Fréttatíminn - 15.08.2014, Page 32
32 fótbolti Helgin 15.-17. ágúst 2014
SKÓLANEMAR: 25% AFSLÁTTUR GEGN FRAMVÍSUN SKÍRTEINIS!
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR & KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS - MIÐASALA: 412 7711
MONTY PYTHON LIVE (mostly) 7 - 31 ÁGÚST: 20.00
1.
121 stig
Stjóri: José Mourinho.
Stærstu kaupin: Diego Costa,
Cesc Fabregas, Filipe Luis.
Fylgstu með þessum: Diego
Costa. Senterinn sem liðið
vantaði á síðustu leiktíð.
„Með þennan stjörnuhóp á
kjaftaskurinn Mourinho eftir að
leiða Lundúnaliðið að titlinum
í ár.“
„Hrokagikkurinn ásamt
auðlindum Chukotka-héraðs
mun skila liðinu silfri.“
„Mourinho gefur allt í tímabilið,
enda vanur titlasöfnun.“
„Mourinho getur ekki farið inn
í þetta tímabil og talað eins
og nýliði, eins og hann gerði
í fyrra. Chelsea á að vinna
með þennan mannskap, engin
afsökun.“
„Þeir gerðu líklega ein bestu
kaup sumarsins þegar þeir
fengu Fabregas til sín. Það er
rannsóknarefni að þeir skyldu
aðeins borga 5 milljónum
pundum meira fyrir hann
en Liverpool borgaði fyrir
65-mínútna-manninn Lallana.“
2.
97 stig
Stjóri: Arsene Wenger.
Stærstu kaupin: Alexis
Sanchez, Calum Chambers,
Mathieu Debuchy.
Fylgstu með þessum:
Aaron Ramsey. Leiðtoginn á
miðjunni.
„Wenger hefur loksins dregið
upp veskið og keypt alvöru
leikmenn en ekki einhverja
franska vandræðaunglinga.“
„Öllum að óvörum springur
draumalið Wengers loksins út –
þökk sé banvænu sóknarsam-
spili Ramseys, Özils, Walcotts
og Sanchez – Morinho og
Hjörvari Hafliða til ómældrar
armæðu“
„Sánchez er innspýting og
góður sigur á City í keppninni
um Samfélagsskjöldinn á
dögunum gefur vísbendingu
um framhaldið.“
„Það er einhver endurreisnar-
stemning í Arsenal þessa
dagana.“
3.
91 stig
Stjóri: Manuel Pellegrini.
Stærstu kaupin: Eliaquim Man-
gala, Fernando, Willy Caballero.
Fylgstu með þessum: Stevan
Jovetic. Meiddur nær allt síð-
asta tímabil en gæti raðað inn
mörkum í fjarveru Negredo.
„Gætu unnið deildina á b-liðinu
sínu.“
„Held að City þurfi ekki að
reiða sig á Steven Gerrard
þetta árið.“
„Stórkostlegir leikmenn
en krafan um sigur á öllum
vígstöðvum mun verða þeim
ofviða þegar upp er staðið.“
„Frábært lið en þreyta kominn
í mannskapinn. Verða ekki
jafngóðir í ár og í fyrra.“
„Neistinn er farinn.“
4.
87 stig
Stjóri: Louis van Gaal
Stærstu kaupin: Luke Shaw,
Ander Herrera.
Fylgstu með þessum: Ander
Herrara. Miðjumaðurinn sem
United hefur lengi vantað.
„Er hvorki í Meistara- né
Evrópudeildinni í ár og það
mun gera gæfumuninn. Liðið
mun krækja í ca. 5-10 aukastig
af því að einbeita sér einungis
að ensku deildinni.“
„Van Gaal verður að tryggja sér
betri hafsenta ef hann ætlar að
spila með þrjá slíka.“
„Robin van Persie á eftir að
blómstra undir stjórn landa
síns Louis Van Gaal og með
Rooney og Chicharito verður
United með hættulega fram-
línu.“
STARLUX Heilsurúm
Margir litir - (160x200cm án höfðagafls)
30%
AFSLÁTTUR
Verð: 98.770.-
Síðumúla 30 - Reykjavík
Hofsbót 4 - Akureyri
Chelsea meistari –
United tekur fjórða sætið
Enska úrvalsdeildin
hefst að nýju eftir
sumarleyfi á morgun.
