Fréttatíminn - 17.10.2014, Qupperneq 24
Minja er gjafavöruverslun með áherslu á íslenska og erlenda hönnun • skólavörðustíg 12 • sími 578 6090 • www. minja.is • facebook: minja
K
raftaverk
Ugla eða Kisa.
Kr. 3.600 settið
(2 stk.)
Gla›legar
bókasto›ir
„Maður er nú með ýmsar grillur í
höfðinu en ég var nú aldrei með
neinar grillur um það að ég
gæti skrifað neitt. Það var í
raun algjör tilviljun hvernig
þetta byrjaði. Konan mín
var að útskrifast úr ferða-
málaskóla árið 2002 og
mig langaði svo að skrifa
eitthvað fallegt til henn-
ar. Ég leitaði ljóða ansi
víða og fann alls ekkert
sem mér fannst passa
við tilefnið. Þannig
að ég settist niður og
fór að hnoða saman
vísu, sem myndi nú
ekki flokkast undir
meistaraverk, en varð
þó til þess að kveikja
áhugann á skrifum
hjá mér.“ Þessi vísa
varð upphafið að
skrifunum en síðan
hefur Filippus Gunnar sett saman fjöldann
allan af vísum og nú hefur hann gefið út
barnabækur um lítinn fimm ára strák sem
kallast Kalli kaldi. Sögurnar eru myndskreytt-
ar af Önnu Þorkelsdóttur.
Skapandi fjölskylda
Kalli kaldi er þekkt persóna í fjölskyldu Filippusar
en faðir hans var vanur að segja sögur af þessum
litla strák sem er alltaf að lenda í ævintýrum. „Sög-
urnar hans byrjuðu alltaf eins; „Einu sinni var lítill
strákur í stóru húsi í Reykjavík.“ Það upphafsstef
varð svo kveikjan að sögunum mínum“, segir Filippus
Gunnar sem á sjálfur þrjú börn sem öll hafa ratað í
skapandi greinar. Dóttir hans, Nína Dögg, er þjóð-
kunn leikkona, Árni Filippus er kvikmyndagerðar-
maður og svo var fóstursonur hans, sem nú er fallinn
frá, tónlistarmaðurinn Sigurjón Brink. „Við foreldr-
Afi sem býr til
bækur í prentara
Filippus Gunnar Árnason er enginn venjulegur afi því auk þess að starfa
sem sölumaður semur hann ljóð og skrifar barnabækur. Sögurnar af Kalla
kalda hafa lifað með fjölskyldu hans til fjölda ára en eftir að hafa farið á
námskeið í Háskólanum ákvað Filippus Gunnar að koma sögunum á prent
svo fleiri börn gætu notið þeirra.
arnir segjum oft í gríni að þar sem
börnin sáu okkur strita frá átta til
sex alla daga hafi þau ákveðið að
fara einhverja allt aðra leið,“ segir
Filippus og hlær. „Nei, nei, svona
að öllu gríni slepptu þá sáum við
snemma að börnin höfðu hæfi-
leika á sínu sviði og við höfum
alltaf stutt þau í því sem þau hafa
viljað gera. Og við erum mjög stolt
af afrakstrinum,“ segir Filippus
Gunnar og bætir því við að nú séu
það börnin sem styðji og hvetji
pabba sinn áfram. „Mér finnst
mjög gaman að kynnast störfum
barna minna núna í gengum útgáf-
una á bókunum, hvernig tilfinning
það er að skapa og leggja sín eigin
hugverk á borð fyrir aðra.“
Hvatning að fara í endur-
menntun
„Þó að bækurnar séu ekki stórar
þá er þetta stórt verkefni sem
tekur sinn tíma, sérstaklega þar
sem maður er í fullri vinnu annars-
staðar,“ segir Filippus sem vinnur
sem sölumaður. Hann fór á nám-
skeið í skrifum í Háskólanum fyrir
nokkrum árum sem varð honum
hvatning til að skrifa meira. „Þar
setti ég Kalla kalda fyrst niður á
blað og skilaði afrakstrinum inn
og fékk mjög góðar viðtökur sem
var auðvitað mikill hvati fyrir mig.
Það var líka bara svo skemmtilegt
að fara á svona endurmenntunar-
námskeið. Ég hvet alla sem hafa
einhverjar „ambisjónir“ til að gera
það. Svo kom líka fram á þessu
námskeiði að það vantaði barna-
bækur fyrir stráka því það er svo
mikið gefið út sem er hugsað sér-
staklega fyrir stelpur. Ég hef nú
ekki gert neina könnun á þessu
sjálfur en þetta hvatti mig enn
meira áfram. Þetta eru samt alls
ekki bækur bara fyrir stráka og
hún Hrafntinna, afadóttir mín, er
einn helsti aðdáandi minn. Hún er
mjög stolt af því að eiga afa sem
getur búið til bækur í prentara.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Filippus Gunnar
Árnason hefur
gefið út þrjár
barnabækur um
fimm ára strák
sem kallast Kalli
kaldi. Þetta eru
hans fyrstu bækur
en hann hefur
starfað við versl-
unarstörf í fjörutíu
ár. Mynd Hari
Kalli Kaldi fer í búðina.
Anna Þorkelsdóttir mynd-
skreytti bækurnar.
24 viðtal Helgin 17.-19. október 2014