Fréttatíminn - 15.08.2014, Page 38
38 bílar Helgin 15.-17. ágúst 2014
ReynsluakstuR kia spoRtage
T Ú R I S T I
Einfaldari lEit að ódýrum
hótElum í útlöndum
Leitaðu og berðu saman tilboð á hótElum út um aLLan heim og skoðaðu úrvaLið af
sérvöLdum gististöðum, orLofsíbúðum og gistiheimiLum fyrir næstu utanLandsferð
á túristi.is. Lesendur okkar fá einnig regLuLega sérkjör á gististöðum út í heimi.
Kynntu þér Dublin á uu.is
Úrval Útsýn er í Hlíðasmára 19, Kópavogi.
Sími 585 4000 www.uu.is
Dublin
Haustferð
20.–23. NÓV.
Verð frá aðeins 88.500 kr.
Svalur – í öllum
merkingum orðsins
Falleg hönnun Kia
Sportage vekur athygli
hvar sem ekið er. Þetta
er bíll sem er þægileg-
ur en líka svalur. Mér
fannst hann síðan enn
svalari þegar ég komst
að því að hanskahólfið
er líka lítill ísskápur.
k ia Sportage er alveg fáránlega fal-legur bíll, svo það sé bara sagt hreint út. Bróðir minn, bankamað-
ur á fimmtugsaldri, vildi fá að prófa bílinn
og er að íhuga hann sem sinn næsta bíl.
Mamma þurfti aðeins að horfa á bíllinn
áður en hún tilkynnti mér að sig langaði í
einn slíkan. Hún bakkaði reyndar aðeins
þegar ég sagði henni að bróðir minn væri
að hugsa um að kaupa Kia Sportage. Svo
langar mig auðvitað í hann en það væri
heldur ósmart ef við værum öll á
eins bíl. Hversu smart sem bíllinn
sjálfur er.
Það er gott að keyra Kia Spor-
tage, og raunar reynsluók ég flott-
ustu og dýrustu týpunni – World
Cup Edition – sem er með rúskinni
á sætunum, stærri snertiskjá og
meiri lúxus. Það sem heillaði mig
samt mest var hanskahólfið sem
einnig er hægt að nota sem lítinn
ísskáp. Já, kælirinn var tilbúinn
þegar ég tók við bílnum og þar
fann ég því ískalda handbók bíls-
ins. Auðvitað var ég fljót að skipta
henni út fyrir sódavatn, appelsínu-
safa og jógúrt. Vinur minn gerði
mikið grín að áhuga mínum á
þessu kæliboxi og sagði auðvitað
fátt mikilvægara en að vera stopp
á rauðu ljósi á Sæbrautinni og geta
teygt sig í kalda jógúrt. Þar sem ég
er nýkomin út leiðangri á lands-
byggðinni með barn í aftursæt-
inu gat ég hins vegar í huganum
fundið óendanlega mikil not fyrir
kælinn í hversdagslífinu.
Þið þekkið síðan þetta furðu-
lega geymsluhólf neðst í bílhurð-
unum þar sem ekkert kemst fyrir
nema bæklingar og rusl. Í þessum
bíl eru loksins komin alvöru not
fyrir þetta hólf því í öllum fjórum
hurðunum að innanverðu er búið
að móta hólfið þannig að það rúmi
flösku sem stendur nánast upprétt.
Þar gat ég því líka geymt stóra
flösku af sódavatni, svona þegar ég
var búin að taka hana úr kælinum.
Auðvitað voru líka glasahaldarar
fyrir kaffið, svona eins og almennt
tíðkast, og glasahaldarar fyrir
aftursætisfarþega.
Kia Sportage er flottur og hann
er lipur í akstri. Fyrir konu eins og
mig eru það samt ekki síður smá-
atriðin sem skipta máli – og kælir
í hanskahólfinu er bara mjög stórt
smáatriði.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Eftir að útlitshönnuður Audi færði sig yfir til Kia hafa bílarnir orðið fallegri og fallegri og er Kia Sportage ósvikið dæmi þess.
Ljósmyndir/Hari
Í hanskahólfinu gat ég kælt sódavatnið, appelsínusafann og jógúrtið.
Í hólfinu neðst í hurðinni, sem yfirleitt
ekkert passar almennilega í, er hægt að
geyma flöskur.
Kia Sportage
EX 2,0 4WD dísil
136 hestöfl
6,9 l/100 km í blönd. akstri
179 CO2 gr/km
Hæð 1635 mm
Verð 6.590.777 kr.
Bíllinn er laglegur að innan.
Farandursrýmið er rúmgott.
Lín Design Laugavegi 176 & Glerártorgi Akureyri Sími 533 2220
25-60%
afsláttur
ÚTSALA