Fréttatíminn - 17.10.2014, Blaðsíða 22
Hef alltaf átt erfitt með
að finna mína stöðu
Sigur íslenska landsliðsins á
geysisterku liði Hollands á
mánudaginn fór ekki framhjá
neinum, hvorki á Íslandi né þeim
sem fylgjast með úti í hinum
stóra heimi. Allir leikmenn lands-
liðsins stóðu sig eins og hetjur
og er staða þeirra í riðlinum
eftir fyrstu 3 leikina mjög góð.
Þrír sigrar og liðið hefur ekkert
mark fengið á sig. Einn þeirra
sem vakið hefur hvað mesta
athygli er ungur drengur sem er
að stíga sín fyrstu skref með A-
landsliðinu, Selfyssingurinn Jón
Daði Böðvarsson sem leikur með
Viking Stavanger í Noregi.
É g fæddist í Reykjavík, bjó þar til 4 ára aldurs, þar til for-eldrar mínir skildu. Ég flutti
þá ásamt móður minni og bróður til
Húsavíkur og var þar til 6 ára ald-
urs. Þaðan flutti ég að Varmalandi í
Borgarfirði til pabba míns. Þegar ég
var 7 ára gamall fluttist ég til Selfoss,
ásamt mömmu, og byrjaði þá að æfa
fótbolta,“ segir Jón Daði Böðvarsson
um uppruna sinn.
Gummi Ben treysti manni
Var alltaf draumurinn að fara út?
„Nei, ekki alltaf, draumurinn byrj-
aði kannski af einhverri alvöru þegar
ég var orðinn 16 ára gamall.“
Kom aldrei til greina að fara til
annars liðs á Íslandi, þ.e.a.s áður en
þú fórst út?
„Nei. Ég persónulega hafði ekki
mikinn áhuga á því. Selfoss var að
gera flotta hluti þá og það sem þeir
gerðu, og gera enn, var að henda
strákum beint í djúpu laugina og
maður fékk að spila mikið. Þar á ég
Gumma Ben, ásamt mörgum öðrum,
mikið að þakka,“ segir Jón Daði. Guð-
mundur Benediktsson þjálfaði lið Sel-
foss á þessum árum. „Hann treysti
manni mikið þrátt fyrir að hafa bara
verið 17 ára gamall.“
Hvernig er lífið hjá Viking?
„Lífið er ágætt hérna. Þetta er
klúbbur með miklar væntingar.
Gengi liðsins hefur verið arfaslakt
í ár og því getur verið erfitt að vera
leikmaður þegar illa gengur. En við
stöndum allir saman í þessu og hjálp-
um hver öðrum,“ segir Jón sem er
einn 5 Íslendinga hjá liðinu.
„Þeir eru allir saman fagmenn og
flottir strákar. Indriði Sigurðsson er
fyrirliði liðsins og hefur ávallt hjálpað
manni og gefið manni ráð.“
Hefur frammistaða þín með A-
landsliðinu vakið athygli í Noregi?
„Já það er hægt að segja það. Þeir
hrósa okkur í hástert.“
Æfði eins og vitfirringur
Hvernig hefurðu bætt þig sem leik-
maður hjá Viking?
„Ég get sagt að ég sé búinn að bæta
mig mjög mikið og einnig þroskast
töluvert. Fyrsta tímabilið mitt var
nokkuð erfitt, ég fékk lítið traust og
byrjaði fáa leiki. Sjálfstraustið hvarf
algjörlega og ástríðan einnig. Stund-
um sat maður heima og hugsaði hvort
maður væri nægilega góður og slíkt,
en að var alls ekki málið,“ segir Jón.
„Að koma frá litlu félagi á Selfossi yfir
í Viking, þar sem 10.000 áhorfend-
ur krefjast sigurs, er nokkuð mikil
breyting. Hinsvegar tók ég þessu
bara sem áskorun og keppni. Ég setti
mér ný markmið og æfði eins og vit-
firringur á undirbúningstímabilinu.
