Fréttatíminn - 15.08.2014, Page 56
HELGARBLAÐ
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300 ritstjorn@frettatiminn.is www.frettatiminn.is
Guðmundur BirGir Halldórsson
Bakhliðin
Úrræðagott
blíðmenni
Aldur: 39 ára.
Maki: Já, takk.
Börn: Birta, 5 mánaða.
Menntun: Heimspeki.
Starf: Viðburðastjóri hjá Reykjavíkur-
borg.
Fyrri störf: Gítarleikari í rokkhljóm-
sveitinni Reykjavík, deildarstjóri
hjá ÍTR í Frostaskjóli, uppskipun hjá
Akstur og Löndun ehf.
Áhugamál: Dauðarokk og skák.
Stjörnumerki: Ljón.
Stjörnuspá: Þú munt hugsanlega
kaupa eitthvað sem tengist tölvum
fyrir heimilið í dag. Beindu kröftum
þínum þangað sem þú færð eitthvað
til baka.
Ég hef þekkt Guðmund frá því að hann fæddist og alltaf litið mjög stíft upp til
hans,“ segir Haukur Magnússon,
æskuvinur og frændi Guð-
mundar. „Alltaf þegar ég lendi í
vandræðum þá hugsa ég hvernig
Gummi myndi bregðast við því
hann er svo ofboðslega úrræða-
góður. Hann hefur þann dásam-
lega kost að geta skoðað öll mál
á yfirvegaðan máta án þess að
láta tilfinningar hlaupa með
sig í gönur. Hann er ótrúlega
þolinmóður og líka svo mikill
heimspekingur. Svo er hann líka
blíður og skilningsríkur.
Guðmundur Birgir Halldórsson er við-
burðastjóri Menningarnætur. Menning-
arnótt í Reykjavík verður haldin í nítjánda
sinn þann 23.ágúst næstkomandi og er
dagskráin í ár fjölbreytt að vanda.
Hrósið...
... fær Dagur Sigurðsson handknatt-
leiksþjálfari, sem nýlega var ráðinn
landsliðsþjálfari þýska landsliðsins í
handknattleik. Þýska landsliðið er eitt
það sterkasta í heiminum um þessar
mundir.