Fréttatíminn - 15.08.2014, Qupperneq 64
skólinn byrjar Helgin 15.-17. ágúst 20148
INNTÖKUPRÓF
í allar deildir skólans fara fram 20. ágúst
INNRITUN
fyrir veturinn 2014-2015 stendur yfir
Fjölbreytt SÖNGNÁM fyrir nemendur á öllum aldri
Léttsöngvadeild
• Söngur • Leikur • Rytmi • Dans
Unglingadeildir
yngri og eldri • 11 - 15 ára
Almennar söngdeildir
Grunnnám / Miðnám / Framhaldsnám
Háskóladeildir
Einsöngsnám / Söngkennaranám
• Þjóðlagatónlist • Ljóðasöngur • Óperusöngur • Söngleikir •
• Einsöngur • Samsöngur • Kórsöngur •
• Söngtúlkun • Sviðsframkoma • Hreyfingar við tónlist • Leikræn tjáning •
• Tónleikar • Óperuuppfærslur •
• Tónfræði • Hljómfræði • Tónheyrn • Nótnalestur • Tónlistarsaga • Saga sönglistar •
Allar nánari upplýsingar eru veittar
á skrifstofu skólans að Snorrabraut 54,
sími 552-7366 kl. 10-16 alla virka daga
www.songskolinn.is
• • •
Ný deil
d!
Þ að er miðað við að brautin sé kláruð á þremur árum en ég tók þetta á tveimur árum,“
segir Eyrún Dröfn Jónsdóttir sem
útskrifaðist sem tækniteiknari frá
Tækniskólanum í vor. Eyrún dúxaði
og fékk verðlaun fyrir framúrskar-
andi árangur í fjórum fögum. „Ég fór
í Fjölbraut í Breiðholti sem unglingur
en hafði engan áhuga á náminu þá,“
segir Eyrún sem er þrítug í dag. „Þá
var ég í skólanum á allt öðrum for-
sendum. Ég hafði engan áhuga á
náminu en það var vegna þess að ég
vissi í raun ekkert hvert ég var að
stefna. Ég bara fór þangað því mér
fannst ég eiga að fara. Árangurinn
var eftir því og ég hætti áður en ég
gat klárað. Ég fór bara að vinna og
festist í því,“ segir Eyrún sem hefur
verið að vinna í fataverslun. „Þegar
ég svo átti barn þá sá ég að þetta
gengi ekki lengur. Það hentar mjög
illa að vinna í verslun með lítið barn.
Það er svo ósveigjanlegur vinnu-
tími og oft yfirvinna. Ég fór að líta í
kringum mig eftir námi og datt þá
niður á tækniteiknun sem vakti strax
áhuga minn. Ég hafði samt enga hug-
mynd um hvað ég var að fara í þegar
ég byrjaði.“
Fékk nýja vinnu fyrir útskrift
Eyrún fékk vinnu á verkfræðistofu í
apríl, mánuði áður en hún útskrifað-
ist. „Ég lét ekki skólaverkfallið í vetur
stoppa mig heldur hélt bara áfram að
mæta í skólann og læra. Ég kláraði
allt á réttum tíma og var byrjuð að
vinna í fullu starfi áður en skólinn var
búinn,“ segir Eyrún sem er hæst-
ánægð í nýju starfi en veltir líka fyrir
sér meira námi í framtíðinni. „Eftir
að hafa klárað tækniteiknun er hægt
að bæta við sig nokkrum einingum til
að fá stúdentspróf og ég ætla að vera
í fjarnámi með vinnunni í vetur. Mig
langar að einbeita mér vel að þessari
nýju reynslu sem ég er að fá en svo
getur vel verið að ég fari í meira nám
í framtíðinni. Kannski byggingar-
fræði.“
En hver er lykillinn að svona góð-
um námsárangri? „Fyrst og fremst
þarf maður að hafa áhuga á því sem
maður er að gera. Svo þarf maður að
vera skipulagður og mæta í alla tíma.
Það er líka mjög mikilvægt að vera
forvitinn og vera duglegur að spyrja
kennarana.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
E inhvers staðar þarf að byrja og við álítum að þetta sé góður stökkpallur fyrir
marga,“ segir Ásrún Davíðsdóttir,
aðstoðarskólastjóri Söngskólans í
Reykjavík.
Ný deild verður sett á fót við
Söngskólann í Reykjavík nú í haust.
Um er að ræða létt-laga söng-
deild þar sem lögð verður áhersla
á létta tónlist, þjóðlög, dægurlög,
söngleikjalög, rytmiska tónlist,
hreyfingar og dans. Það eru þrír
af söngkennurum skólans sem
verða aðalkennarar deildarinnar;
þau Garðar Thór Cortes, Harpa
Harðardóttir og Sibylle Köll. Þau
kenna öll söng og vinna að sam-
söngsatriðum, en Sibylle, sem er
bæði söngvari og dansari, vinnur
jafnframt að hreyfingum og kennir
dans. Áhersla verður lögð áhersla
á rétta og áreynslulausa radd-
beitingu, en jafnframt unnið að og
kennt að syngja þar sem röddin er
mögnuð upp með hátalara.
„Það hefur verið töluverð eftir-
spurn að fá að komast í nám sem
er meira stílað inn á létta músík,
til dæmis dægurlög og söngleikja-
lög. Svo er mikið inni núna að hafa
hreyfingarnar með. Það verður
gaman að fá nýja krakka inn í
skólann og svo kemur í ljós hvaða
hæfileikum þeir búa yfir. Það er þá
hægt að hvetja þá til frekara náms,“
segir Ásrún.
Létt-söngdeildin er aðallega
ætluð nemendum á framhaldsskóla-
aldri en yngri og eldri nemendur
eru einnig velkomnir. Stefnt er að
því að létt-deildin verði með tón-
leika og/eða sýningar, að minnsta
kosti tvisvar á ári.
Söngskólinn býður upp á söng-
nám sem innifelur alla þætti sem
tilheyra tónlistar- og söngnámi.
Deildaskipting námsins er allt frá
unglingadeild, þar sem nemendur
frá ellefu ára aldri stunda söngnám,
til háskóladeildar sem útskrifar
einsöngvara og söngkennara
með Bachelor gráðu, í samstarfi
við The Associated Board of the
Royal Schools of Music í London.
Prófdómarar þaðan dæma próf
nemenda Söngskólans í Reykjavík
tvisvar á ári. Innritun stendur nú
yfir í allar deildir skólans og fara
inntökupróf fram 20. ágúst næst-
komandi.
Unnið í samstarfi við
Söngskólann í Reykjavík
TónlisTarkEnnsla léTT-söngdEild
Ný og spennandi
deild í Söngskólanum
Þau Harpa Harðardóttir og Garðar Thór Cortes verða tveir af þremur aðalkenn-
urum við nýja deild Söngskólans í Reykjavík. Þar verður lögð áhersla á létta tónlist,
dægurlög og söngleikjatónlist til að mynda.
dúx skipulag og ásTundun
Áhugi er lykillinn að
góðum námsárangri
Eyrún Dröfn
Jónsdóttir
dúxaði og fékk
fern verðlaun
fyrir fram-
úrskarandi
námsárangur
þegar hún
útskrifaðist úr
tækniteikningu
frá Tækni-
skólanum í vor.
Hún hvetur fólk
á öllum aldri til
að láta drauma
sina rætast og
fara í nám. Hún
segir áhuga
og forvitni
vera lykilinn
að góðum
námsárangri. Eyrún Dröfn ákvað að fara í nám eftir að hún átti son sinn, til að fá möguleika á sveigjanlegri
vinnutíma.