Fór til íþróttasálfræðings og gerði
nánast allt sem ég vissi að mundi
hjálpa. Í fyrsta leiknum á mótinu var
ég á bekknum, gegn Rosenborg. Við
vorum að tapa 2-0 þegar þjálfarinn
kallaði og sagði mér að koma inn á.
Ég var settur fremst, skoraði 2 og
jafnaði leikinn á síðustu mínútunni.
Það er óhætt að segja að þessi
leikur hjálpaði mikið,“ segir Jón.
„Ég hef ávallt verið í vandræðum að
finna réttu stöðuna á vellinum. Ég
var keyptur sem kantmaður en náði
ekki mínu allra besta þar. Eftir
að ég var settur upp á topp þá
blómstraði ég.“
Tilbúinn að taka næsta
skref
Hver eru framtíðarmarkmiðin?
Langar þig að færa þig um set?
„Framtíðarmarkmiðin eru að kom-
ast ennþá lengra. Ég tel mig tilbúinn
að taka næsta skref, en ég hef alltaf
þá reglu að lifa í núinu og ekki vera að
pæla of mikið í því.“
Var þér vel tekið í A-landsliðinu?
„Já virkilega. Strákarnir voru allir
saman miklir fagmenn og pössuðu
það að maður aðlagaðist hópnum
hratt.“
Fékkstu ekkert að heyra það á æf-
ingum?
„Nei, nei, ekkert meira en venju-
lega. Það er alltaf eitthvað kallað á
mann.“
Hvernig eru heimilisaðstæður
ungs atvinnumanns í Noregi?
„Ég bý ásamt kærustunni minni,
Maríu Ósk Skúladóttur. Hún er ynd-
isleg manneskja sem er alltaf til
staðar fyrir mig.“
Hvernig er tilfinningin núna
eftir landsleikina?
„Tilfinningin er bara nokkuð
góð. Núna vill maður bara gera
sem best í þeim leikjum sem eftir
eru af tímabilinu með Viking,“ seg-
ir Jón Daði Böðvarsson, framtíðar-
stjarna íslenska landsliðsins.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Ingibjörg Erna
Sveinsdóttir
móðir Jóns Daða
„Mamman hafði alltaf trú á honum,“
segir Ingibjörg Erna Sveinsdóttir,
móðir Jóns. „Hann er gríðarlega
fylginn sér og nær yfirleitt því sem
hann ætlar sér. Það kom mér ekkert
á óvart þegar hann
fór í atvinnu-
mennskuna
því hann var
miklu meira
en efnilegur
mjög ungur.
Hann bara
gerði sér ekki
grein fyrir því
strax sjálfur. Hann
er búinn að vinna mjög
hart að því að vera þar sem hann er í
dag og ég er mjög stolt.“
Guðmundur
Benediktsson
fyrrverandi þjálfari Selfoss
„Maður sá það um leið og maður mætti
á fyrstu æfinguna á Selfossi að þarna
væri drengur sem væri frekar sérstakt
eintak. Hann hafði allt sem góður leik-
maður þurfti á að halda. Hraða, styrk,
skilning og gríðarlega sterkur í loftinu,“
segir Guðmundur
Benediktsson.
„Hann hafði
bara ótrúlega
margt til
brunns að
bera. Það
sást vel að
hann og félagi
hans, Guðmundur
Þórarinsson, ætluðu
sér stærri hluti og þess vegna er virki-
lega gaman að sjá þá blómstra núna
með landsliðum Íslands.“
Fullt nafn: Jón Daði Böðvarsson
Aldur: 22 ára
Lið: Viking F.K.
Besti leikmaður í heimi? Cristiano
Ronaldo
Átrúnaðargoð í æsku? Zinedine
Zidane
Uppáhaldslið í enska? Manchester
United
Jón Daði Böðvarsson stóð sig frábærlega í stórleiknum gegn Hollandi á mánudaginn, raunar eins og allt liðið, enda vakti sigur Íslendinga á hollenska liðinu heimsathygli.
Hollendingar enduðu í bronssæti á heimsmeistaramótinu í Brasilíu í sumar. Mynd Hari
22 fótbolti Helgin 17.-19. október 2014