henda
afturlöppum á grillið meðan hóp-
urinn laugar sig. Sá hinn sami er
í toppformi og þeir sem eru það
ekki munu pottþétt fella vonleysis-
tár á leiðinni upp eina af mörgum
brekkum leiðarinnar.
Seinni dagurinn
Dagur tvö af þessari tæplega
hundrað kílómetra leið (reyndar er
leiðin bara tæplega níutíu kílómetr-
ar en ef sett er á grillið í Strútsskála
áður en laugað er lengist hún sjálf-
krafa um tíu kílómetra) kemur inn
á Laugaveginn vinsæla. Þar, eftir
tiltölulega mikla einveru á Strúts-
leið, finnast fáir ferðamannalausir
kaflar. En þarna eru, eins og á fyrri
dagleiðinni, sérstaklega skemmti-
legir hjólakaf lar. Niður langar
brekkur og yfir kletta og einstigi.
Sandurinn er oft á tíðum gljúpur
eins og reyndar fyrri daginn líka
en það gleymist fljótt þegar hægt
er að fljúga áfram á ný.
Á góðum degi tekur það ekki
mjög langan tíma að rúlla þarna
niður og þeir allra hörðustu hætta
ekki þar heldur príla upp Fimm-
vörðuhálsinn og bruna svo niður
með Skógaánni. Hinir, sem ekki eru
í eins góðu hjólaformi, príla upp í
bíl og vona að tilfinningin komi ein-
hvern tímann aftur í rasskinnarnar.
Haraldur Jónasson
hari@frettatiminn.is
Strípalingar í Strútslaug
Emstrur
Hólaskjól
Strútsskáli
Þórsmörk
Leiðin
Sjá einnig síðu 29
28 hjólreiðar Helgin 15.-17. ágúst 2014