Fréttatíminn - 15.08.2014, Qupperneq 42
42 ferðalög Helgin 15.-17. ágúst 2014
Ferðir Fjölbreytt úrval Flugs til og Frá landinu í vetur
60% afsláttur
af öllum barnafötum
Lín Design Laugavegi 176 Glerártorgi Akureyri Sími 533 2220 www.lindesign.is
af eldhúsvörum
25-50% afsláttur
SÍÐUSTU DAGAR ÚTSÖLU
Sendum frítt
úr vefverslun
lindesign.is
30% afsláttur
af barnarúmfötum
30-50% afsláttur
af púðum
40% afsláttur
30-50% afsláttur
af allri smávöru
Þangað geturðu flogið beint í vetur
Í fluggeiranum
hefst veturinn
þegar flestar
þjóðir seinka
klukkunni um
einn tíma í
lok október.
Vetrardagskrá
flugfélaganna
sem halda
uppi áætl-
unarflugi
héðan á þeim
árstíma er
fjölbreyttari
en áður.
Þ að verður flogið beint til þrjátíu og tveggja borga í Evrópu og N-Amer-íku frá Keflavík og Reykjavík í vetur.
Þar af eru fimm borgir sem aldrei áður hafa
verið hluti að leiðakerfi flugfélaganna hér á
landi, utan aðalferðamannatímans. Á suma
áfangastaðina er aðeins flogið einu sinni til
tvisvar í viku á meðan ferðirnar til London
verða fimm til sex á dag. Síðasta vetur lét
nærri að fjórða hver vél sem tók á loft frá
Keflavík setti stefnuna á bresku höfuð-
borgina og vægi Lundúna mun ekki minnka
næstu mánuði því easyJet mun fjölga ferðum
sínum þangað en WOW dregur þó aðeins úr.
Lítil samkeppni
Af þessum þrjátíu og tveimur flugleiðum
sem í boði verða í vetur er aðeins sam-
keppni á fimm þeirra. Til Oslóar og London
fljúga þrjú félög og Icelandair og WOW air
fljúga daglega til Kaupmannahafnar. Þeir
Austurríki
Salzburg
BAndAríkin
Boston, Denver, New York, Orlando,
Seattle, Washington
BretLAnd
Belfast, Bristol, Edinborg, Glasgow,
London, Manchester
dAnmörk
Kaupmannahöfn
FinnLAnd
Helsinki
FrAkkLAnd
París
FæreyjAr
Þórshöfn
GrænLAnd
Nuuk, Kulusuk, Ilulissat
HoLLAnd
Amsterdam
kAnAdA
Edmonton, Toronto
noreGur
Bergen, Osló
spánn
Alicante
sviss
Basel, Genf
svíþjóð
Stokkhólmur
þýskALAnd
Berlín, Frankfurt, München
Auk þessara borga bjóða ferðaskrif-
stofurnar upp á leiguflug til nokkurra
borga og eins verður hægt að fljúga
til Varsjár um jólin og til Stavanger
og Þrándheims fram í byrjun
nóvember. Á Túristi.is má finna upp-
lýsingar um hvaða flugfélög fljúga til
hverrar borgar og hvenær.
áFAnGAstAðir vetrArins
sem ætla í fótboltaferð til Manchester
geta áfram valið á milli easyJet og
Icelandair og ef ferðinni er heitið til
Parísar þá fjúga bæði WOW air og Ice-
landair þangað.
nýliðarnir
Í vetur verður í fyrsta skipti hægt að
fljúga héðan beint til Sviss því easyJet
mun bjóða upp á nokkrar ferðir í viku
til Basel og Genf allt árið um kring.
Breska félagið ætlar einnig að fara
tvisvar í viku á milli Belfast og Kefla-
víkur en Iceland Express hafði hug
á að hefja flug á þessari leið á sínum
tíma en ekkert varð úr því. Flybe og
Icelandair munu svo bæði fljúga milli
Birmingham og Keflavíkur. Í N-Amer-
íku er flug Icelandair til Edmonton í
Alberta-fylki í Kanada eina viðbótin við
vetrardagskrána.
Hér má sjá allar þær borgir sem
boðið verður upp á áætlunarflug til í
vetur. Til sumra borga verður flogið í
stuttan tíma en aðrir áfangastaðir eru í
boði í allan vetur.
Söluskatturinn í Alberta fylki í Kanada er aðeins 5 prósent og verslun í borginni nýtur góðs af
því. Ljósmynd/Edmonton Tourism
Basel í jólabúningi. Til svissnesku borgarinnar flýgur easyJet í allan
vetur. Ljósmynd/Andreas Gerth
kristján
sigurjónsson
kristjan@turisti.is