Þjóðlíf - 01.09.1986, Síða 57
1
j
I
I
I
i
£
I!
menn — skipting valds) kjósi í blað-
ráð og ristjórn, auk þess sem stjórn
útvarpsstöðvarinnar verði einnig kos-
in með einhverjum hætti. Útvarps-
stöðin var stofnuð sem sjálfstæð ein-
ing Nýs Birtings samkvæmt nýju
tveggja ára áætluninni 1989-91, og
hefur henni tekist að skapa sér mark-
verðan sess á sama hátt og blaðið í
þjóðlífinu. Besta framlag hennar er
e.t.v. samband við hlustendur, margs
konar innleggi þeirra er beint eftir
ólíkum leiðum út á öldur ljósvakans.
TUTTUGASTA ÖLDIN
KVEÐUR. Lýðræðishreyfingar-
innar býður nú það vandasama verk-
efni að kveðja tuttugustu öldina og
heilsa nýrri. Það er við hæfi að í lok
aldarinnar sundaðist það flokkakerfi
sem myndaðist við upphaf hennar.
Með hreyfingunni komu fram margir
nýir stjórnmálamenn, sem eiga fátt
sameiginlegt með þeim Gunnari og
Geir, Einari og Hannibal. Nú eftir
kosningarnar eru hvorki meira né
minna en 18 af 30 þingmönnum Lýð-
ræðishreyfingarinnar fólk, sem aldrei
hefur verið kosið í opinbera stöðu
áður.
Þetta er þó ekki það gleðilegasta
við þingflokkinn. Hugmyndin um
fulltrúalýðræði hefur verið endur-
skilgreind. Vegna þess jarðvegs
(sumir myndu segja þrátt fyrir), sem
Nýr Birtingur skóp, tókust meiri og
betri tengsl milli ólíkra
hagsmunahópa en áður. Margir þing-
mannanna, einkum þeir yngri, líta á
sig sem fulltrúa hugmyndar, hug-
sjóna, sameiginlegrar baráttu, ekki
fulltrúa ákveðinna sérhópa eða
hagsmuna. Óneitanlega hefur nokk-
uð borið á sérpoti í þingflokknum,
rétt eins og í sambandi við Nýjan
Birting á sínum tíma, en krafan um
heildarhyggju er enn sterk; þarna er
komin krafan um uppskurð á kerfinu
öllum til hagsbóta, sem fyrstu ár-
gangar Nýs Birtings enduróma á
unum, — án sérkvóta!). Á sama hátt
var hugmynd ákveðinna afla í flokk-
unum um 1-2-3-4-5 regluna kæfð í
fæðingu (m.a. í öllum helstu dálkum
Nýs Birtings). Sú regla hefði gefið A-
flokkunum fyrsta og annað sætið til
skiptis í öllum kjördæmum, Kvenna-
lista þriðja sætið og „utangarðsfólki“
fjórða og fimmta — uns hringurinn
hefði byrjað á ný.
NÝJA VIÐHORFIÐ er enn
við lýði og verður vonandi áfram.
Nýr Birtingur átti stóran þátt í því að
það fékk hljómgrunn, og var í raun
skilgreint á síðum blaðsins árin eftir
„stóra áfallið" og síðan í nýju út-
varpsstöðinni. Pessir miðlar verða
áfram helsti drifkraftur hreyfingarinn-
ar, þrátt fyrir að hún hafi nú eignast
myndarlegan þingflokk og sé í þann
veginn að mynda ríkisstjórn. Nýr
Birtingur er í örum vexti, útvarps-
stöðin tekur beinan þátt í listum og
framúrstefnu margs konar með litrík-
um jaðarhópum, nefna má hugsan-
lega yfirtöku á Máli og menningu,
plötuútgáfu, árlegan kvikmyndastyrk
og hlutdeild í sjónvarpsstöð í náinni
framtíð. Allar þessar greinar starf-
seminnar lúta ólíkri stjórn; nú er
raunar talið víst að ritstjórnarstaða
verði borin undir atkvæði og blað-
ráðið gamla lagt niður, enda varla til
nema á pappírunum. Aðskilnaður
flokks og málgagns verður umræðu-
efni ráðstefnu í haust og í uppsiglingu
eru miklar deilur um áhrifavald
gömlu flokksapparatanna, nýju Lýð-
ræðishreyfingarinnar og „hins al-
menna manns“. Eins og nú stendur
er einkar líklegt að gömlu flokkarnir
verði lagðir niður endanlega (buðu
auðvitað ekki fram síðast).
Hlutverk Nýs Birtings verður nú
mun vandasamara en áður vegna
þess að nú er „okkar fólk“ komið í
stjórn. Blaðið fær þá einungis lifað
af, að það verði trútt þeim hugsjón-
um sem komu því á legg og það sjálft
Nefna má hugsanlega yfirtöku á Máli og menningu
og sjónvarpsstöð sem verkefni Nýs Birtings.
hverri síðu. Það var líklega stærsti
ávinningur hreyfingarinnar að hafa
opnar kosningar til embætta og í
prófkjöri í stað þess að koma á kvóta-
kerfi fyrir verkafólk, menntamenn,
konur og homma eins og Svanur
sagði; krafan „hommi á þing“ var sett
fram til að tryggja einum slíkum „ör-
uggt“ sæti — sem betur fer var henni
hafnað eins og öðrum. (Eins og allir
vita nú fór hommi á þing sem uppbót-
armaður í krafti stórsigursins á dög-
gerði sitt til að móta, — verði aldrei
stofnun en alltaf hreyfing.
Ýmir var fyrstur jötna og Auðhumla
kýr hans, — af þeim rann mikið kyn
sem Edda greinir frá. Þessi ritnöfn
verða að nægja að sinni.
Grein Svans í Pjóðlífi árið 1986
var rifjuð upp og þótti með
ólíkindum hve sannspár hann
hafði reynst.
ÞJÓÐLÍF 57