Fréttatíminn
smalaði saman
hópi sér-
fræðinga
til að spá í
spilin fyrir
mótið.
Álitsgjafar
Andrés Jónsson almannatengill, Arnar Björnsson íþróttafréttamaður, Atli Fannar Bjarkason blaðamaður, Ágúst Jakobsson kvikmyndatöku-
maður, Ásgeir Eyþórsson útvarpsmaður, Borghildur Sigurðardóttir framkvæmdastjóri, Björn Steinbekk tónleikahaldari, Grímur Atlason
tónleikahaldari, Grímur Sigurðsson lögmaður, Guðjón Ingi Eiríksson bókaútgefandi, Guðmundur Benediktsson íþróttafréttamaður, Hafdís
Eyjólfsdóttir sérfræðingur, Harpa Hannesdóttir iðjuþjálfi, Haukur Harðarson íþróttafréttamaður, Hulda Geirsdóttir útvarpskona, Edda
Sif Pálsdóttir fjölmiðlakona, Einar Logi Vignisson auglýsingastjóri, Dagný Brynjarsdóttir knattspyrnukona, Hildur Einarsdóttir sölumaður,
Hreimur Örn Heimisson tónlistarmaður, Ingibjörg Hinriksdóttir upplýsingafulltrúi, Kristinn Agnarsson tónlistarmaður, Kristjana Arnars-
dóttir blaðamaður, Kristrún Heimisdóttir framkvæmdastjóri, Logi Bergmann Eiðsson sjónvarpsmaður, Magnús Agnar Magnússon umboðs-
maður, Matthías Matthíasson tónlistarmaður, Mist Edvardsdóttir knattspyrnukona, Ólafur Garðarsson lögmaður og umboðsmaður, Óskar
Hrafn Þorvaldsson forstöðumaður, Júlíus Jóhannsson fasteignasali, Pétur Már Ólafsson bókaútgefandi, Pjetur Sigurðsson ljósmyndari,
Ragnhildur Sverrisdóttir upplýsingafulltrúi, Rakel Þorbergsdóttir fréttastjóri, Sema Erla Serdar ritstjóri, Sigrún Ósk Kristjánsdóttir sjón-
varpskona, Sigurður Hlöðversson auglýsingamaður, Sigurvin Ólafsson lögmaður, Skarphéðinn Guðmundsson dagskrárstjóri, Skúli Malm-
quist kvikmyndaframleiðandi, Trausti Hafliðason blaðamaður, Þorgrímur Þráinsson rithöfundur, Örn Úlfar Sævarsson auglýsingamaður.
E ftir frábært heimsmeist-aramót er komið að næstu knattspyrnuveislu; það
verður flautað til leiks í ensku
úrvalsdeildinni á ný á morgun,
laugardag. Stóru liðin hafa flest
verið með veskið á lofti og verður
forvitnilegt að sjá hvernig stjór-
unum gengur að láta nýju menn-
ina passa inn í púslið.
Fréttatíminn fékk 44 manns
til að spá í spilin. Hver álitsgjafi
spáði fyrir um fjögur efstu sætin
og fékk liðið í efsta sæti fjögur
stig, liðið í öðru sæti þrjú stig,
liðið í þriðja sæti tvö stig og fjórða
sætið gaf eitt stig.
Langflestir eru þeirrar skoð-
unar að Chelsea beri sigur úr
býtum þennan veturinn. Hörð
keppni verður aftur á móti um hin
þrjú Meistaradeildarsætin miðað
við spána. Arsenal er spáð öðru
sæti sæti, meistarar Manchester
City hafna í þriðja sæti og Louis
van Gaal fleytir Manchester Uni-
ted í það fjórða. Athygli vekur að
Liverpool hlaut aðeins 42 stig í
könnuninni og hafnaði í fimmta
sæti.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Spænski landsliðsmaðurinn Cesc Fabregas verður
lykilmaður hjá Chelsea í vetur. Hann var keyptur
frá Barcelona í sumar. Ljósmyndir/NordicPhotos/Getty