Fréttatíminn


Fréttatíminn - 17.10.2014, Qupperneq 2

Fréttatíminn - 17.10.2014, Qupperneq 2
kynntu þér málið! SIÐMENNT w w w . s i d m e n n t . i s Málsvari veraldlegs samfélags Siðmennt Skráðu þig í félagið á www.sidmennt.is Ísland best Norðurlandanna Nær öruggt er að á nýjum styrkleikalista FIFA, sem birtist í næstu viku, að íslenska landsliðið verði efst Norðurlandanna á listanum. Það er eitthvað sem aldrei hefur gerst áður, né nokkurn óraði fyrir. Samkvæmt styrkleikalistanum er Ísland nú í 34. sæti, Danir í 27. og Svíar í 32. sæti. Samkvæmt útreikningum fer íslenska landsliðið í 28. sæti og það danska fellur vegna taps þeirra gegn Portúgal. Það virðast fleiri vera á þessari skoðun því á heimasíðu Expressen í Svíþjóð hefur staðið yfir könnun um það hvaða Norðurlandalið sé best. Svíar hafa ekki mikla trú á Dönum því valið stendur á milli Svía, Íslendinga og svo annarra. Í gær höfðu tæplega 8.000 manns tekið þátt í könnuninni og 57% valið Ísland, 30% Svíþjóð og 12% aðrar Norður- landaþjóðir. Þetta ku stafa af gríðarlegum vinsældum Lars Lagerbäck, landsliðsþjálf- ara Íslands í heimalandinu. -hf Íbúðir á lóð Útvarpshússins Borgarráð samþykkti í gær, fimmtudag, tillögu Dags B. Eggertssonar borgarstjóra að efna til samkeppni með Ríkisútvarpinu um breytt skipulag á lóð RÚV við Efstaleiti. Viðræður hafa verið milli Reykjavíkur- borgar og Ríkisútvarpsins síðan í maí. Markmiðið er að borgin nái markmiðum sínum um þéttingu byggðar og RÚV mun nýta ávinninginn til að grynnka á skuldum sínum. Vinnuhópur verður skipaður til að gera lýsingu þar sem þarfir RÚV auk áherslna Reykjavíkurborgar í skipulagi um þéttingu og gæði byggðar verða hafðar að leiðarljósi. Eftir að umrædd lýsing hefur verið samþykkt verður hún hluti af samkeppnislýsingu fyrir skipulagssamkep- pni um svæðið. Viðbragðsáætlun vegna ebólu Landspítalinn hefur frá því um mitt sumar undirbúið viðbragðsáætlun ef grunur vaknar um ebólusmit hjá sjúklingi sem annað hvort leitar til Landspítalans eða er vísað þangað. Undirbúningur hefur verið í höndum farsóttarnefndar spítalans ásamt gæða- og sýkingavarnardeild og fram- kvæmdastjórum lækninga og hjúkrunar. Fjölmargir aðrir hafa komið að undirbú- ningnum og hefur sérstakur verkefnastjóri umsjón með samhæfingu verkefnisins. Meðal þeirra verkefna sem unnið hefur verið að eru verklagsreglur fyrir móttöku og meðferð sjúklinga, skipulagning fræðslu og þjálfun fyrir starfsfólk í viðbragðsteymi og undirbúningur breytinga á húsnæði, svo eitthvað sé nefnt. Las upp úr Fimmtíu gráum skuggum „Þetta eru mergjaðar bókmenntir en líklega hefði textinn skilað sér betur í meðförum konu. Það kom sem sagt í ljós að frásögn- in er öll frá sjónarhorni Anastasiu Steele og ég er kannski full dimmraddaður til að vera trúverðugur í hennar hlutverki,“ segir Magnús Ragnarsson, framkvæmdastjóri hjá Símanum. Magnús las upp úr bókinni Fimmtíu gráum skuggum fyrir sam- starfsmenn sína hjá Símanum í gærdag í tilefni átaksins Allir lesa, en Síminn er einn bakhjarla þess. Mikil stemning var innan fyrirtækisins vegna þessa upplesturs. „Hugmyndinni um upplestur úr þessari kyngimögnuðu bók var kastað fram sem gríni en gripin og framkvæmd mér til hryll- ings,“ segir Magnús í léttum tóni. „Ég get ekki sagt opinberlega að mér hafi verið skemmt, en það var gaman að sjá hvað samstarfsfólkið skemmti sér vel. Ég óttast helst að það hafi verið á minn kostnað!“  WikiLeaks Misnotkun á íMynd heyrir sögunni tiL Hér eftir mun allur varningur sem tengist ímynd WikiLeaks þurfa leyfi frá fyrirtækinu „Justli- cense“ sem athafnamennirnir Ólafur Vignir Sigurvinsson og Guðmundur Magnússon standa á bak við. Tilgangurinn er að verja ímynd fyrirtækisins og um leið vera ný leið til fjármögnunar. u pphafið að þessu öllu saman má rekja til þess að stóru al-þjóðlegu kortafyrirtækin, Visa, Mastercard, PayPal og fleiri aðilar í greiðslumiðlun, ákváðu að skella í lás á okkur árið 2010. Þá var farið að selja varning tengdum WikiLeaks á netinu að frumkvæði sjálfboðaliða svo stuðningsaðilar gætu stutt við bakið á samtökun- um,“ segir Kristinn Hrafnsson tals- maður WikiLeaks. Eftir að ímynd WikiLeaks varð þekktari fór að bera á misnotkun á henni. Andlit Julians Assange og lógó WikiLeaks var tengt við ýmis- konar varning sem aðstandendum WikiLeaks mislíkaði. „Það var til að mynda breskt tískufyrirtæki, „Russell & Bromley“, sem fór að markaðssetja kvenskó og hand- töskur undir WikiLeaks merkinu án þess að spyrja kóng né prest. Ég er nú enginn tískugúru en ég sé engin tengsl milli skótaus og okkar vinnu,“ segir Kristinn. Vörumerkið WikiLeaks Upp úr þessari misnotkun á ímynd WikiLeaks hófst samstarfið við leyf- isveitingafélagið „Justlicense“, sem íslensku athafnamennirnir Ólafur Vignir Sigurvinsson og Guðmundur Magnússon standa á bak við. Guð- mundur Magnússon hefur starfað sem framkvæmdastjóri Latabæjar og Ólafur Vignir er stofnandi Data- cell. „Justlicense“ sér um vörumerkið WikiLeaks með markvissum hætti, um vernd þess og líka um að koma því á framfæri. Þeir aðilar sem hafa vilja og löngun til að sækja um að nota vörumerkið á varning þurfa að sækja um það og greiða fyrir það. Við höfum ekki neinn áhuga á því að þetta lógó sé út um allt á varningi án þess að það sé neinn stuðningur við samtökin með beinum hætti. Þetta er ákveðin leið til að form- gera eitthvað sem þegar er komið af stað,“ segir Kristinn sem hefur ekk- ert á móti því að WikiLeaks tengi sig við tískuvöru. Íslendingar sjá um verndun vörumerkisins Samstarf WikiLeaks við „JustLi- cense“ hefur vakið athygli fjölmiðla erlendis og því haldið á lofti að Juli- an Assange sé með tískuvörur í pípunum sem eigi eftir að koma á markað. Ólafur Vignir Sigurvins- son segir í viðtali við Washington Post marga hafa sýnt áhuga á því að tengja sitt vörumerki við varn- ing WikiLeaks, þeirra á meðal séu franskir hönnuðir. Þetta mun þýða að vörurnar munu ekki aðeins selj- ast á netinu heldur líka í verslun- um hönnuða, sem mun þýða meiri fjárhagslegan ávinning fyrir Wiki- Leaks, sem frá árinu 2006 hefur lifað á einkaframlagi. Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Wikileaks lögverndað vöru- merki undir stjórn Íslendinga Andlit Julian Assange, stofnanda WikiLeaks, er vænlegt vörumerki. Kristinn Hrafnsson, talmaður WikiLeaks. Ólafur Vignir Sigurvinsson, einn mannanna á bak við JustLicense, leyfisveitingafélags sem sér um málefni WikiLeaks. Vivienne Westwood, sem er ötull stuðn- ingsmaður WikiLeaks, vakti mikla athygli á dögunum þegar hún sýndi Assange og baráttu hans fyrir gegnsæu upplýsinga- flæði samstöðu með því að mæta í bol með mynd af Assange með yfirskriftinni „Ég er Julian Assange“. Stefnt er að því að við endurnýjun næstu búvörusamninga verði geitfjár- rækt jafnsett sauðfjárrækt í opinberum stuðningi. Þannig megi tryggja ræktun og viðhald stofnsins til framtíðar.  Landbúnaður sjö MiLLjónir tiL efLingar geitfjárræktar Geitfjárrækt verður jafnsett sauðfjárrækt Atvinnuvega- og nýsköpunar- ráðuneytið hefur gert samning við erfðanefnd landbúnaðarins um að efla geitfjárrækt á Íslandi. Reiknað er með að kostnaður verði samtals 7 milljónir króna á næstu þremur árum. Gert er ráð fyrir að erfða- nefnd landbúnaðarins verði falið að ráðstafa stuðningnum í samræmi við tillögur vinnuhóps sem ráðherra skipaði í vor. Þá verður, í samstarfi við Bændasamtök Íslands, búinn til stafrænn gagnagrunnur með öllum ætternisupplýsingum sem safnað hefur verið frá upphafi um íslenska geitfjárstofninn. Ætlunin er að auka beinan stuðning til geita- bænda og gera átak í sæðistöku og djúpfrystingu sæðis svo koma megi upp erfðabanka er varðveiti mikil- vægustu erfðaþætti stofnsins. Ólafur Dýrmundsson, ráðgjafi hjá Bændasamtökunum, hafði ekki heyrt fréttirnar þegar Fréttatíminn hafði samband við hann en var að vonum hæstánægður, enda ötull stuðningsmaður íslensku geitarinn- ar til margra ára. „Þessi mál hafa verið á dagskrá í mörg ár en aldrei hafa fengist peningar til að vinna al- mennilega, eins og til dæmis við að bæta gagnagrunninn og frystingu sæðis. Þetta hlýtur að þýða að það fáist nú loks peningar í það. Von- andi verður þátttaka geitfjáreigenda nú betri, en hingað til hafa aðeins tveir þriðju geitfjáreigenda fyllt út skýrslur.“ Einnig stefnt að því að við endur- nýjun næstu búvörusamninga verði geitfjárrækt jafnsett sauðfjárrækt í opinberum stuðningi. Þannig megi tryggja ræktun og viðhald stofnsins til framtíðar. „Beingreiðslur þýða náttúrulega það að þeir aðilar sem framleiða einhverjar afurðir og eru með skýrsluhald. Þeir munu fá styrk sem er hið allra besta mál. Ég er bara himinlifandi yfir þessum fréttum.“ -hh 2 fréttir Helgin 17.-19. október 2014
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.